Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 234.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Fararstjóri: Sævar Skaptason Skíðaparadísin Flachau er staðsett í einu stærsta skíðasvæði Evrópu, Ski Amadé. Með einum skíðapassa getur þú skíðað niður 860 km af skíðabrekkum og notfært þér 270 skíðalyftur sem ferja þig upp í skjannahvítar brekkurnar. Gist verður á glæsilegu hóteli í austurrískum alpastíl. 15. - 22. febrúar Svigskíðaferð til Flachau Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, segir nýju taln- inguna benda til kólnunar. „Eftir langt hagvaxtarskeið bendir allt til samdráttar í hagkerf- inu sem mun líkega vara fram á næsta ár. Það endurspeglast á byggingarmarkaði og í þessum töl- um. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði er að dragast saman,“ segir Sigurður og bend- ir jafnframt á að fjármálastofnanir hafi dregið úr framkvæmdalán- um til uppbygg- ingar íbúða. „Áhyggjuefnið er að það eru meiri öfgar í sveiflunum á byggingarmarkaði en í hagkerfinu almennt. Það þýðir að uppgangurinn verður alltaf talsvert meiri en í hagkerfinu og niður- sveiflan dýpri. Þetta er að ein- hverju leyti að koma fram,“ segir Sigurður. húsnæði í takt við væntingar, eða eftirspurn á markaði. Eftirspurnin er fyrst og fremst eftir hag- kvæmum íbúðum, ódýrari íbúðum og minni. Hins vegar hefur meira verið byggt af dýrari íbúðum og stærri. Það þarf að breytast.“ Sigurður bendir svo á nýjar tölur Hagstofunnar sem vitni um að það sé að hægja á íslenskum bygging- ariðnaði. Dregið hafi úr sölu á sem- enti og steypustyrktarjárni. Þá rifjar Sigurður upp átaksverk- efni stjórnvalda og aðila vinnu- markaðarins í húsnæðismálum og tillögur sem urðu hluti af lífskjara- samningunum. Þá m.a. varðandi regluverk og stuðning við fyrstu kaup. „Með hliðsjón af lítilsháttar samdrætti á markaðnum og vís- bendingum um meiri samdrátt horft fram í tímann er enn ríkari ástæða en áður til að hrinda þess- um tillögum í framkvæmd. Þá til að uppbygging geti verið skilvirkari og hagkvæmari og í takt við þarfir markaðarins. Stjórnvöld verða að skila sínu,“ segir hann. Með þetta í huga telur hann ástæðu til að hið opinbera og einkaaðilar ráðist í innviða- framkvæmdir til að örva hagkerfið. Þótt ráðast eigi í auknar sam- gönguframkvæmdir dugi það skammt á móti uppsafnaðri þörf. Að sama skapi telur hann að þótt hægt hafi á uppbyggingu íbúða verði áfram uppsöfnuð þörf. „Eftirspurnin mun ekki dragast saman. Íbúum er stöðugt að fjölga og það hefur verið uppsöfnuð þörf á undanförnum árum. Við hjá Sam- tökum iðnaðarins höfum ekki lagt mat á eftirspurnina heldur skoðum við framboðshliðina með talning- unni. Það er minna um ný verkefni á síðustu sex mánuðum en verið hefur,“ segir Sigurður. Spurður hvort það geti orðið til að viðhalda ásættanlegri eftir- spurn ef íbúðaverðið er lægra segir Sigurður að vissulega hafi verð- lagningin og stærðin áhrif. „Hér er komið inn á markaðs- brestinn á íbúðamarkaðnum. Það hefur ekki verið byggt íbúðar- Stjórnvöld efni fyrirheit í húsnæðismálum FRAMKVÆMDASTJÓRI SI RIFJAR UPP ÁTAKSVERKEFNI Sigurður Hannesson Íbúðir í byggingu skv. talningu Samtaka iðnaðarins Nágrenni höfuðborgarsvæðisins Íbúðir í byggingu að fokheldu, breyting frá fyrri talningu Spá Samtaka iðnaðarins um fullbúnar íbúðir til 2022 Mars 2018 til september 2019 Höfuðborgarsvæðið og nágrenni höfuðborgarsvæðis samtals 30% 20% 10% 0% -10% -20% maí 2010 mars 2011 nóv. 2011 sept. 2012 feb. 2013 sept. 2013 mars 2014 okt. 2014 mars 2015 okt. 2015 feb. 2016 sept. 2016 feb. 2017 sept. 2017 mars 2018 sept. 2018 mars 2019 sept. 2019 2.004 1.638 1.410 1.281 1.565 1.673 2.021 2.434 2.224 2.402 2.556 2.958 3.255 3.734 4.093 4.845 4.988 4.984 1.629 375 1.290 348 1.166 244 830 735 926 747 891 1.130 1.181 1.253 1.205 1.019 1.419 983 1.260 1.296 1.437 1.521 1.614 1.641 2.015 1.719 2.053 2.040 2.177 2.668 2.430 2.558 2.794 2.190 365 433 466 488 638 528 695 330 mars 2018 sept. 2018 mars 2019 sept. 2019 Höfuðborgarsvæðið, maí 2010 til september 2019 Fokhelt og lengra komið Að fokheldu Fokhelt og lengra komið Að fokheldu Nágrenni höfuðborgarsvæðisins Höfuðborgarsvæðið sept. 2018 mars 2019 sept. 2019 2020 2021 2022 381 2.660 332 2.513 333 2.667 2.279 2.181 2.334 798 954 1.166 1.025 809 472 vatnaskil í þessum tölum sem benda til þess að fjöldi fullbúinna íbúða kunni að fækka á næstu misserum,“ segir í samantektinni. Jónas Atli Gunnarsson, hagfræð- ingur hjá Íbúðalánasjóði, segir áfram útlit fyrir skort á íbúðum. Uppsöfnuð þörf hafi þó minnkað. „Íbúðalánasjóður komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu að uppsöfnuð íbúðaþörf árið 2019 væri 4.800 til 7.600 íbúðir. Það sem af er ári hefur skráðum íbúðum í Þjóðskrá hins vegar fjölgað um 2.000 og áætla má að þeim muni fjölga um að minnsta kosti 500 til viðbótar út árið,“ segir Jónas Atli. Samkvæmt þessu gæti uppsöfnuð þörf um áramótin verið 2.300 til 5.100 íbúðir. Ekki skortur á dýrari íbúðum Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, segir aðspurður vísbend- ingar um að hægt hafi á uppbygg- ingu nýrra íbúða. Spurður hvers vegna þessi staða sé komin upp, í ljósi umræðunnar um skort á íbúðum, segir Þorvaldur fleiri en eina ástæðu fyrir því. „Þrátt fyrir fullyrðingar um skort á íbúðum benda sölutölur til þess að það hafi ekki verið alveg rétt mat. Það er aðalástæðan. Það er ekki skortur nema þá á ákveðinni gerð íbúða sem er á lægra verðbilinu.“ Máli sínu til stuðnings bendir Þorvaldur á góða sölu hagkvæmari íbúða ÞG Verks í Bryggjuhverfinu að undanförnu. Fyrirtækið hafi ákveðið að byggja íbúðir í svipuðum verð- flokki í Voga- byggðinni í Reykjavík. Kostnaður hefur aukist Þorvaldur segist því aðspurður telja að þegar verðið sé komið upp fyrir tiltekin mörk sé ekki skortur. „Fleiri þættir hafa áhrif. Fjár- mögnun verkefna hefur verið að þyngjast síðustu 12 mánuði. Þá er hækkandi byggingarkostnaður að koma fram. Hann hefur hækkað nær samfellt frá árinu 2014. Lengst af fylgdi kostnaðurinn hækkandi íbúða- verði en síðan náðist jafnvægi í sölu- verði íbúða snemma á síðasta ári. Kostnaðurinn hefur hins vegar hald- ið áfram að aukast og þar af leiðandi verður erfiðara um vik að framleiða nýjar íbúðir. Áhættan hefur aukist en um leið hefur hvatinn til að fara í ný verkefni minnkað.“ Hægari uppbygging úti á landi Þorvaldur segir aðspurður að ÞG Verk hafi hægt á uppbyggingu íbúða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Menn vilji sýna varkárni þar til staða efnahagsmála skýrist. „Hrun blasir alls ekki við. Málið er frekar að menn eru að skipta um gír, að gíra sig aðeins niður,“ segir Þor- valdur um stöðuna. Samdráttur í smíði nýrra íbúða  Um 14% færri íbúðir eru á fyrstu byggingarstigum á höfuðborgarsvæðinu en í talningu SI í mars  Talning SI sýnir sveiflur  ÍLS áætlar að uppsöfnuð þörf verði fyrir 2.300 til 5.100 íbúðir í árslok Þorvaldur Gissurarson BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ný íbúðatalning Samtaka iðnaðarins bendir til að dregið hafi úr byggingu nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Þannig voru um 14% færri íbúðir komnar að fokheldu en í mars síðast- liðnum. Samkvæmt nýju talningunni voru 2.190 íbúðir komnar að fokheldu. Til samanburðar voru 2.558 íbúðir á því byggingarstigi í mars síðastliðnum og 2.668 í september 2018. Fjöldinn er nú álíka mikill og í mars 2018. Munurinn er enn meiri í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þar hefur íbúðum sem eru komnar að fokheldu fækkað úr 528 í mars 2019 í 330 í nýjustu talningu, eða um 37,5%. Hins vegar fjölgar íbúðum á höfuðborgarsvæðinu sem eru fok- heldar eða lengra komnar um 15%. Þær voru um 2.800 í nýju talning- unni en rúmlega 2.400 í síðustu taln- ingu í mars. Þá fjölgaði íbúðum í ná- grenni höfuðborgarsvæðisins sem eru fokheldar eða lengra komnar um 9%, úr 638 í 695. Samanlagt eru nú tæplega 5.000 íbúðir komnar að fok- heldu, eða fokheldar og lengra komnar, á höfuðborgarsvæðinu, eða álíka margar og í mars síðastliðnum. Með nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru um 6.000 íbúðir í þessum tveimur flokkum, um 150 færri en í síðustu talningu. Viðbrögð við samdrætti Fækkun íbúða á höfuðborgar- svæðinu sem komnar eru að fok- heldu frá því í mars fylgir niður- sveiflunni í ferðaþjónustu sem hófst með gjaldþroti WOW air í lok þess mánaðar. Vikið er að kólnuninni í samantekt Samtaka iðnaðarins, en þar segir að byggingaraðilar séu „að öllum líkindum að bregðast við breyttum horfum í efnahagsmálum“. „Talningar SI á íbúðum í bygg- ingu hafa undanfarin ár borið með sér að framundan væri vaxandi fjöldi fullbúinna íbúða að fara á markað. Nú virðast hins vegar vera ákveðin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.