Morgunblaðið - 23.10.2019, Side 4

Morgunblaðið - 23.10.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 NÝJ UNG ! Hlæðu, hoppaðu, hóstaðu og hnerraðu áhyggjulaus! Öruggar þvaglekavörur Extra rakadræg 100% Lyktarvörn Passa frábærlega Fáir einstaklingar hafa nýtt sér það úrræði að hefja töku hálfs ellilífeyris almannatrygginga við 65 ára aldur samhliða áframhaldandi starfi á vinnumarkaði eða á móti töku hálfs lífeyris frá lífeyrissjóðum, frá því að þetta var heimilað 1. janúar 2018. Tilgangur þessarar heimildar er að auka sveigjanleika við starfslok. Félagsmálaráðherra hefur nú birt frumvarpsdrög í samráðsgátt stjórn- valda um breytingar á skilyrðum þess að hefja töku hálfs lífeyris 65 ára og er markmiðið að fleiri ein- staklingar sem náð hafa ellilífeyris- aldri eigi þess kost að sækja um hálf- an ellilífeyri. Fram kemur í greinargerð að aðeins 38 einstak- lingar fá nú greiddan hálfan elli- lífeyri frá Tryggingastofnun. Fram kemur í skýringum að ljóst sé að mjög fáir einstaklingar hafi uppfyllt skilyrði gildandi laga eða fólk hafi af einhverjum öðrum ástæð- um ákveðið að nýta sér ekki þetta úr- ræði. Því þyki ástæða til að draga úr þeim kröfum sem gerðar séu í gild- andi lögum, þannig að fleiri einstak- lingum verði gert kleift að fá greidd- an hálfan lífeyri. Jafnframt verði þó gerð krafa um starfssamband eins og það er orðað og að greiðslur verði tengdar við aðrar tekjur lífeyrisþega með háu frítekjumarki. Þröskuldurinn sem staðið hefur í vegi þess að fleiri geti fengið hálfan lífeyri er það skilyrði sem sett er í dag að samanlagður áunninn réttur til ellilífeyris frá lífeyrissjóðum og frá almannatryggingum verði að nema að lágmarki fjárhæð fulls elli- lífeyris almannatrygginga, sem er í dag 248.105 kr. Er á það bent í skýr- ingum að sjóðfélagar í lífeyrissjóðum þurfi að eiga töluverð réttindi í líf- eyrissjóðum til þess að geta nýtt sér úrræðið en að þeir sem eigi tak- mörkuð réttindi eigi ekki kost á töku hálfs lífeyris. Fáir hafi uppfyllt þetta skilyrði og því sé rétt að draga úr þeim kröfum sem gerðar séu. Ekki í meira en 50% starfi Fyrirkomulagið hefur verið þann- ig að greiðslur hálfs lífeyris eru ótekjutengdar og ekkert skilyrði hefur verið sett um að viðkomandi einstaklingur sé enn á vinnumarkaði eða að hann minnki starfshlutfall sitt til að fá hálfan lífeyri. Tekjuháir ein- staklingar, sem að óbreyttu ættu ekki rétt á lífeyrisgreiðslum al- mannatrygginga vegna tekjuteng- inga, hafi þannig getað notið þessara greiðslna. Þessu á að breyta skv. frumvarpsdrögunum og jafnframt verði framvegis ekki mögulegt að vera í fullri vinnu samhliða töku hálfs lífeyris. Starfshlutfallið megi ekki vera meira en 50% á vinnu- markaði til að eiga rétt á töku hálfs lífeyris. 38 einstaklingar fá hálfan lífeyri  Gera á fleiri kleift að nýta sér úrræðið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Dýr sem komið hafa á land í hval- rekum eða hvalavöðum og drepist eða verið aflífuð hafa sennilega sjaldan eða aldrei verið fleiri síðustu áratugi. Þar eru grindhvalir í miklum meiri- hluta, en alls hafa 136 grindhvalir synt á land í ár og drepist eða verið aflífaðir, en voru sex allt árið í fyrra. Í nokkrum til- vikum tókst að reka grindina aft- ur á haf út og þau dýr eru því ekki talin með í heild- artölu dauðra dýra. Nokkur dæmi eru um að stöku grindhvalur hafi strandað ekki ýkja langt frá þeim stað þar sem hvalavaða gekk á land skömmu áður og gætu þeir því til- heyrt þeim hópum. Fjölgun um rúmlega 100 dýr Að sögn Sverris Daníels Halldórs- sonar, líffræðings hjá Hafrannsókna- stofnun, hafa alls 153 dýr verið færð til bókar um hvalreka hjá stofnuninni á þessu ári og eru þau rúmlega 100 fleiri en í fyrra. Hvalir af öðrum teg- undum en grindhvölum eru nokkru færri en í fyrra og sérstaklega hefur andarnefjum fækkað. Þær voru 23 í fyrra en einungis tvær í ár, sem er á svipuðu róli og undanfarinn áratug. Aðrir frekar sjaldgæfir svínhvalir eins og norðsnjáldri og skugganefja hafa ekki fundist á fjörum á þessu ári en voru sex í fyrra. Oft er mest um hvalreka síðsumars en þeir verða þó allan ársins hring. Mögulegt er að aukin útivera á sumr- in hafi áhrif á fjölda tilkynninga sem berast stofnuninni. Í Friðarhöfn og Fossvogi Stærstu einstöku atburðir það sem af er þessu ári voru í byrjun septem- ber á Langanesi þegar 62 grindhvalir strönduðu og drápust eða voru aflíf- aðir á staðnum. Yfir 50 grindhvalir strönduðu í fjörunni við Útskála- kirkju í Garði á Reykjanesi í byrjun ágúst og varð 20 þeirra ekki bjargað. 50 dýr uppgötvuðust á Gömlueyri á Löngufjörum í byrjun júlí og höfðu augljóslega drepist þar allt að mánuði áður. Var það þá talinn mesti hvalreki hérlendis frá árinu 1986 er 148 hvalir gengu á land austan Þorlákshafnar og drápust. Spurður um skýringar á miklum fjölda grindhvala á þessu ári segir Sverrir að þær séu ekki ljósar en margar kenningar hafi verið settar fram. Ekki sé vitað um miklar breyt- ingar á dreifingu grindhvals í NA- Atlantshafi en gögn sýni að miklar sveiflur séu í komum grindhvala upp að landinu. Sverrir rifjar upp að stórar hjarðir hafi verið reknar á land á árum áður. Þannig hafi um 400 dýr verið rekin inn í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum 1958, þar sem um 200 þeirra voru aflífuð. Einnig má nefna að 67 grindhvalir voru reknir inn í Fossvoginn árið 1934. Hernaðarumsvif á norðurslóðum Varðandi mikinn fjölda andarnefja og annarra svínhvala í fyrra hafi menn m.a. leitað skýringa í hernaðar- umsvifum í norðurhöfum á síðasta ári. Heræfingar gætu hafa drepið eða hrakið þessar úthafstegundir upp að landi. Ekki aðeins hafi mörg dýr rekið á land víða við Norður-Atlantshaf heldur hafi einnig borist margar frétt- ir af andarnefjum syndandi inni á fjörðum hér við land, en vitað er að öflugir hljóðgjafar sem notaðir eru við heræfingar valda skemmdum á innra eyra hvala, að sögn Sverris. Andarnefja Grindhvalur Fjöldi dýra Hvalrekar Fjöldi dýra Hvalrekar 2009 1 1 2010 1 1 2011 1 1 1 1 2012 2 2 2 2 2013 59 7 2014 3 3 2015 1 1 1 1 2016 1 1 6 6 2017 2 2 1 1 2018 23 17 6 6 2019* 2 2 136 14 Alls 34 28 215 41 2018 2019* Fjöldi dýra Hvalrekar Fjöldi dýra Hvalrekar Andarnefja 23 17 2 2 Búrhvalur 3 3 5 5 Grindhvalur 6 6 136 14 Háhyrna 1 1 2 2 Hnísa 1 1 1 1 Hnúfubakur 3 3 2 2 Hnýðingur 2 2 1 1 Hrefna 3 3 2 2 Langreyður 1 1 Norðsnjáldri 2 2 Ógreind tegund 1 1 2 2 Rákahöfrungur 1 1 Skugganefja 4 4 Alls 51 45 153 31 Hvalrekar 2009-2019 Mikill fjöldi grind- hvala en fá svínhveli  153 dýr skráð  Heræfingar gætu truflað andarnefju Sverrir Daníel Halldórsson Baldur Arnarson baldura@mbl.is Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, segir aukna notkun áls í drykkjarumbúðir í Bandaríkjunum og Evrópu munu hafa áhrif á útflutnings- markaði Íslands fyrir ál. Tilefnið er um- fjöllun í Wash- ington Post um aukna notkun áls í drykkjarumbúðir á kostnað plasts. Til dæmis hafi Coca Cola skýrt frá því í ágúst að það muni framvegis selja Dasani-vatn í áldósum. Jafnframt hafi PepsiCo áform um að selja Aqua- fina-vatn í áldósum á veitingahúsum og íþróttaleikvöngum vestanhafs. „Ef þróunin er í þessa átt mun það teygja sig til Evrópu. Ál er hráefni sem er selt á heimsmarkaði og flæðir vel milli markaða,“ segir Pétur. Tollmúrar hafa áhrif Evrópa hafi verið lykilmarkaður fyrir ál frá Íslandi. Lítið hafi verið flutt út af áli til Bandaríkjanna. „Nú þegar Bandaríkin hafa sett toll- múra gagnvart kínverskum álfram- leiðendum, sem framleiða yfir helming af öllu áli í heiminum, hefur það ál fundið sér annan farveg. Þá leitar það meðal annars til Evrópu. Aukið fram- boð hefur auðvitað áhrif á álmarkaðinn í Evrópu, sem er lykilmarkaður fyrir ál frá Íslandi, og telja greinendur það spila inn í að álverð haldist lágt í álf- unni. Ef Ísland gerir fríverslunar- samning við Bandaríkin, eins og talað er um núna, og ef álið héðan yrði innan tollamúra þar, gætu auðvitað opnast markaðir.“ Ógnar stöðu plastsins Telur Washington Post að vaxandi notkun áls ógni sterkri stöðu plastsins á bandarískum drykkjarvörumarkaði. Bróðurparti plasts hafi verið hent með tilheyrandi umhverfistjóni. Banda- rísku álsamtökin áætli að næstum 50% áldósa séu endurunnin en til saman- burðar sé hlutfallið 29% í plastflösk- um. Þá er bent á að matvörurisarnir Nestle og Unilever áformi að gera um- búðir endurvinnanlegar, eða endur- nýtanlegar, að kröfu neytenda. Loks er bent á þá spá fyrirtækisins Harbor Intelligence að eftirspurn eftir áli í dósir á Bandaríkjamarkaði muni aukast um 3%-5% á ári fram til 2025, hið minnsta, á kostnað plasts. Frétta- veitan Bloomberg fjallar líka um mál- ið. Þar segir að því sé spáð að hlutfall innflutts áls í áldósum í Bandaríkjun- um muni hækka á næstu árum. Hlut- fallið verði um 15% í ár eða ríflega tvö- falt hærra en 2017. „Það hefur auðvitað jákvæð áhrif á álmarkaðinn ef eftirspurn eykst eftir áli. Hlutfall áls sem er endurunnið er um 75% í Evrópu og fer hækkandi. Hlutfallið er mun hærra hér og á Norðurlöndum eða vel yfir 90%. Þetta háa hlutfall skýrir aukna eftirspurn. Framleiðendur drykkjarvara vilja vera með sjálfbæra vöru. Einn helsti styrkleiki áls er einmitt að hægt er að endurvinna það aftur og aftur án þess að það tapi upprunalegum gæðum. Svo dregur endurvinnsla verulega úr losun, því þegar ál er endurunnið þarf einungis 5% af orkunni sem fór í að framleiða það upphaflega. Það vill stundum gleymast að al- mennt er það orkuvinnslan sem losar mest í framleiðslu áls, t.d. í Kína þar sem framleiðslan er að mestu koladrif- in. Það er því geysilegur orkusparn- aður fólginn í því að endurvinna ál. Stundum er rætt um ál sem orku- banka í þeim skilningi,“ segir Pétur. Gæti styrkt íslenskan áliðnað  Drykkjarvörurisar í Bandaríkjunum velja ál í stað plasts  Greinendur spá enn meiri notkun áls  Framkvæmdastjóri Samáls segir endurvinnanleika áls styrkja stöðu þess í samkeppninni við plast Úr áli Coke selur Dasani-vatn. Pétur Blöndal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.