Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
NÝTT
ÍSEYSKYR
VIÐBÆTTS SYKURS
OG SÆTUEFNA!
Ísey skyr kynnir til leiks tvær nýjar bragðtegundir
án viðbætts sykurs og sætuefna. Hvort sem þú kýst suðræna ávexti eða
perur og banana er alltaf rétta augnablikið fyrir Ísey skyr.
Laktósalaust
BLÁTT
LOK
BLÁR BOTN
Fimm umsóknir bárust um embætti
sóknarprests í Hveragerðis-
prestakalli.
Þessi sóttu um embættið:
Erna Kristín Stefánsdóttir guð-
fræðingur, sr. Gunnar Jóhannes-
son, sr. Hannes Björnsson, Ingimar
Helgason guðfræðingur og sr.
Ninna Sif Svavarsdóttir.
Kjörnefnd Hveragerðispresta-
kalls kýs sóknarprest úr hópi um-
sækjenda, að loknu valferli kjör-
nefndar. Biskup skipar í embættið
frá og með 1. desember til fimm
ára.
Tvær umsóknir bárust um Lauf-
ásprestakall í Eyjafjarðar- og Þing-
eyjarprófastsdæmi. Kjörnefnd valdi
sr. Gunnar Einar Steingrímsson
sem næsta sóknarprest prestakalls-
ins. Umsækjendur voru tveir.
Sr. Gunnar Einar Steingrímsson
fæddist á Akureyri 18. desember
1974. Hann var vígður sem djákni í
janúar 2009 til Grafarvogssóknar.
Gunnar lauk guðfræðiprófi, cand.
theol., frá guðfræðideild Óslóar-
háskóla (TF) í júní 2015, og var
vígður til prests í Niðarósdóm-
kirkju 30. ágúst 2015.
Þá kemur fram á vef þjóðkirkj-
unnar að biskup Íslands hafi aug-
lýst laust til umsóknar embætti
fangaprests. Embættið er eitt af
sérþjónustuprestsembættum þjóð-
kirkjunnar. Skipað er í embættið
frá 1. desember 2019 til fimm ára.
Fráfarandi fangaprestur til síðustu
áratuga, sr. Hreinn Hákonarson, er
kominn til starfa á Biskupsstofu.
sisi@mbl.is
Fimm sóttu
um prests-
embætti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umsóknir Kirkjan í Hveragerði.
Ferli FATF, alþjóðlegs starfshóps
um aðgerðir gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka, er ófyr-
irsjáanlegt og ógagnsætt að mati
Bjarna Benediktssonar, fjármála-
og efnahagsráðherra.
Segir hann að starfshópur ríkis-
stjórnarinnar vegna FATF hafi
unnið hratt og örugglega niður
langan lista athugasemda sem
gerðar voru í kjölfar úttektar á
málefnum peningaþvættis hér á
landi og að komið hafi á óvart að
FATF hafi ekki metið það svo að
við værum komin lengra. „Það kom
okkur til dæmis á óvart að það
kæmi svona skýr krafa um að við
kláruðum löggjöfina um almanna-
heillafélögin, sem var ekki eitt af
þeim atriðum sem höfðu verið sér-
staklega til umræðu á fundum,“
sagði Bjarni í gær. Það væri þetta
sem gerði ferlið ófyrirsjáanlegt,
auk þess sem það væri ógagnsætt
vegna þess að samkomulag væri um
að ekki væri tekið fram hvernig ein-
stök aðildarríki ráðstöfuðu sínum
atkvæðum. Það væri þó ljóst að
ekki hefði verið full samstaða meðal
aðildarríkja um að setja Ísland á
gráa listann.
Dugði ekki til
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra hélt því fram að
brugðist hefði verið fljótt við þeim
sex atriðum sem út af stóðu sam-
kvæmt FATF í september, en ráðu-
neyti hennar var áberandi í
vinnunni. „Svo er niðurstaðan sú að
við förum á þennan lista þrátt fyrir
það,“ sagði Áslaug Arna.
Ferlið sagt ógagnsætt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á fundi Bjarni Benediktsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sátu fyrir
svörum hjá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í gærmorgun.
Skýr krafa var gerð um aðgerðir við ábendingum FATF
Brotist var inn í húsnæði Lands-
bankans í miðbæ Reykjavíkur á
sunnudagsmorgun. Ekki er talið að
viðkomandi hafi haft neitt á brott
með sér. Þetta segir Rúnar Pálma-
son, upplýsingafulltrúi bankans.
„Ég get staðfest að það komst
maður inn í afmarkaðan hluta skrif-
stofurýmis en það bendir ekkert til
þess að hann hafi haft neitt á brott
með sér. Lögreglan er með málið í
rannsókn,“ segir Rúnar. Um sólar-
hring síðar var einstaklingur hand-
tekinn grunaður um innbrotið. Sá er
sagður áður hafa komið við sögu lög-
reglu og er viðkomandi grunaður um
fleiri innbrot sama dag og brotist
var inn í Landsbankann.
Stal engu í
bankainnbroti