Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
Flest höfum við fengið okk-ar barnabólusetningar íungbarnaeftirliti heilsu-gæslunnar. Á fullorðins-
árum er það oft fyrst þegar við för-
um að leita út fyrir landsteinana á
vit hinna ýmsu ævintýra að við för-
um að velta fyrir
okkur hvaða
bólusetningar við
höfum þegar
fengið. Fyrir
slíkar ferðir þarf
gjarnan að bæta
við eða endur-
nýja bólusetn-
ingar í ljósi land-
lægra sjúkdóma í
öðrum löndum.
Þegar líður á æv-
ina og fólk nær 60 ára aldri þarf að
nýju að huga að bólusetningum.
Besta forvörnin
Haustinu fylgja oft öndunarfæra-
sýkingar og önnur veikindi og á
vetrarmánuðum má búast við inflú-
ensu sem kemur sem faraldur
hvern vetur hér á landi líkt og ann-
ars staðar. Börn og eldra fólk auk
fólks með undirliggjandi sjúkdóma
er í mestri hættu á alvarlegri fylgi-
kvillum inflúensu. Því er mælst til
að þessir hópar njóti forgangs í
bólusetningum. Besta forvörnin
gegn alvarlegum fylgikvillum inflú-
ensunnar og dauðsföllum er bólu-
setning.
Geta valdið slæmum sýkingum
Þótt flensan sé algeng og landlæg
ár hvert þá eru einnig aðrar bólu-
setningar sem huga þarf að hjá full-
orðnu fólki og ber þar að nefna
lungnabólgubólusetninguna svoköll-
uðu sem veitir vörn gegn bakteríum
sem kallast pneumókokkar.
Bakterían getur valdið alvarlegri
sýkingu í lungum, miðeyra og kinn-
holum. Ef illa fer getur bakterían
einnig valdið sýkingu í blóði og
jafnvel heilahimnubólgu. Oft er það
svo að fólk veikist fyrst með venju-
legri kvefpest en pneumókokkar
koma svo í kjölfarið með alvarlegri
veikindum. Bakterían smitast með
úðasmiti á milli manna, til dæmis ef
smitaður einstaklingur eða beri
hóstar nálægt öðrum og heldur ekki
fyrir munn og nef.
Þessa bakteríu er í raun að finna
í nefi og koki hjá hraustu fólki á öll-
um aldri en á viðkvæmum aldri eða
þegar herjar á ónæmiskerfið af öðr-
um orsökum geta þær valdið slæm-
um sýkingum. Sjúkdómar af völd-
um pneumókokka geta orðið
alvarlegir og jafnvel lífshættulegir
hjá þeim sem eru viðkvæmir fyrir.
Eru það helst ung börn og ein-
staklingar komnir yfir sextugt en
einnig einstaklingar með undir-
liggjandi ónæmisvanda eða lang-
vinna sjúkdóma (sjá betur að neð-
an). Að jafnaði greinast um 50
einstaklingar með alvarlega sýkingu
af völdum pneumókokka á Íslandi
ár hvert og eru flestir þeirra sem
greinast 60 ára og eldri.
Vörn gegn bakteríunum
Auk almenns hreinlætis er sterk-
asta forvörnin gegn pneumókokka-
sýkingum bólusetningin gegn þeim
og er mælt með að þeir ein-
staklingar sem hafa aukna áhættu
fái hana. Um ræðir eftirfarandi
hópa fullorðinna samkvæmt upplýs-
ingum frá Landlækni:
Allir fullorðnir 60 ára og eldri.
Fullorðnir (19 ára og eldri)
með aukna áhættu á alvarlegum
pneumókokkasýkingum. Hér á við
fólk með undirliggjandi ónæmis-
vandamál, meðfædda hjartagalla
með bláma, hjartabilun, króníska
lungnasjúkdóma, mænuvökvaleka
eða ígræðslu á heyrnarbeini eða
kuðungi.
Til eru ýmsir stofnar af bakt-
eríunni og veitir bólusetningin vörn
gegn þeim hættulegustu. Til eru
tvær tegundir bóluefnis, annars
vegar bóluefni ætlað fullorðnum og
hins vegar bóluefni sem sérstaklega
er hannað fyrir börn yngri en fimm
ára. Það síðarnefnda hefur verið
hluti af ráðlögðum bólusetningum
barna frá árinu 2011. Ef ein-
staklingur hefur fengið lungna-
bólgubólusetningu eftir sextugt
þarf ekki að endurtaka hana. Hægt
er að fá lungnabólgubólusetningu á
þinni heilsugæslu.
Á vefnum heilsuvera.is má lesa
meira um bólusetningar fullorðinna.
Bólusetningar fullorðinna
Morgunblaðið/Hari
Sprauta Þótt flensan sé algeng og landlæg ár hvert eru einnig aðrar bólusetningar sem huga þarf að hjá fullorðnum. Þórunn
Jónsdóttir
Heilsuráð
Þórunn Jónsdóttir, sérnámslæknir í
heimilislækningum, Heilsugæslunni
Glæsibæ
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Nú á fimmtudagskvöld, milli klukk-
an 17.30 og 21.30, er opið í Hall-
grímskirkju í Reykjavík undir merkj-
um kvöldkirkjunnar. Þetta eru
kyrrðarstundir þar sem fólk kemur
inn í rökkvaða kertaprýdda kirkjuna
og getur átt þar stund með sjálfu
sér við trúarlega íhugun eða annað.
Stundir þessar eru samvinnuverk-
efni presta Hallgrímskirkju og Dóm-
kirkju. Kvöldkirkja verður um sinn
mánaðarlega, fyrst í Hallgrímskirkju
og síðan í Dómkirkjunni einnig.
„Tilgangur kvöldkirkjunnar er að
opna trúarheiminn fyrir fólki, sem
finnur sig ekki í venjulegu helgi-
haldi,“ segir sr. Sigurður Árni Þórð-
arson, sóknarprestur í Hallgríms-
kirkju.
Norræn fyrirmynd
Kvöldkirkjan, sem byggist á nor-
rænni fyrirmynd, verður í þrjú
skipti í Hallgrímskirkju nú á haust-
dögum, það er fimmtudagana 24.
október, 21. nóvember og 12. des-
ember. Helgihaldið annast sr. Sig-
urður Árni og sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir, sem einnig þjónar við
Hallgrímskirkju, og prestar Dóm-
kirkjunnar; þau sr. Elínborg Sturlu-
dóttir og sr. Sveinn Valgeirsson.
Dómkirkjuprestar verða svo með
kvöldkirkju í sínum ranni á nýju ári
þegar komin er reynsla á starfið.
Í Hallgrímskirkju hafa kirkjuverð-
irnir haft veg og vanda af því að
skapa kvöldkirkjunni umgjörð og
ramma. Fremstur í þeim flokki er
Grétar Einarsson. „Fjöldi fólks upp-
lifir samskipti fólks í kringum okkur
yfirborðsleg og ekki nærandi. Við
prestarnir vitum að margir leita
einhvers sem er djúptækt og per-
sónulega gefandi í glundroða nú-
tímans. Allir vilja jákvæða reynslu
sem ógnar ekki eða spillir, heldur
róar og kyrrir. Sunnudagsmessur og
kyrrðarstundir dagkirkjunnar höfða
ekki til allra. Kvöldkirkjan er öðru
vísi en venjulegu helgistundirnar
sem fólk hefur áður upplifað,“ segir
sr. Sigurður Árni og heldur áfram:
Iðka bænir með ýmsu móti
„Fólk er ekki bundið við kirkju-
bekkina, heldur hefur möguleika á
að ganga um kirkjurýmið, setjast
niður, færa sig og finna nýja staði.
Svo hefur fólk möguleika á að tjá
sig og tilfinningar sínar, skila inn í
helgirýmið spurningum, líka reiði
og sekt, sem sé túlka stóru lífs-
málin og skila þeim til Guðs. Til-
finningarnar má svo líka setja á
blað. Bænir eru sem sé tjáðar og
iðkaðar með ýmsu óhefðbundnu
móti í kvöldkirkjunni.“
Fyrsta Kvöldkirkjan á fimmtudag í Hallgrímskirkju
Ró og trúarleg íhugun í rökkv-
aðri kertaprýddri kirkjunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Prestur Séra Sigurður Árni Þórð-
arson kveikir á kertunum.
Leyndardómar Grafarvogs er yfir-
skrift ljósmyndasamkeppni sem
Borgarbókasafnið í Spönginni efnir
til meðal íbúa í hverfinu um þessar
mundir. Í tilkynningu segir að í
byggðinni, sem nú er orðin gróin og
falleg, megi finna skrýtin skúmaskot
og skemmtilegar byggingar, króka-
leiðir og kostuleg sjónarhorn, sem
tilvalið sé að mynda. Hægt er að
senda myndir á netfangið
spongin@borgarbokasafn.is til 18.
nóvember næstkomandi. Hinn 5.
desember verður tilkynnt um verð-
launahafa og opnuð sýning á inn-
sendum ljósmyndum á safninu í
bókasafninu og menningarhúsinu í
Spönginni.
Grafarvogsmyndir
Leyndardómar
Grafarvogur Horft yfir Húsahverfið.
Landvernd er 50 ára um þessar
mundir og þeim tímamótum verður
fagnað á afmælisdaginn sjálfan,
næstkomandi föstudag 25. október,
með afmælishátíð og ráðstefnu í
Norræna húsinu í Reykjavík. Yfir-
skrift afmælisráðstefnunnar, sem
hefst kl. 14.30, er Sigrar og ósigrar í
íslenskri náttúruvernd í 50 ár. Meðal
þeirra sem taka til máls eru Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Ís-
lands, og Guðmundur Ingi Guð-
brandsson umhverfisráðherra. Eftir
ráðstefnu er hátíðarfundur þar sem
til máls taka rithöfundarnir Andri
Snær Magnason og Steinunn Sigurð-
ardóttir.
Landvernd 50 ára
Tímamót
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Tillögur þurfa að berast fyrir 29. október
2019 merktar „Loftslagsviðurkenning
2019“ á netfangið usk@reykjavik.is
eða með pósti til Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 12–14, 105 Reykjavík.
Loftslagsviðurkenningin verður afhent
á loftslagsfundi Reykjavíkurborgar og
Festu 29. nóvember 2019.
Nánari upplýsingar:
reykjavik.is/loftslagsvidurkenning
Loftslagsviðurkenning
Reykjavíkurborgar og Festu
– tilnefningar óskast
Leitað er eftir tilnefningum um fyrirtæki,
félagasamtök, stofnanir eða einstaklinga
vegna loftslagsviðurkenningar. Tilnefning-
arnar geta verið frá aðilunum sjálfum eða
öðrum. Óskað er eftir rökstuðningi með
tilnefningunni og bent er á að hægt er
að styðjast við eyðublað á vefsíðunni
reykjavik.is/loftslagsvidurkenning.
Markmið viðurkenningarinnar er að vekja
athygli á því sem vel er gert í loftslags-
málum og vera hvatning til annarra.