Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 48
48 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 50 ára Tonie er fædd og uppalin í Frederiks- berg í miðri Kaup- mannahöfn, en flutti til Íslands 6.1. 1995. Hún er hjúkrunarfræð- ingur að mennt og vinnur á Barnaspítala Hringsins. Hún er sérhæfð í astma og ofnæmi barna og vinnur líka fyrir Astma- og ofnæmisfélag Íslands. Tonie er í hlaupahóp og hjólahóp Víkings og hefur m.a. hlaupið maraþon, Laugaveg- inn og klárað Landvættina. Maki: Grétar Þórisson, f. 1964, rekur Plastviðgerðir Grétars. Börn: Kaja, f. 1995, og Janus, f. 1997. Foreldrar: Keld Gertin Sörensen, f. 1938, fv. sölumaður, og Jonna Koch, f. 1944, hárgreiðslukona. Þau eru bús. í Rødovre. Tonie Gertin Sörensen Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Berðu höfuðið hátt, þú hefur svo sannarlega efni á því. Gættu þess að mis- nota ekki góðvild annarra. 20. apríl - 20. maí  Naut Það gæti verið rétt að fresta öllum framkvæmdum meðan þú ert að gera þín- um nánustu grein fyrir því hvað það sem þú vilt. Reyndu að láta fjárhagsáætlanir þínar standast. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hertu upp hugann horfstu í augu við það sem þú óttast. Ekki tefla á tvær hættur í fasteignaviðskiptum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Dagurinn í dag er góður til þess að undirrita samninga eða ná samkomulagi við aðra. Gættu þess að taka þig ekki of hátíðlega. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér er mikið í mun að koma sjón- armiðum þínum á framfærivið aðra í dag. Leyfðu þér að njóta kvöldsins í vinahópi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu ekki hugfallast þótt þér finn- ist aðrir ekki komast lönd né strönd í sín- um málum – það er bara alls ekki þitt mál. Þú hefur mörg járn í eldinum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert á kafi í alls kyns stússi sem bakar þér ómælda fyrirhöfn. Hógværð og lítillæti eru góðir kostir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Notaðu daginn til þess að brjóta niður hindrun sem þú hefur reist sjálf/ur. Vendu þig á að telja upp á 10 áður en þú lætur eitthvað út úr þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Stundum verðum við að stjórna því hvert við stefnum og stundum verðum við einfaldlega að leyfa lífinu að hafa sinn gang. Búðu þig undir spennandi tækifæri á næstu vikum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur áhyggjur af gangi mála og það er full ástæða til. Einhver með heillandi nærveru kemur þér í upp- nám. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að vinna í því að ná tökum á tilfinningum þínum. Láttu ekki leti og kæruleysi ná tökum á þér í dag því þú þarft að skila verkefni sem krefst ein- beitingar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gerðu ráð fyrir kraftaverkum, þau eiga sér oftar stað en okkur grunar. Ekki svíkja loforð. myndir og leikið í sjónvarpsþáttum á borð við Ástríði, Rétt og Stelpurnar. Árið 2015 kom út bókin Mörk – saga mömmu hjá Forlaginu, en bókin var gefin út í Englandi í byrjun árs 2019. Fyrir skemmstu ferðaðist Þóra til heimsálfunnar Afríku í fyrsta sinn er hún heimsótti Malaví á vegum UN Women. „Ég heimsótti fátækustu ingum í Þjóðleikhúsinu, hjá Leik- félagi Akureyrar og með sjálfstæðum leikhópum og setti upp einleikinn Ég heiti Rachel Corrie í Borgarleikhús- inu árið 2009 svo eitthvað sé nefnt en í nóvember tekur hún þátt í leiklestr- arveislu til heiðurs Guðmundi Steins- syni í Þjóðleikhúskjallaranum. Þóra hefur framleitt tvær stutt- Þ óra Karítas Árnadóttir fæddist 22. október 1979 á St. Mary‘s Hospital í London en fluttist þriggja mánaða gömul með foreldrum sínum og Einari eldri bróður sínum til Reykjavíkur. For- eldrar hennar skildu þegar hún var tveggja ára gömul. „Fimm ára gömul lærði ég að lesa og skrifa og skrifaði þá mína fyrstu bók, sem ég heftaði saman, en hún fjallaði um þrá mína til að eignast yngra systkini. Sú þrá rættist tæp- um áratug síðar þegar systur mínar Erla Rut og Anna Rós komu í heim- inn.“ Þóra var eitt ár í Æfingadeild Kennaraskólans áður en hún flutti sex ára gömul út á land með móður sinni og bróður að Skógum undir Eyjafjöllum. „Þar sleit ég barnsskónum og undi mér best við bústörf í fjósafötum með bestu vinkonum mínum Ástu Rut og Evu Rún. Mamma var skóla- stýra í grunnskólanum á Skógum og stýrði skólanum á skapandi hátt. Ef vel viðraði voru frímínútur langar. Í Skógum festi ég rætur og tengdist náttúrunni sterkum böndum. Allt í allt fór ég í sex grunnskóla, var einn vetur ellefu ára að aldri í Austur- bæjarskóla í Reykjavík og talaði um sveitina af nostalgískum saknaðar- trega. Ég fór aldrei í sjöunda bekk en tvisvar í sjötta bekk og var alltaf einu ári á undan í skóla nema í Aust- urbæjarskóla, þar sem ég stundaði nám með jafnöldrum.“ Síðustu tvo bekki í grunnskóla tók hún í Litlu-Laugaskóla í Reykjadal, þar sem mamma hennar var ís- lenskukennari við Framhaldsskól- ann á Laugum. Því næst lá leiðin til Reykjavíkur. Fjórtán ára gömul hóf Þóra nám við Menntaskólann í Reykjavík. Hún útskrifaðist þar af eðlisfræðideild árið 1998 og fór beint þaðan yfir í Háskóla Íslands, þar sem hún lauk BA-gráðu í guðfræði. Þóra hóf störf sem sjónvarpskona á Skjá Einum meðfram háskólanámi og stýrði þar fjölda sjónvarpsþátta. Árið 2004-2006 bjó hún í London, þar sem hún lagði stund á leiklist. Við heimkomu lék hún í fjölmörgum sýn- sveitahéruðin þar í landi í því skyni að heyra um persónulega reynslu kvenna sem hafa verið giftar á barns- aldri. UN Women átti þátt í að breyta lögunum um hjónabandsaldur árið 2017, en þá var aldurinn hækk- aður upp í 18 ár og nú er markvisst unnið að því með fræðslu og sam- starfi höfðingja í þorpum og svokall- aðra mæðrahópa að rifta ólöglegum hjónaböndum og binda enda á þenn- an skaðlega sið, en viðtölin verða sýnd í söfnunarþætti sem sýndur verður 1. nóvember á RUV í tilefni af þrjátíu ára afmælisári Landsnefndar UN Women á Íslandi. Þóra vinnur nú að sjónvarpsþátt- unum Hver ertu? í samvinnu við Republik, en þættirnir verða sýndir hjá Sjónvarpi Símans árið 2020. „Þættirnir snúast um að safna í sarp- inn sögum af forfeðrum og formæðr- um viðmælenda og skoða svolítið upprunann. Þetta krefst mikillar undirbúningsvinnu en það er gaman að draga fram áhugaverðar sögur úr fortíðinni og sjá þær lifna við í frá- sögn afkomenda og setja þær í sam- hengi við Íslandssöguna. Ég hef allt- af verið svolítið hissa á því að sagnfræðikennsla sé ekki byggð meira á ævisagnalestri og fæ kikk út úr þessu grúski. Þessi nálgun varpar persónulegu ljósi á söguna og því er bæði gefandi og fræðandi að vinna að þessum þáttum og áhugavert hvern- ig útgáfur af sögum varðveitast á milli kynslóða með munnmælahefð- inni. Ég hlakka til að sýna afrakstur- inn á nýju ári því viðmælendur þátt- arins og sögurnar að baki eru að mínu mati áhugaverðar og innihalds- ríkar.“ Fjölskylda Unnusti Þóru er Sigurður Guð- jónsson myndlistarmaður, en þau hafa búið saman í áratug. Foreldrar Sigurðar eru hjónin Svava Valgeirs- dóttir, f. 28.8. 1942, d. 30.11. 2007, móttökustjóri í Orkuveitunni, og Guðjón Ingi Sigurðsson, f. 1.10. 1936, tónlistarmaður og húsgagnasmiður. Börn Þóru og Sigurðar eru Árni Guðjón Sigurðsson, f. 8.8. 2015, og Dagur Kári Sigurðsson, f. 16.1. 2018. Fyrir átti Sigurður Flóka Hrafn Þóra Karítas Árnadóttir leikkona – 40 ára Í haustlitunum Sigurður og Þóra á róluvellinum við Freyjugötu. Var í Malaví á vegum UN Women Í Malaví Þóra tekur þátt í söfn- unarþætti á RÚV 1. nóvember nk. Synirnir Dagur Kári og Árni Guð- jón í Hyde Park í London sl. vor. 30 ára Ævar er frá Ásólfsskála undir Vestur-Eyjafjöllum en býr á Flúðum. Hann er með diplóma á matvælabrú frá Fræðsluneti Suður- lands og er bústjóri Flúðasveppa. Ævar hefur áhuga á tónlist og listum almennt og kemur fram sem trúbador nokkrum sinnum á ári. Hann hefur einnig áhuga á útivist og almennri hreyfingu. Maki: Elma Jóhannsdóttir, f. 1992, leik- skólakennari á Undralandi á Flúðum. Börn: Stígur, f. 2012, og Birna Eyfjörð, f. 2017. Foreldrar: Sigurður Grétar Ottósson, f. 1962, og Katrín Birna Viðarsdóttir, f. 1966, kúabændur og ferðaþjónustu- bændur á Ásólfsskála. Ævar Eyfjörð Sigurðsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSTOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Eru sparifötin hrein?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.