Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 22

Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 brottfararfarþega krossast, sem flækir rekstur, hindrar flæði farþega og eykur álag á starfsfólk. Á árunum 2017 og 2018 var unnið að tillögu sem miðaði að því að nú- verandi bygging yrði betrumbætt og lagfærð. Aðaluppdrættir byggðir á tillögunni voru samþykktir sumarið 2018 af Reykjavíkurborg og fram- kvæmdaleyfi veitt. Nánari ástandsskoðun samhliða verkhönnun leiddi hins vegar í ljós að núverandi flugstöð er í mun verra ástandi en talið var í upphafi og því nauðsynlegt að endurnýja bygging- una í meira mæli en áður var talið. Því var sótt um framkvæmdaleyfi á ný. Nú er gert ráð fyrir endur- byggingu burðavirkis, hjúps og innra byrðis. Af því leiðir að ástand flugstöðvarinnar breytist og núver- andi braggalag hverfur. Umfang og eðli byggingarinnar verður óbreytt í öllum megin- atriðum. Þó er gert ráð fyrir að gámaeiningar verði fjarlægðar og minnkar byggingin við norðaustur- hlið en stækkar til norðurs. Byggingin verður aðallega á einni hæð en tæknirými á 2. hæð. Gert er ráð fyrir kaffistofu sem rúmar 100 manns og lítilli fríhöfn eins og nú er. Loftræsting verður bætt verulega frá því sem nú er. Flugstöðin er núna 1.306,5 fermetrar samkvæmt uppmælingu en verður 1.636 fer- metrar eftir stækkun. Í viðtali við mbl.is í fyrradag sagði Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri flugfélagsins, að ekki væru komnar neinar tímasetningar varð- andi þessar framkvæmdir á flug- stöðinni. Málið væri á vinnslustigi. Á undanförnum áratugum hafa í nokkur skipti verið upp áform um nýrri og betri flugstöð fyrir innan- landsflugið en þau hafa ekki orðið að veruleika. Flugstöðin verr farin en talið var  Framkvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu var veitt í fyrra  Ástandsskoðun leiddi í ljós að það væri óframkvæmanlegt vegna ástands bygginganna  Því verður ráðist í uppbyggingu og endurbætur Tölvuteikning/kurtogpí Ný flugstöð Svona mun byggingin líta út að lokinni endurgerð og endurbótum samkvæmt hugmyndum arkitekta. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Endurbætur á gömlu flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli verða um- fangsmeiri en upphaflega var ætlað. Ástæðan er sú að skoðun leiddi í ljós að ástand byggingarinnar var verra en talið var. Eins og fram kom í frétt í Morg- unblaðinu á laugardaginn varð ekk- ert úr áformum um nýja flugstöð á reit Umferðarmiðstöðvarinnar. Þess í stað verður að ósk Air Iceland Connect (Flugfélags Íslands) ráðist í endurgerð og stækkun gömlu flug- stöðvarinnar á Þorragötu 10-20. Í sumar sendi félagið erindi til Reykjavíkurborgar og var fram- kvæmdaleyfi veitt 27. ágúst 2019. Sótt var um leyfi til að gámaeiningar verði fjarlægðar, bygging dregin inn frá austri og stækkuð til norðurs, burðarvirki og byggingarhjúpur endurnýjaður, útlitum breytt, innra skipulagi breytt og loftræsting og brunavarnir verði endurnýjað. Fram kemur í erindi Air Iceland Connect að núverandi aðstaða á Reykjavíkurflugvelli er orðin mjög lúin og hefur þar að auki ýmsa ókosti hvað varðar innra skipulag. Skipulagið er óhentugt Eftir að hætt var að nota hlið 1 í vestasta hluta flugstöðvarinnar af öryggisástæðum er sá hluti hússins verr nýttur en áður. Komufarþegar þurfa að ganga eftir endilangri flug- stöðinni að farangursfæribandi. Inn- ritun er í miðri byggingunni í stað þess að vera í öðrum enda hennar. Þetta veldur því að umferð komu- og Flugstöðin er upphaflega hönnuð af Skúla H. Norðdahl arkitekt og var byggð í nokkr- um áföngum árin 1963, 1966 og 1978. Elstu húsin eru frá árum síðari heimsstyrjaldar- innar, eða meira en 70 ára gömul. Árið 2006 var ytra byrði hússins lagfært auk þess sem byggingin var stækkuð lítillega. Árið 2010 voru gámahús byggð við flug- stöðina. Höfundur þessara breytinga var Eyjólfur Braga- son arkitekt. Flugstöðin hefur frá upp- hafi verið miðstöð innan- landsflugsins. Einnig fara flugfarþegar til og frá Græn- landi um flugstöðina. Til skamms tíma var Færeyja- flugið einnig rekið frá Reykja- víkurflugvelli en það var á síð- ustu árum flutt til Keflavíkur- flugvallar. Frá árum styrjaldar GAMLA FLUGSTÖÐIN VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Mikið úrval varahluta í Ifor Williams kerrur og allar aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu Ifor Willams Kerrur í öllum stærðum og útfærslum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.