Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 42
mikill. Þetta fer auðvitað líka eftir efn- isvali. Til dæmis eru sérsaumuð jakka- föt frá okkur alveg frá 90 þúsundum upp í nokkur hundruð þúsund ef menn vilja eitthvað úr sjaldgæfari eða dýrari efnum. Algengasta verðið er þó yf- irleitt um 110-120.000 sem er ekki langt frá verði vandaðra jakkafata. Mér finnst það ekki dýrt fyrir hand- verk sem er sérgert fyrir þig. Maður getur sett þetta í samhengi við vandað úr eða skartgrip. Það er bara gaman að eiga eitthvað sérstakt og það sem er vandaðra kostar auðvitað aðeins meira. Við gerum kröfur um að bjóða einungis það besta sem til er á mark- aðnum og öll efni eru sérvalin af okkur og þurfum við að læra á það hvað hent- ar hverjum og einum og þekkja eðli og mismun allra efna. Viðskiptavinir okk- ar geta alltaf verið fullvissir um að fá úrvalsefni frá úrvalsframleiðendum og þjónustu starfsmanna sem hafa unnið við að mæla jakkaföt í fjöldamörg ár. Ég mældi mín fyrstu sérsaumuðu föt fyrir tuttugu árum þegar ég vann hjá Sævari Karli og Alvaro Calvi sem er yfirmaður sérsaums hjá mér hefur áratuga reynslu í þessum málum. Síð- an fáum við oft gesti að utan sem eru sérfræðingar í þessum málum bæði til að halda okkur við efnið og hitta við- skiptavini okkar.“ Þegar Villi er spurður út í herratísk- una segir hann að hún hafi sjaldan ver- ið skemmtilegri að hans mati. „Ég myndi segja framleiðendur byðu upp á vandaðri efni en áður og Marta María mm@mbl.is Þeirra eigin lína Herragarðurinn- sérsaumur samanstendur af skyrtum frá Stenströms og buxum og jökkum frá ítalska merkinu Corneliani. Í dag og á morgun verða sérfræðingar frá þessum merkjum í Herragarðinum. Villi segir fjölmargar ástæður fyrir því hvers vegna sérsaumur borgi sig. „Það má segja að það séu aðallega tvær meginástæður fyrir að menn velja sér sérsaumuðu föt. Margir hverjir einfaldlega passa ekki í hefð- bundnar stærðir og þurfa því sérsaum í jakkafötum eða skyrtum. Ég er til dæmis með frekar breiðan háls og þarf því alltaf sérsaumaða skyrtu svo mér líði vel í henni án þess að hún sé of víð. Einnig þarf yfirleitt að stytta ermar hjá mér og sérsaumaður jakki fer mér betur. Karlmenn eru mun meðvitaðri um það í dag heldur en áður fyrr að fötin passi vel og langflestir vilja ekki hafa fötin of víð. Hin nálgunin er að sinna þeim sem hafa eitthvað sérstakt í huga. Sérstaklega yngri karlmenn sem eru duglegir að fylgjast með nýj- ustu straumum og stefnum og hafa ákveðnar skoðanir. Við erum með mörg hundruð efni og ótal snið og ætti að vera nánast ómögulegt að finna ekki eitthvað sem passar. Svo er auð- vitað della í þessu eins og í tækjum og bílum og menn sem hafa hellt sér í þetta hafa áhuga á efnum frá ákveðnum vefurum og vilja búa til ákveðið útlit sem sker sig úr,“ segir Villi. Villi segir að sérsaumuð föt hafi allt annað yfirbragð en föt sem koma í stöðluðum stærðum. „Sérsaumuð föt eru auðvitað sér- mæld. Þá er gert ráð fyrir því að menn geti verið með mislangar hend- ur, misháar axlir og svo framvegis. Þá finnum við út hvernig jakki og buxur sitja best á viðskiptavininum miðað við vaxtarlag. Það er alltaf hægt að gera betur í að láta föt passa betur. Ég segi oft við viðskiptavini mína að föt númer tvö í sérsaumi séu bestu fötin. Þá getum við fíniserað smáatriðin og viðskiptavinurinn er búinn að reynslukeyra fötin og veit hverju honum líður best í. Við förum í nánustu smáatriði eins og hversu þykkt fóðrið á að vera og hversu mik- ið efni á að vera inn í axlahluta jakk- ans auk ótal annarra atriða,“ segir hann. Er algengt að hefðbundnar stærðir passi ekki? „Í sjálfu sér ekki. Við erum örugg- lega með um 20 snið af jakkafötum í Herragarðinum og getum þjónustað meginþorra allra með þeim. En kröf- ur viðskiptavina aukast alltaf. Fyrir tuttugu árum þegar ég var að byrja í bransanum voru allir eiginlega mikið eins og næsti maður og í víðari fötum en gengur og gerist í dag og sniðið því ekki eins mikilvægt. Þetta snýst meira um þjónustu og valmöguleika. Því er ekki endilega hægt að segja að menn þurfi einungis sérsaumuð föt. En sérsaumurinn er frábær mögu- leiki til að eiga eitthvað sérstakt og líka skemmtilegt að láta stjana við sig Allt annað yfirbragð með sérsaumi Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson eða Villi í Herragarðinum, eins og hann er oftast kallaður, hefur verið í herrafata- bransanum í meira en 20 ár. Hann segir að það færist í vöxt að menn láti sérsauma á sig föt því menn lendi oft á milli stærða. Ef kraginn passar á skyrtunni er hún kannski of víð yfir búkinn og þar fram eftir götunum. Morgunblaðið/Hari Reynsla Vilhjálmur S. Vilhjálmsson verslunarstjóri í Herragarðinum hefur starfað í herrafatabransanum í meira en 20 ár. Til í tuskið Hér er Vilhjálmur ásamt samstarfsmönnum en í dag og á morgun verða sérfræðingar í sérsaumi á staðnum. Pælt í hverju smáatriði Með sér- saumi er hægt að fá allar óskir upp- fylltar eins og eitt hnappagat í öðr- um lit eins og sést hér á myndinni. og fá ráðgjöf frá fagmönnum um hvað passar.“ Einn virðulegur maður sagði að þegar hann væri búinn að fá skyrtu sem passaði yfir magann á sér þá væri kraginn allt of hár og mikill. Þekkir þú þetta? „Já, algjörlega. Menn eru misháls- langir og hár kragi er ekki fyrir menn sem eru hálsstyttri. Fyrir utan það þá eyðileggst skyrtan fyrr af núning i við skeggið og er óþægileg. Þess vegna höfum við til dæmis möguleika á mis- munandi kragahæðum fyrir við- skiptavininn og ótal gerðir af krögum. Við erum með dyggan kúnnahóp sem lætur sérsauma á sig skyrtur.“ Er dýrt að láta sérsauma á sig? „Allt sem er sérframleitt er auðvit- að dýrara en það sem er framleitt í magni. Áður fyrr var mun dýrara að láta sérsauma á sig miðað við föt af slánni en munurinn í dag er ekki svo MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 KEILIR Kuldagalli Kr. 14.990.- KEILIR Úlpa Kr. 11.990.- KEILIR Snjóbuxur Kr. 8.990.-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.