Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 23.10.2019, Qupperneq 52
52 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kris@mbl.is Niðurstöður umfangsmikillar rann- sóknar í Skotlandi benda til þess að endurtekin höfuðhögg í knattspyrnu hafi alvarlegar afleiðingar. Niður- stöðurnar eru í það minnsta þær að knattspyrnumenn séu líklegri til að fá taugasjúkdóma og líklegri til að látast úr heilabilun, meira að segja mun líklegri en þeir sem ekki stunda knattspyrnu af kappi. Niðurstöð- urnar eru ekki skemmtilegar fyrir knattspyrnuheiminn en eru ekki ann- að en vísbending að svo stöddu. Rannsóknin kallar á fleiri rannsóknir þar sem hægt væri að njörva hætt- urnar betur niður. Rannsóknin var viðamikil og þann- ig að henni staðið að mark er á henni takandi. Fram til þessa hafa ekki verið gerðar margar umfangsmiklar rannsóknir á knattspyrnufólki hvað varðar hættuna á heilabilun. Algeng- ara hefur verið að rannsakaðar séu afleiðingar höfuðhögga í öðrum íþróttagreinum, eins og í ameríska fótboltanum vestan hafs eða í íshokkí í Svíþjóð svo dæmi séu tekin. Vel að verki staðið Í rannsókninni voru sjúkraskrár og dánarorsök 7.676 atvinnumanna í knattspyrnu í Skotlandi, sem fæddir eru frá árinu 1900 til 1976, skoðaðar annars vegar og sambærilegar upp- lýsingar um 23.028 almenna borgara hins vegar. Í samanburðinum var þess gætt að bera saman menn á svipuðum aldri og úr svipuðum fé- lagslegum aðstæðum. Dr. William Stewart, sérfræðingur í taugasjúk- dómum, stýrði rannsókninni en nöfn fimm annarra fræðimanna og lækna fylgja niðurstöðunum. Stewart þessi sá um krufningu á líki Jeff Astle, fyrrverandi landsliðsmanns Eng- lands, í janúar 2002. Astle lést 59 ára að aldri og hafði heilabilun þá hrjáð hann um fimm ára skeið. Stewart komst þá að þeirri niðurstöðu að Astle hefði látist úr langvarandi heilakvilla (CTE, chronic traumatic encephalopathy). Segja má að málið hafi þá komist á dagskrá í knatt- spyrnuheiminum á Bretlandseyjum, en ástvinir Astle tjáðu sig nokkuð um örlög hans opinberlega. Margar stofnanir og sjúkrahús í Glasgow komu að rannsókninni og var hún styrkt af knattspyrnu- sambandinu í Skotlandi og leik- mannasamtökunum þar í landi. Aukin umræða um heilabilun Hvað knattspyrnuna varðar bein- ast spjótin að þeim þætti íþróttar- innar þar sem leikmenn skalla knötttinn. Einnig er vitaskuld hætta á höfuðhöggum við samstuð. Hér í blaðinu í fyrra var minnst á heimild- armynd sem Alan Shearer, fyrrver- andi landsliðsmiðherji Englendinga, gerði um hættuna á heilabilun fyrir knattspyrnufólk. Hann sagðist til að mynda hafa verið látinn skalla knött- inn oftar en hundrað sinnum á hverri skallaæfingu. Önnur hlið á málinu er svo niður- stöður dr. Bennets Omalus fyrir rúmum áratug. Hann komst að því að síendurtekin högg á líkamann hjá at- vinnumönnum í amerískum fótbolta yrðu þess valdandi að heilinn hristist í höfuðkúpunni, jafnvel þótt ein- staklingurinn yrði ekki var við það og væri einkennalaus. Þróuðu fyrrver- andi leikmenn með sér skelfilega heilabilun langt um aldur fram. Þar var kominn nýr vinkill á vandamálið því hættan er ekki eingöngu falin í höggum á sjálft höfuðið, sérstaklega ekki í íþróttum eins og amerískum fótbolta, rúgbí og íshokkí. Auk þess koma hjálmar ekki í veg fyrir heila- hristing þótt þeir verji vel höfuðkúp- una sjálfa. Hér er um smá útúrdúr að ræða en er nefnt vegna þess að uppgötvanir Omalus höfðu svo mikil áhrif í Bandaríkjunum að þar er börnum 11 ára og yngri meinað að skalla knött- inn í knattspyrnu. Kallar á frekari rannsóknir Fyrstu viðbrögð við niðurstöðum rannsóknarinnar eru komin í loftið ef svo má segja. Dr. Carol Routledge, sem stýrir Alzheimer-rannsóknar- miðstöð í Cambridge, segir niður- stöðurnar kalla á frekari rannsóknir en skoða þurfi fleiri breytur til að fá skýrari niðurstöður. „Þessi vel unna rannsókn er sú umfangsmesta sinnar tegundar og fyllir upp í vissar eyður í þekkingu okkar um tengslin á milli knatt- spyrnuiðkunar og heilabilunar. Fyrr- verandi atvinnumenn í knattspyrnu njóta þess á ýmsan hátt líkamlega að hafa stundað íþróttina en sterk fylgni við heilabilun réttlætir frekari rann- sóknir á alþjóðavísu til að átta okkur betur á henni. Rannsóknin horfir ekki til þess hvort fleiri þættir í lífi leikmanna geti ýtt undir hættuna á heilabilun en nú er mikil þörf fyrir frekari hágæða rannsóknir til að svara því,“ er haft eftir dr. Routledge á heimasíðu rannsóknarmiðstöðv- arinnar. Hún nefnir einnig að nið- urstöður þessarar rannsóknar segi okkur ekki hvernig bregðast megi við vandanum eða hvort hann sé sá sami hjá áhugamönnum eða fólki sem stundar knattspyrnu sér til heilsu- bótar. Skipta knettirnir máli? Eitt þeirra atriða sem verða vænt- anlega til umfjöllunar varðandi rann- sóknina er munurinn á þeim knött- um sem notaðir voru fyrir nokkrum áratugum og þeim sem síðar hafa verið notaðir í íþróttinni. Í gamla daga voru notaðir leðurboltar sem ekki voru mjög þungir við kjör- aðstæður en urðu grjótharðir og þungir þegar þeir blotnuðu, sam- kvæmt lýsingum knattspyrnu- manna. Slíkar aðstæður fóru sjálf- sagt illa með góða skallamenn eins og Jeff Astle. En þess ber að geta að rannsóknin nær til atvinnumanna sem fæddust allt til ársins 1976 og á þeirra leikmannaferli voru gömlu tuðrurnar á bak og burt. Knettirnir sem notaðir eru í meist- araflokki í dag eru þó ekki beinlínis mjúkir og er auðvelt að gefa sér að einhver áhrif hljóti það að hafa að skalla knöttinn daglega í mörg ár eins og í tilfelli atvinnumanna. Ef til vill hjálpar sú þróun eitthvað að knattspyrnan er í auknum mæli leik- in með jörðinni en minna í loftinu eins og var algengt á Bretlands- eyjum á árum áður. Hvað sem tíminn kann að leiða í ljós um áhrif knattspyrnuiðkunar á heilabilun gætir nú þegar reiði hjá aðstandendum knattspyrnumanna sem glíma við heilabilun. Þykir mörgum sem knattspyrnuheimurinn hafi sofið á verðinum. Var sofið á verðinum?  Niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar í Skotlandi benda til þess að at- vinnumenn í knattspyrnu séu mun líklegri til að deyja úr heilabilun en aðrir Rannsóknin » Umfangsmikill samanburður á fyrrverandi atvinnumönnum í knattspyrnu og karlmönnum sem ekki stunduðu knatt- spyrnu. » Sjúkraskýrslur og dánar- orsakir skoðaðar. » Knattspyrnumennirnir lifa gjarnan lengur og fá síður hjartasjúkóma og lungna- krabbamein. » Eru hins vegar mun líklegri til að deyja úr heilabilun og fá taugasjúkdóma. AFP Skallaeinvígi Lucas Ocampos leikmaður Sevilla og Tono leikmaður Levante í leik liðanna á dögunum.  Íslenska U17 ára landslið pilta í knattspyrnu tapaði fyrir Króötum 3:2 í fyrsta leik sínum í undankeppni EM, en riðillinn er spilaður í Skot- landi. Íslendingar lentu undir 2:0 og 3:1. Orri Steinn Óskarsson úr Gróttu og Danijel Dejan Djuric, leikmaður danska liðsins Midtjylland, skoruðu mörk íslenska liðsins, sem mætir Skotum á föstudaginn og Armenum á mánudaginn.  Egyptinn Mohamed Salah var mættur aftur á æfingu hjá Liverpool í gær, en vegna meiðsla í ökkla gat hann ekki tekið þátt í leiknum á móti Manchester United á Old Traf- ford á sunnudaginn. Salah verður væntanlega í byrjunarliði Evr- ópumeistaranna í kvöld þegar liðið sækir belgíska liðið Genk heim í þriðju umferð riðlakeppni Meist- aradeildarinnar.  Knattspyrnudeild Fram hefur samið við markvörðinn Ólaf Íshólm Ólafsson til næstu tveggja ára eða út keppnistímabilið 2021. Ólafur þekkir vel til hjá Fram því hann lék þrettán leiki með liðinu á síðustu leiktíð er hann var að láni frá Breiðabliki. Breiðablik kallaði hann aftur til sín í byrjun júní. Ólafur hef- ur leikið 30 leiki í efstu deild með Fylki og Breiðabliki. Eitt ogannað KÖRFUKNATTLEIKUR Dominos-deild kvenna: Borgarnes: Skallagrímur – KR............19.15 Mustad-höllin: Grindavík – Snæfell.....19.15 Origo-höllin: Valur – Keflavík..............19.15 Ásvellir: Haukar – Breiðablik ..............19.15 Í KVÖLD! ÞURR AUGU? Rakagjöf er ekki fullnægjandi lausn Einstök samsetning af frumuvörn og smurningu fyrir augun Inniheldur trehalósa úr náttúrunni Án rotvarnarefna Tvöföld virkni- sex sinnumlengri ending Fæst í öllum helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslun Grandagarði og Glæsibæ, 5. hæð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.