Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 70
70 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég þáði verkefnið um hæl og fyrir því eru nokkrar ástæður,“ segir danska leikkonan Sofie Gråbøl þegar hún er spurð um aðkomu sína að kynningu á Íslendinga- og fornalda- sögunum. Í tengslum við 100 ára fullveldisafmæli Íslands hefur Gråbøl tekið þátt í dagskrám víðs vegar um Danmörku, m.a. í Kaupmannahöfn, Óðinsvéum, Álaborg og Árósum með Annette Lassen, ritstjóra átta binda útgáfu Íslendingasagnanna sem út komu 2014 í danskri, sænskri og norskri þýðingu. Þar hefur Lassen flutt fyrirlestra um Íslendinga- sögurnar og Gråbøl lesið upp. Sam- starfið heldur áfram á næstunni þar sem Gråbøl mun lesa upp úr Njáls sögu í heimalandi sínu. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Gråbøl á föstu- daginn var, en þann dag bauð mennta- og menningarmálaráðu- neytið til ráðstefnu í tilefni af því að Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni 2019. Frummæl- endur og þátttakendur í pallborðs- umræðum frá Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Noregi veltu þar upp nýj- um og hugmyndaríkum leiðum til þess að koma Íslendingasögunum á framfæri við nýjar kynslóðir og halda þeim á lofti sem hluta af sameigin- legum norrænum menningararfi. Undir lok dags lásu Gråbøl og Hall- dóra Geirharðsdóttir upp úr völdum Íslendingasögum og -þáttum. Spennandi miðlunarform „Mér finnst einstaklega gaman að lesa upp og hef á síðustu árum tekið æ fleiri slík verkefni að mér. Mér finnst ég ná að gefa áheyrendum jafnmikið af mér þó ég sé ekki að tak- ast á við tiltekið leikhlutverk. Í stað þess að túlka textann er ég að miðla honum til áheyrenda. Þegar ég tekst á við hlutverk á leiksviði eða hvíta tjaldinu þarf ég að ýta sjálfri mér til hliðar þar sem markmiðið er að áhorfendur trúi því að ég sé persón- an sem ég leik. Upplesturinn krefst þessa ekki. Þar get ég komið fram sem ég sjálf og þarf aðeins að gæta þess að skyggja ekki á textann, enda snýst upplesturinn ekki um mína túlkun. Af þeim sökum finnst mér þetta spennandi miðlunarform – enda snýst þetta í grunninn um að segja sögu,“ segir Gråbøl og tekur fram að þegar henni bauðst upplestr- arverkefnið sá hún það sem kær- komið tækifæri til að lesa loks Ís- lendinga- og fornaldarsögurnar. „Þótt skömm sé frá að segja hafði ég aldrei lesið neina Íslendingasagn- anna þegar Annette hringdi í mig og bauð mér að lesa upp úr þeim. Ég bý við þann lúxus í mínu fagi að fá tæki- færi til að kynna mér nýja hluti. Sem dæmi tók ég fyrir nokkrum árum að mér að lesa inn á hljóðbók stóran hluta Nýja testamentisins, sem gaf mér einstakt tækifæri til að sökkva mér ofan í þennan ríkulega menn- ingararf á faglegum forsendum,“ segir Gråbøl og bætir við að þegar komi að vinnunni með tungumálið sé hún í raun algjör nörd. „Ég er alltaf jafn hugfangin af öllum þeim blæ- brigðum sem tungumálið býr yfir. Það er hægt að nálgast upplestur á svo margvíslegan hátt og miðla text- um með ólíkum hætti. Í því samhengi eru Íslendingasögurnar svo áhuga- verðar því mér finnst ég skynja svo sterklega í textanum að þær byggj- ast á munnlegri frásagnarhefð. Það birtist til dæmis í því hversu oft og fimlega stokkið er fram og til baka í tíðum, jafnvel innan sömu setningar. Á sama tíma er textinn svo hrein- skiptinn og uppfullur af húmor. Svo spillir ekki fyrir hversu kröftugar sögurnar eru, framvindan dramatísk „Þið leggið rækt við ræturnar“  Sofie Gråbøl kemur reglulega fram og les upp úr Íslendingasögunum  Kærkomið að heimsækja Ísland aftur  Segir fornsögurnar í senn fyndnar, litríkar, djúpvitrar og sálfræðilega trúverðugar Morgunblaðið/Árni Sæberg Stolt „Eitt af því sem heillaði mig þegar ég kynntist Íslendingum bet- ur í vinnu minni hérlendis er hvað þið eruð gestrisin, elskuleg og stolt sem þjóð,“ segir Sofie Gråbøl. „Ég nýt þess að geta jöfnum hönd- um unnið á leiksviði, hvíta tjaldinu og sjónvarpsskjánum,“ segir Sofie Gråbøl, sem flestir landsmenn þekkja úr sjónvarpsþáttaröðum á borð við Forbrydelsen (2007-2012) og Fortitude (2015-2018). Meðal ný- legra kvikmynda sem hún hefur leikið í eru The House That Jack Built (2018) í leikstjórn Lars von Trier og Den tid på året (2018) í leikstjórn Papriku Steen. Gråbøl hefur átt langan og farsælan leik- feril. Hún var aðeins á táningsaldri þegar hún landaði hlutverki í Oviri (1986) í leikstjórn Hennings Carlsen þar sem hún lék á móti stór- stjörnum á borð við Donald Suther- land og Max von Sydow. Í framhald- inu fylgdu myndir á borð við Barndommens gade (1986) í leik- stjórn Astrid Henning-Jensen, þar sem Gråbøl lék dönsku skáldkonuna Tove Ditlevsen, og Pelle erobreren (1988) í leikstjórn Bille August. „Ég lék síðast á sviði fyrir tveim- ur árum,“ segir Gråbøl og vísar þar til Brota úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman sem sett var upp í Kon- unglega leikhúsinu í Kaupmanna- höfn. „Þar var farin sú leið að skipta um kyn persóna. Fyrirfram hafði ég ákveðnar efasemdir hvort þetta myndi ganga upp, en þegar á reyndi fann ég að þessi nálgun opnaði text- ann og færði hann nær samtímanum með áhrifaríkum hætti.“ Lífið of stutt fyr- ir vond hlutverk  Sofie Gråbøl lætur sig dreyma um að spreyta sig á handritaskrifum Ljósmynd/Det kongelige teater Ástúð Sofie Gråbøl ásamt Morten Kirkskov í Brotum úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman sem Konung- lega leikhúsið í Kaupmannahöfn frumsýndi fyrir tveimur árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.