Morgunblaðið - 23.10.2019, Side 6

Morgunblaðið - 23.10.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Stytting vinnuvikunnar er meðal helstu breytinga sem samið var um í nýgerðum kjarasamningi Samninga- nefndar ríkisins og fimm stéttar- félaga innan BHM aðfaranótt mánu- dags. Sverrir Jónsson, formaður samn- inganefndar ríksins, segir að vinnu- tímastyttingin sé á sömu nótum og vinnutímabreytingarnar sem samið var um í lífskjarasamningunum á al- mennum vinnumarkaði sl. vor. „Þetta er í anda þess meginmark- miðs að samræma kjör og aðstæður á milli vinnumarkaða,“ segir hann. „Við náðum að stytta vinnuvikuna og tryggja kaupmátt og ýmsar fleiri breytingar verða gerðar sem eiga að stuðla að bættu starfsumhverfi og betri samræmingu á milli fjölskyldu- lífs og atvinnulífs,“ segir hann. Samkomulagið varðar fyrst og fremst starfsfólk í dagvinnu Samningurinn gildir til marsloka árið 2023. Nota á næsta ár til undir- búnings og innleiðingar breytinga á vinnutíma með samtölum á milli stjórnenda og starfsfólks og segir Sverrir þær fela í sér mikil tækifæri til umbóta í starfsemi ríksins. „Samn- ingurinn sem gerður var um helgina og vinnutímabreytingarnar varða fyrst og fremst fólk í dagvinnu. Það þarf líka að bæta starfsumhverfi vaktavinnufólks og nú getum við beint athyglinni að því. Það mun samninganefnd ríkisins gera í nánu samráði og samstarfi við heilbrigðis- ráðuneytið og dómsmálaráðuneytið þar sem stærstu vaktavinnuhóparnir eru,“ segir Sverrir. Alls gerir ríkið um 60 kjarasamn- inga við um 100 stéttarfélög með um 20 þúsund félagsmenn. Félögin sem sömdu við ríkið um helgina eru Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, Félag íslenskra fé- lagsvísindamanna, Fræðagarður, Stéttarfélag bókasafns- og upplýs- ingafræðinga og Stéttarfélag lög- fræðinga. Í þeim eru samtals um 2.300 félagsmenn sem starfa á vel- flestum stofnunum ríkisins. Bragi Skúlason, formaður Fræða- garðs, stéttarfélags háskólamennt- aðra, segir að nýgerður samningur verði kynntur félagsmönnum á næstu dögum áður en atkvæða- greiðsla um hann fer fram og gat Bragi því ekki rætt innihald samn- ingsins fyrr en félagsmenn hefðu fengið tækifæri til að kynna sér hann. Félagsmenn í Fræðagarði eru ríf- lega 2.600 talsins og starfa þeir hjá ríki, sveitarfélögum og á almennum vinnumarkaði. Nær samningurinn sem náðist um helgina til rúmlega 800 félagsmanna Fræðagarðs sem starfa hjá ríkinu. Rúmlega 20 BHM-félög semja við ríkið og er því ósamið við fjölda fé- laga háskólamanna, sem hafa verið í viðræðum í hópum eftir því sem ástæða hefur þótt til en samnings- umboðið er hjá hverju og einu félagi. Maríanna H. Helgadóttir, formað- ur Félags íslenskra náttúrufræðinga, sem er eitt þeirra félaga sem ekki hafa lokið samningum við ríkið, sagði í gær að FÍN væri hluti af svoköll- uðum BHM-08-hópi, þ.e. félögum sem hafa haldið hópinn í viðræðunum við ríkið. „Engin breyting hefur orðið hjá okkur. Við erum ekki búin að ná samningum við samninganefnd rík- isins,“ sagði hún. Stytta vinnuviku og tryggja kaupmátt  Engin breyting hefur orðið hjá okk- ur, segir formaður FÍN um stöðuna Morgunblaðið/Golli Kjaramál Viðræður BHM og SNR fara fram í húsi Ríkissáttasemjara. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Samgöngustofa hefur afturkallað fyrri ákvörðun sína í máli flugfarþega sem kvörtuðu undan þjónustu flug- félagsins SAS. Farþegarnir áttu bók- að flug með SAS frá Keflavík til Ósló- ar 29. júní 2018 en komu þeirra á áfangastað seinkaði um fjórar klukkustundir. Fóru þeir fram á staðlaðar skaðabætur á grundvelli Evrópureglugerðar. Í fyrri úrskurði hafnaði Samgöngustofa því að fólkið ætti rétt á bótum en sneri úrskurð- inum við fyrr í þessum mánuði. Seinkun á komu fólksins var meðal annars rakin til tæknilegrar skoð- unar sem ráðist var í á vélinni eftir að fugl fór í hreyfil hennar í fyrra flugi. SAS útvegaði nýja flugvél fyrir far- þega en sú var með færri sæti en upp- haflega vélin og því komust ekki allir farþegar með. Fólkið sem kvartaði var í þeim hópi og seinkaði för þess um fjóra tíma af þeim sökum. Í umsögn SAS kemur fram að fé- lagið telji sig hafa gert allt sem í valdi þess stóð til að takmarka seinkun á komu fólksins á lokaákvörðunarstað. Telur félagið að það að fugl fari í hreyfil flugvélar flokkist undir óvið- ráðanlegar aðstæður sem leysi fyrir- tækið undan bótaábyrgð vegna seink- unar komu fólksins á loka- ákvörðunarstað. Samgöngustofa gaf út ákvörðun í málinu hinn 25. september síðastlið- inn og var niðurstaðan sú að flug- félagið væri ekki bótaskylt gagnvart umræddum flugfarþegum. Sú ákvörðun var afturkölluð 11. október á þeirri forsendu að gögn flugfélags- ins hefðu ekki verið metin rétt. Telur Samgöngustofa nú að ekki hafi verið réttmætar ástæður fyrir neitun á fari með seinni flugvélinni og skal SAS greiða hvorum farþega um sig 400 evrur í skaðabætur. Afturkalla ákvörðun um bætur flugfarþega  Flugfélagið SAS þarf að greiða tveim- ur farþegum bætur Leifsstöð Fólk á faraldsfæti. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hljómur langspilsins er dularfullur og fallegur, rétt eins og hann komi úr annarri veröld. Strax þegar ég handlék hljóðfærið í fyrsta sinn var ég heillaður, bæði af möguleikum þess og síðan þeirri merkilegu sögu og menningu sem að baki býr,“ segir Eyjólfur Eyjólfsson óperusöngvari. Með þremur strengjum Nú um helgina, 26. og 27. október, verður efnt til tónlistarhátíðar til- einkaðrar langspilinu í Íslenska bænum í Austur-Meðalholtum í Flóa, skammt frá Selfossi. Þar koma fram ýmsir tónlistarmenn auk þess sem sýnd verða átján langspil sem nem- endur í 6. og 7. bekk í Flóaskóla smíðuðu undir handleiðslu Eyjólfs Eyjólfssonar síðasta vetur. Á laugar- dag verða svo í Austur-Meðalholtum tvennir tónleikar með langspilsleik, og þeim síðari, sem hefjast klukkan 20:30, mun svo væntanlega ljúka með dansiballi. Áhugi Eyjólfs á langspilinu vakn- aði fyrir um tíu árum og fljótlega eignaðist hann slíkan grip. Smíðaði sér síðan sjálfur hljóðfæri; stokk með þremur strengjum sem leika má á af mikilli list. Í meistaranámi í þjóðfræði við Háskóla Íslands hefur Eyjólfur svo rannsakað þennan þátt tónlistarsögunnar, hljóðfæri sem hugsanlega hafi komið með þýskum hansakaupmönnum til Íslands fyrr á öldum. Fyrir nokkrum árum hóf hann síðan samstarf við þau Hannes Lárusson og Kristínu Magnúsdóttur sem hafa byggt upp Íslenska bæinn; menningarsetur sem tileinkað er ís- lenska torfbæjararfinum. Í sýningarskálanum þar verða hljóð- færin til sýnis og svo hefur verið efnt til samstarfs við fólkið í sveitinni. Tónar og laglína „Þetta hefur verið eitt stórt ævin- týri,“ segir Eyjólfur. „Í Flóaskóla var strax áhugi á samstarfi og krakkarnir voru áhugasöm þegar þau smíðuðu langspil undir minni leiðsögn. Smíðin var þó aðeins fyrsta skrefið; að undanförnu hef ég verið að kenna þeim undirstöðuatriðin í að ná fram tónum og laglínu. Einnig höfum við í kennslunni vikið aðeins að menningarsögunni þar sem hljóð- færið skipar stóran sess. Afrakstur þess má heyra um helgina,“ segir Eyjólfur um Langspilsvöku 2019 – sem til stendur að verði árlegur við- burður héðan í frá. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tónlistarmaður Eyjólfur óperusöngvari hér með langspilið sitt góða. Hjómur úr annarri veröld Ljósmynd/Aðsend Flóaskóli Ungir efnilegir hljóðfærasmiðir með Eyjólfi leiðbeinanda sínum.  Langspilshátíð í Flóa  Skólabörn smíða hljóðfæri VR óskar eftir orlof VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. nóvember 2019. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími 510 1700 • vr@vr.is • vr.is • Lýsing á eign og því sem henni fylgir • Ástand íbúðar og staðsetning • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Öllum tilboðum verður svarað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.