Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Fimm rússneskar kvikmyndir
verða á dagskrá rússneskra kvik-
myndadaga á Íslandi sem hefjast í
Bíó Paradís í kvöld og standa yfir
til og með 15. september. Er þetta
í sjöunda sinn sem dagarnir eru
haldnir í kvikmyndahúsinu.
Kvikmyndadagarnir eru haldnir
af sendiráði rússneska sambands-
ríkisins á Íslandi í samstarfi við
Kvikmyndaframleiðslumiðstöðina
NORFEST, með fjárstuðningi frá
menningarmálaráðuneyti Rússlands
og iCan ehf., að því er segir í til-
kynningu.
75 ára afmæli sambands
Í ár er viðburðurinn tileinkaður
75 ára afmæli stjórnmálasambands
Rússlands og Íslands og á dag-
skránni er það besta úr rússneskri
kvikmyndagerð, að því er fram
kemur í tilkynningu frá kvik-
myndahúsinu. Myndirnar verða
sýndar á rússnesku með enskum
texta og er aðgangur að sýningum
ókeypis.
Myndirnar fimm eru Slony mo-
gut igrat v futbol eða Fílar geta
leikið fótbolta, Voyna Anny eða
Stríð Önnu, The Book of the Sea
eða Bók hafsins, Schaste - eto …
eða Hamingjan er … og loks heim-
ildarmyndin Íslandsferðin. Allar
eru myndirnar nýlegar.
Frekari upplýsingar um kvik-
myndahátíðina og kvikmyndirnar á
dagskrá hennar má finna á vef Bíós
Paradísar, bioparadis.is og einnig
Facebook-síðu bíósins og kvik-
myndasíðunni IMDb. Þá má finna
stiklur á vef kvikmyndahússins úr
myndunum og einnig á mynd-
bandavefnum YouTube.
Í rúminu Úr kvikmynd Mikhail Segal, Fílar geta líka spilað fótbolta.
Rússneskir kvikmynda-
dagar í Bíó Paradís
Hamingja Úr Hamingjan er … safni sjö stuttmynda um hamingjuna.
Nýr verðlaunaflokkur helgaður
leiknum sjónvarpsþáttaröðum hef-
ur verið kynntur til sögunnar hjá
Evrópsku kvikmyndaverðlaun-
unum, EFA, sem afhent verða í
Berlín 10. desember. Fyrsta röðin
sem hlýtur verðlaunin verður hin
þýska Babylon Berlin sem er jafn-
framt dýrasta sjónvarpssería í
sögu Þýskalands. Höfundar og
leikstjórar þáttanna, Achim von
Borries, Henk Handloegten og
Tom Tykwer, munu taka við verð-
laununum þremur dögum fyrir
verðlaunahátíðina, 7. desember.
Í tilkynningu frá EFA segir að
með verðlaununum sé verið að
veita þessum merkilegu þáttum
viðurkenningu þar sem þeir séu
unnir af mikilli ástríðu og ná-
kvæmni, m.a. þegar kemur að
tíðaranda og stjórnmálaástandinu í
Weimar-lýðveldinu á þriðja áratug
síðustu aldar. Hin nýju verðlaun
eiga líka að endurspegla breytt
landslag kvikmyndagerðar og þá
staðreynd að sjónvarpsþættir
verða sífellt vinsælli og framleiðsla
þeirra hefur aukist með tilkomu
streymisveitna.
Babylon Berlín fær ný verðlaun
Úr þáttunum Babylon Berlín-þættirnir þykja stórvirki.
Töluverð gróska er í útgáfuglæpasagna og nýir höf-undar koma reglulegafram á sjónarsviðið. Eírík-
ur P. Jörundsson er einn þeirra, en
Hefndarenglar, frumraun hans á
þessu sviði hlaut glæpasagnaverð-
launin „Svartfuglinn“.
Sagan hverfist um Súðavík, íbúa
þar og atvinnulíf.
Eiríkur er sagn-
fræðingur að
mennt, er frá
þorpinu, hefur
skrifað bók um
hreppinn og því
er nærtækt fyrir
hann að skrifa
skáldsögu út frá
þekkingu á stað-
háttum. Þessi grunnur skilar sér vel
í trúverðugleika frásagnarinnar.
Efnistök eru kunnugleg og hafa
verið yrkisefni margra: Fámennt
þorp, þar sem íbúar lífa fyrst og
fremst á sjávarútvegi, þar sem sjór-
inn gefur og sjórinn tekur. Valda-
mikill maður, sem ræður í raun öllu
sem hann vill ráða. Fólkið undir
hælnum á honum og þorir ekki að
gera neitt sem getur ruggað bátn-
um. En svo kemur snjóflóð, sem
veldur miklum mannskaða. Þar
kemur tenging við höfuðborgina og
Sölva blaðamann, sem er frá Súða-
vík, en þess má geta að Eiríkur var
blaðamaður á Morgunblaðinu og
þekkir því til vinnubragða á fjöl-
miðlum. Sölvi og Ísold, óreynd
starfssystir hans á blaðinu, hafa
reyndar mun meira frjálsræði og
tíma til að kafa ofan í málin en geng-
ur og gerist á eyrinni, en það er ekki
nýtt í skáldsögu.
Ferðalagið með Sölva í frásögn-
inni er skemmtilegt og spennandi.
Hann rifjar upp liðna tíð og deilir
um leið staðreyndum og öðru með
lesandanum. Höfundur gerir þetta
vel og nær ekki aðeins lesandanum
heldur heldur honum til loka.
Mál Ísoldar er ekki eins fast í
hendi, en vekur engu að síður spurn-
ingar og nær þar með tilgangi sínum
að einhverju leyti.
Eiríkur fer vel af stað með
Hefndarenglum og gaman verður að
sjá hvernig hann fylgir bókinni eftir.
Morgunblaðið/Hari
Verðlaunahafi Eiríkur hlaut glæpa-
sagnaverðlaunin Svartfuglinn í ár.
Eiríkur lofar góðu
Hefndarenglar bbbmn
Glæpasaga
Eftir Eirík P. Jörundsson.
Veröld, 2019. Kilja, 423 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
VILTU TAKAVIÐ
GREIÐSLUMÁNETINU?
KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar
bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is