Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 2
Afhentu Degi undirskriftir Morgunblaðið/Hari Vinkonurnar Lóa Margrét Hauksdóttir og Snæfríður Edda Ragnarsdóttir Thoroddsen, báðar fæddar árið 2008, gengu í gær á fund Dags B. Eggertssonar borg- arstjóra. Erindið var að afhenda honum undir- skriftalista með um 200 nöfnum þar sem uppbyggingu við Vatnshólinn við Stýrimannaskólann er mótmælt. Lóa var búin að skrifa borgarstjórn og borgarstjóra oftar en einu sinni en fékk engin svör. Þá fékk hún Snæfríði og fleiri í lið með sér við undirskriftasöfn- unina og bað um áheyrn hjá borgarstjóra. Þær eru í Háteigsskóla og vöktu athygli á því að skólinn væri orðinn of lítill. Þá væru umferðarslys við Háteigsskóla of tíð og því þyrfti að skoða umferð- arhraða og merkingar við skólann. gudni@mbl.is Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann- esson, og eiginkona hans, Eliza Reid, voru viðstödd krýningar- athöfn Naruhitos Japanskeisara og Masako keisaraynju í gær. Athöfnin fór fram í keisarahöll- inni í Tókýó að viðstöddum um 2.500 gestum. Þeirra á meðal voru um 180 þjóðarleiðtogar og fulltrúar ríkja hvaðanæva úr heiminum. Naruhito tók við keisaratign af Aki- hito föður sínum í apríl en var krýndur formlega í gær. Forseti Íslands ætlar að eiga fund með forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, í dag. Á morgun mun forsetinn svo eiga fund með forseta neðri deildar japanska þjóðþings- ins, Tadamori Oshia. gudni@mbl.is Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Viðstödd krýningu keisarans 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Tenerife Castle Harbour aaa ÚTSALA HAUST 2 fyrir 1 2 fyrir 1 13. NÓVEMBER 7 NÆTUR Verð frá kr. 84.945 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Gerð fyrstu útgáfu viðbragðsáætlun- ar vegna svokallaðra CBRNE-atvika er lokið og var hún kynnt á vef land- læknis í vikunni. Um er að ræða flokkun á atvikum er varða lýðheilsu- ógnir af völdum efnamengunar, sýkla og geislunar. Markmið viðbragðs- áætlunarinnar er að auka almenna og sérhæfða þekkingu á slíkum at- vikum til að tryggja hnökralaus við- brögð sem lágmarka áhrif smits, mengunar, geislunar eða annarra óvæntra atvika sem upp kunna að koma. „Alþjóðaumhverfið er að breytast og við erum berskjaldaðri fyrir alls konar ógnum,“ segir Íris Marelsdótt- ir, verkefnisstjóri á sóttvarnasviði embættis landlæknis, sem vann að gerð viðbragðsáætlunarinnar. Íris segir að áætlunin hafi verið unnin annars vegar vegna alþjóðlegr- ar kröfu um að þjóðir eigi slíka áætl- un en einnig til að bregðast við nýj- um ógnum og loftslagsbreytingum. „Alþjóðleg ógn eykst. Þekking á hryðjuverkum færist á milli landa. Hitt er svo að við erum að horfast í augu við endurteknar sýkingar hér á landi. Með áætluninni tekst vonandi að skýra til hvaða ráða á að grípa, hver er ábyrgur þegar eitthvað kem- ur upp og bæta samvinnuna á milli þeirra sem bregðast við.“ Í viðbragðsáætluninni eru tiltekin nokkur dæmi um CBRNE-atvik á Ís- landi á liðnum árum. Þar á meðal þegar nóróveirusýking kom upp í sumarbúðum skáta á Úlfljótsvatni sumarið 2017 og 181 barn var fært í fjöldahjálparstöð í Hveragerði. Eins þegar tæplega fimmtíu veiktust eftir að hafa snætt nóróveiruumengaðar ostrur á Skelfiskmarkaðnum síðasta vetur og þegar 24 veiktust eftir að saurgerlamengun kom upp í Efstadal II á Suðurlandi í sumar. Af fleiri dæmum má nefna ösku- fallið sem varð í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli vorið 2010 og eldsvoð- ana í Skeifunni sumarið 2014 og í húsnæði Geymslna og Icewear í Garðabæ vorið 2018. Handbók CBRNE, sem gefin er út samhliða þessari áætlun, er fyrir við- bragðsaðila á vettvangi en það eru slökkvilið, heilbrigðisstarfsmenn, lög- regla og björgunarsveitir. Handbók- in tekur til viðbragða frá því að útkall berst og nær til fyrstu 30 mínútna á CBRNE-vettvangi og eftir það tekur þessi áætlun við sem leiðbeinandi rit. Bókin verður gefin út á prenti í lok ársins og í appi á næsta ári. Þegar verður hafist handa við að innleiða áætlunina og er stefnt að lokum þess ferlis í byrjun árs 2020. Kynningar verða haldnar í öllum lög- regluumdæmum á næstu vikum í samráði við þar til bær lögreglu- og heilbrigðisyfirvöld. Berskjölduð fyrir alls konar ógnum  Viðbragðsáætlun vegna efnamengunar, sýkla og geislunar kynnt  Brugðist við nýjum ógnum og endurteknum sýkingum  Handbók fyrir viðbrögð á vettvangi  Kynnt um land allt á næstu vikum Morgunblaðið/Ómar Öskufall Eldgos í Eyjafjallajökli leiddi af sér mikið öskufall sem flokkast sem CBRNE-atvik. Á myndinni er verið að taka sýni úr öskunni sem féll á Mýrdalssandi. Þau fóru í efnagreiningu til að kanna hversu mikil hætta stafaði af. 100 ára afmælisátaki Barnaheilla – Save the Children var hleypt af stokkunum í Smáralind í byrjun október. Tæplega 600 manns „und- irrituðu“ á táknrænan hátt áskorun um að stöðva stríð gegn börnum. Fulltrúar Barnaheilla – Save the Children ætla að afhenda Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra áskorunina. Jafnframt verður hann beðinn að beita sér fyrir því á al- þjóðavettvangi að stöðva stríð gegn börnum og vinna að því að Ísland verði í fararbroddi í slíkri vinnu. Afhendingin fer fram klukkan 11.00 á morgun í Garði norður á 2. hæð utanríkisráðuneytisins. Fólk er beðið að skrá þátttöku með tölvu- pósti til ghjohanns@barnaheill.is. Afhenda áskorun  100 ára afmælis- átak Barnaheilla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.