Morgunblaðið - 23.10.2019, Síða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019
AF BÓKMENNTUM
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Þrettán bækur eru tilnefndar til bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs
2019, skáldsögur, smásagnasöfn og
ljóðabækur. Átta bókanna eru eftir
konur, en fimm eftir karla. Frá
hverju landanna á Norðurlöndum
koma tvær bækur en svo líka bækur
frá Grænlandi, Álandseyjum og sam-
ísku málsvæði. Að þessi sinni er eng-
in bók tilnefnd frá Færeyjum.
Frá Danmörku eru smásagna-
safnið Efter solen eftir Jonas Eika
og skáldsagan de eftir Helle Helle.
Frá Finnlandi koma tvær skáldsög-
ur, Tristania eftir Marianna Kurtto
og Där musiken började eftir Lars
Sund. Frá Grænlandi kemur smá-
sagna- og ljóðasafnið Arpaatit qa-
qortut eftir Pivinnguaq Mørch.
Norðmenn tilefna ljóðabókina Det er
berre eit spørsmål om tid eftir Eld-
rid Lunden og sjálfsævisöguna Jeg
lever et liv som ligner deres eftir Jan
Grue. Frá samísku tungumálasvæði
er ljóðabókin Ii dát leat dat eana eft-
ir Inga Ravna Eira. Svíþjóð tilnefnir
ljóðabókina Nonsensprinsessans
dagbok. En sjukskrivning eftir Isa-
bellu Nilsson og skáldsöguna Männ-
iskan är den vackraste staden eftir
Sami Said. Frá Álandseyjum er
skáldsagan Det finns inga monster
eftir Liselott Willén tilnefnd.
Ísland tilefnir skáldsöguna Elín,
ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur.
og ljóðabókina Kóngulær í sýning-
argluggum eftir Kristínu Ómars-
dóttur.
Hér verður fjallað um skáldsög-
urnar sem tilnefndar eru, en smá-
sagna- og ljóðasöfnin og sjálfs-
ævisagan verða tekin fyrir í grein á
laugardag.
Ekki verður fjallað hér um ís-
lensku skáldverkin, enda voru þau
rýnd í blaðinu á síðasta ári.
Helle Helle – de
Helle Helle er einn fremsti rithöf-
undur Dana, skrifar meistaralegan
stíl sem sjá má á bókinni de. Sagan
segir af unglings-
stúlku, sextán ára
gamalli, sem býr
með móður sinni í
Rødby. Stúlkan
glímir við flest
það sem sextán
ára stúlkur glíma
við í lífinu, en að
auki glímir hún
við þögnina. Móð-
ir hennar er alvarlega veik, en um
veikindin er aldrei talað, en skuggi
þeirra, skuggi þagnarinnar, hvílir yf-
ir bókinni – þær tala um hversdags-
lega hluti, en ekki um veikindin og
það sem framundan er.
Við fylgjum dótturinni í ár, í 51
kafla, þar sem lokakaflinn vísar í
upphafskaflann. Þegar maður leggur
bókina frá sér finnst manni sem sög-
unni hafi ekki lokið, að sá
hörmungaratburður sem vofir yfir
gerist aldrei. Listavel skrifað að
vanda.
Marianna Kurtto – Tristania
Skáldsagan Tristania eftir finnsku
skáldkonuna Marianna Kurtto dreg-
ur nafn sitt af eynni Tristan da
Cunha sem er í afskekktasta eyja-
klasa heims, um 2.400 km vestur af
Höfðaborg. Í sögunni rekur Kurtto
örlög eyjaskeggja, sem eru ríflega
250, en bókin hefst í október 1961
þegar eldfjallið Queen Mary’s Peak
tók að gjósa. Íbúarnir flúðu frá
byggðakjarnanum Edinburgh of the
Seven Seas til óbyggðrar eyjar
skammt frá og þaðan var þeim
bjargað til Bretlands.
Lífið á eyjunum getur verið erfitt,
en Kurtto dregur upp mynd af
stöðnuðu sam-
félagi og gosið
þvingar fram
nauðsynlegar
breytingar og erf-
iðleikarnir sem
íbúarnir ganga í
gegnum í kjölfar-
ið færa fólk sam-
an. Sagan spann-
ar áratuginn fyrir gosið og árin á
eftir og persónurnar eru ýmist íbúar
á eyjunum, eða brottfluttir.
Lars Sund –
Där musiken började
Fyrir fimm árum kom út bókin
Tre systrar och en berättare eftir
Lars Sund og með henni hóf hann
Jakobstads-
þríleikinn sem
fjallar um Finn-
land frá seinni
hluta 20. aldar og
fram undir lok
fyrsta áratugar
21. aldar. Bók
númer tvö í þrí-
leiknum er Där
musiken började
og hefst þar sem sögumaður horfir á
er miðpunktur æsku hans, skemmti-
staður við hallærisplan Jakobstad,
er rifinn. Hann er að skrifa bók um
tónskáldið Alf Holm sem varð heims-
þekkt fyrir hina umdeildu óperu
Tom of Finland.
Leiðsögumaður við bókaskrifin
verður lagasmiðurinn Odin Sikstr-
öm, sem er búinn að vera dauður í
fimmtán ár þegar bókarskrifin hefj-
ast, en Sikström birtist höfundi sem
draugur á reiðhjóli og leiðir hann aft-
ur í tímann. Það er mikil músík í bók-
inni og frásögnin bráðskemmtileg,
sérstaklega fyrir þá sem lifðu þann
tíma þegar rokkið lagði undir sig
heiminn.
Liselott Willén –
Det finns inga monster
Liselott Willén er frá Álands-
eyjum, en búsett í Svíþjóð. Det finns
inga monster gerist á Álandseyjum
og segir sögu
Alice, sem er sjö
ára þegar bókin
hefst og upplifir
hörmungar sem
hún bælir með
sér. Þegar hún
snýr aftur á sömu
slóðir áratug síð-
ar koma minning-
arnar upp á
yfirborðið – hún minnist þess dags
þegar faðir hennar hvarf, sér fyrir
sér stúlku með hamar og föðurinn
blóðugan.
Willén fléttar saman minningum
Alice og raunveruleika og gerir það
listavel, fléttar því saman sem hún
telur sig hafa upplifað og því sem
aðrir segja sannleika. Það má lýsa
bókinni sem spennusögu, myrkri
spennusögu, þar sem mörkin á milli
draums og veruleika skipta miklu
máli.
Människan är den
vackraste staden – Sami Said
Sænski rithöfundurinn Sami Said,
sem fluttist til Svíþjóðar frá Erítreu,
vakti fyrst athygli með bók um
árekstra milli
fjölskyldu sinnar
og vel meinandi
félagsmála-
yfirvalda. Í
Människan är
den vackraste
staden segir hann
frá flóttamann-
inum San Frans-
isco sem er á leið
heim, frá norðri til suðurs.
Við vitum ekki til hvaða landa San
Fransisco fer og ekki heldur hvað
borgirnar heita eða eyjan sem hann
lendir á í miðju Atlantshafinu, enda
er það flóttamanninum fyrir bestu að
halda ekki í neitt, að gleyma öllu, að
skipta um menningu og nafn, reyna
að aðlagast þeim stað sem hann
lendir á hverju sinni, fela upprunann
með nýju nafni: „Núna ertu hér.
Lærðu málið … gleymdu hefð-
unum.“
Glímt við náttúruöfl
og innri og ytri ófrið
Þrettán bækur tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Helle Helle Marianna Kurtto
Sami Said
Liselott WillénLars Sund
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Vantar þig
pípara?
FINNA.is