Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 Dekkjaþjónusta Úrval fólksbíla- og jeppadekkja SAMEINUÐ GÆÐI Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is AF BÓKMENNTUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Barna- og unglingabókmennta-verðlaun Norðurlandaráðsverða afhent í sjöunda sinn þriðjudaginn 29. október í Stokk- hólmi í tengslum við þing Norður- landaráðs. Við sama tækifæri verða einnig veitt verðlaun fyrir bók- menntir, tónlist, kvikmyndir og um- hverfismál. Allir verðlaunahafar hljóta verðlaunagripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur, sem samsvara 6,5 milljónum íslenskra króna. Alls eru fjórtán bækur á átta norrænum tungumálum tilnefndar til barna- og unglingabókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs árið 2019, sem er tveimur bókum fleira en í fyrra. Dómnefndir stóru mál- svæðanna fimm (Danmerkur, Finn- lands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar) mega hver um sig tilnefna tvö verk sem komið hafa út á síðustu tveimur árum. Sænsku bækurnar tvær komu út 2017, en allar hinar í fyrra. Dóm- nefndir minni málsvæðanna (Álandseyja, Færeyja, Grænlands og samíska tungumálasvæðisins) mega tilnefna eitt verk hver sem út hafa komið á seinustu fjórum árum, en allar komu bækurnar út í fyrra nema sú frá samíska tungumála- svæðinu sem kom út 2017. Þannig geta tilnefndu bækurnar mest orðið fjórtán. Í blaðinu á laugardag er fjallað um framlag Álendinga, Dana, Grænlendinga, Íslendinga og Sama, en í dag er sjónum beint að framlagi Finna, Færeyinga, Norðmanna og Svía. Rýnir las bækurnar á frum- málinu nema annað sé tekið fram. Menntun sterkasta vopnið Fyrra framlag Finna er fantasíu- skáldsagan Breven från Maresi eftir Mariu Turtschaninoff sem skrifuð er á sænsku og þýða mætti sem Bréfin frá Maresi. Um er að ræða síðustu bókina í þríleik sem hóf göngu sína með Maresi. Krönikor från Röda klostret sem tilnefnd var til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2015 og rýnir hreifst mjög af á sínum tíma. Turtschaninoff er afbragðshöfundur sem tekst að byggja upp góða spennu í bókum sínum á sama tíma og tilfinningar fá nauðsynlegt rými. Í lokabók þessa femíníska þríleiks snýr Maresi aftur til heimahaga sinna með það að markmiði að koma á fót stúlknaskóla. Fátækt, for- dómar og harðneskjuleg yfirvöld koma næstum í veg fyrir að hún nái því markmiði sínu að mennta landa sína, en hún veit sem er að læsi og menntun er sterkasta vopnið í bar- áttunni við óbil- gjörn stjórnvöld. Rýnir hefur ekki enn lesið aðra bókina í þrí- leiknum, en getur heilshugar mælt með bæði fyrstu og þriðju bókinni sem hæglega má lesa sem sjálf- stæðar bækur. Óskandi væri að þrí- leikurinn kæmi út á íslensku. Seinna framlag Finna er mynda- bókin Ruusun matka eftir Mariku Maijala sem rýnir las í sænskri þýð- ingu Söru Ehnholm Hielm undir titl- inum Rosie springer eða Ferðalag Rósu. Bókin fjallar um mjóhundinn Ruusu eða Rósu, sem ætlað er það hlutverk í lífinu að taka þátt í hlaupakeppnum hunda og hlaupa hring eftir hring á milli þess að vera geymd innilokuð í búri. Rósu dreym- ir um frelsi og dag einn stingur hún af. Lesendur fylgjast með flótta Rósu sem hleypur ógnarhratt frá bókaopnu til opnu fram hjá húsum, bílum og sirkus áður en hún þorir að staldra við í al- menningsgarði þar sem hún eignast nýja vini. Naívar vaxlita- myndir Maijala eru heillandi í ein- faldleika sínum og ná vel til ungra lesenda sem eiga auðvelt með að skilja það sem fyrir augu ber. Ferða- lag Rósu er falleg bók um frelsis- þrána og þörfina fyrir að brjóta af sér hlekki vanans. Auðgar upplifun lesenda Framlag Færeyinga þetta árið er Miljuløtur eftir Rakel Helmsdal sem rýnir las í danskri þýðingu höfundar undir titlinum Miljas øjeblikke eða Stundir Milju. Myndskreyt- ingar voru í höndum Kathr- inu Skarðsá. Bókin saman- stendur af tólf sögum sem lagðar eru hinni tólf ára gömlu Milju í munn. Þar segir hún frá ýmsu sem hún hefur upplifað síðustu fimm árin og ber textinn sterkan keim af dagbókarfærslum. Lesendur fá að kynnast fjölskyldunni og vinum Milju, sem er bæði hugmynda- og tilfinningarík stúlka. Hversdags- legar lýsingar Milju eru heillandi, en bókin kemst á flug í samskiptum hennar við framliðna sem eru hreint ekki eins ógnvekjandi og ætla mætti við fyrstu sýn. Myndskreytingarnar skiptast annars vegar í barnslegar teikningar sem gætu verið komnar frá Milju sjálfri, og styrkja þannig hlutverk hennar sem sögumanns, og hins vegar blæbrigðaríkari teikn- ingar úr smiðju fullorðinnar mann- eskju. Myndefnið kallast vel á við textann og auðga upplifun lesenda. Ekkert er að óttast Bæði framlög Norðmanna þetta árið eiga það sameiginlegt að vera myndabækur. Annars vegar er um að ræða Alle sammen teller eftir Kristin Roskifte sem þýða mætti sem Teljum öll. Hins vegar Det var ikke en busk eftir Eli Hovdenak sem þýða má sem Þetta var ekki runni. Alle sammen teller er í stóru broti og spannar tölurnar frá núll upp í sjö og hálfan millj- arð, en mann- eskjur eru not- aðar til að raungera talna- efnið. Umhverfið er teiknað með einföldum bláum pennastrikum, en manneskj- urnar eru litrík- ar í klippimyndaáferð sinni. Fjöl- breytileikinn er undirstrikaður í samspili myndefnis og texta þar sem manneskjurnar eru allskonar í útliti og tjá margvíslegar tilfinningar, allt frá gleði til sorgar. En allar skipta manneskjurnar máli. Þrátt fyrir einfalt yfirbragð leynir bókin á sér í heimspekilegum pæl- ingum um lífið. Hún er uppfull af dásamlegum smáatriðum sem lengi má rýna í. Textinn miðlar oft upp- lifun þeirra sem á myndunum eru, en það er síðan lesenda að geta sér til um hvern verið er að tala hverju sinni. Spurningar aftast opna fyrir að hægt sé að lesa bókina aftur og aftur og sífellt uppgötva eitthvað nýtt. Hér er um fallegan grip að ræða sem á fullt erindi við íslenska lesendur. Í Det var ikke en busk leikur höfundur sér með ljós og skugga. Fuglinn Tilde og tröllið Torvald ferðast um dimman skóg þar sem auðveldlega má sjá ófreskjur í hverju horni og hræð- ast ýmis draugaleg hljóð. Líkt og í öðrum tilnefndum bókum ársins þar sem draugar og ófreskjur eru til um- fjöllunar kemur í ljós að það er í raun ekkert að óttast. Knappur textinn situr vel á hverri opnu þar sem myndefnið fær að njóta sín til fulls. Myndirnar, sem bera yfirbragð kolateikninga, eru dimmar en lýsast smám saman upp af rauðum, gulum og grænum past- ellitum eftir því sem á söguna líður. Húmor er markvisst notaður til að skapa mótvægi við drungann sem yfir hvílir. Bókin lætur ekki mikið yfir sér við fyrsta lestur, en er bæði djúp og falleg í einfaldleika sínum. Makleg málagjöld Báðar sænsku bækurnar í ár eiga það sameiginlegt að fjalla um börn sem upplifa tengslaleysi við foreldra sína og verða fyrir aðkasti skóla- félaganna með tilheyrandi ein- angrun. Annars vegar er um að ræða skáldsöguna Risulven Ris- ulven eftir Ninu Ivarsson, sem þýða mætti sem Kjarrskógaúlfur, og hins vegar skáldsagan Den förskräckliga historien om Lilla Hon eftir Lenu Ollmark, sem þýða mætti sem Hræðilega sagan af Litlu Henni, sem Per Gustavsson myndskreytti. Það er sárt að lesa Risulven Ris- ulven sem fjallar um hinn tólf ára gamla Pär sem býr í úthverfablokk ásamt móður sinni sem er í neyslu. Bókin lýsir tilveru þar sem foreldrar bregðast og börn sýna hvert öðru grimmd, en vegna félags- legra aðstæðna sinna er Pär utanveltu í skól- anum. Hann vonast til að finna nýjan vin í Rezu, flótta- stúlku frá Sýrlandi, en í grimmum heimi geta kynni tveggja brotinna barna reynst afar vandasöm. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni glittir í samúð og hlýju sem gerir bókina þess virði að lesa. Flest njótum við þess frá barns- aldri að lesa stöku sinnum bækur sem hræða okkur mátulega mikið. Den förskräckliga historien om Lilla Hon er ein slíkra bóka. Litla Hún fær enga athygli frá foreldrum sín- um og hinir krakkarnir í skólanum leyfa henni ekki að leika sér í skemmtilegasta tómstunda- herberginu. Í staðinn hræða þeir hana með draugasögum af grimmum kenn- ara sem hengdi sig á háaloftinu, kokk sem vanur var að gera kássu úr nemendum sem kláruðu ekki matinn sinn áður en hann hlaut sjálfur grimman dauðdaga, handa- vinnustelpuna sem fékk skæri í hjartað og bókasafnsstráknum sem klemmdist til bana milli bókahillna í miðjum feluleik. Dag einn plata illgjörnu skóla- félagarnir Litlu Hana upp á háaloft og loka hana þar inni með þeim af- leiðingum að hún neyðist til að hitta alla drauga skólans. Í samtölum við þá kemur í ljós að frásagnir skóla- félaganna endurspegluðu ekki raun- veruleikann. Að lokum verður les- endum ljóst að meiri ástæða er til að óttast lifandi manneskjur með illt í hyggju en vingjarnlega drauga. Eins og vera ber fá allir að lokum makleg málgjöld. Myndskreytingarnar bæta miklu við lestrarupplifunina. Mynd- irnar eru drungalegar þegar við á, en jafnframt uppfullar af góðum húmor. Hér er á ferðinni hryllilega frábær og blóðug bók sem vonandi á eftir að koma út í íslenskri þýðingu fyrr en seinna. Fyrri umfjöllun Morgunblaðsins um verkin sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2019 Vofur, vinskapur og vísdómur Hrædd Litla Hún felur sig fyrir skóladraugunum á mynd Pers Gustavsson. Fjölbreytileiki Kristin Roskifte sýnir 85 manneskjur í kvikmyndahúsi. Kvikmyndin fær einn til að skynja heiminn á nýjan hátt. Þremur gestum finnst hún leiðinleg. Einn í hópnum mun sjá myndina aftur eftir 82 ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.