Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 56

Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Við Steingrímur stjórnandi erum gamlir félagar og höfum gert margt saman í músíkinni í gegnum tíðina. Ég hef sungið þetta hlutverk nokkr- um sinnum áður en ég er að syngja það í fyrsta sinn með Hallveigu. Við tvö höfum sungið mikið saman í gegnum tíðina, en við þrjú, ég hún og Steingrímur, höfum þekkst allt frá því við kynntumst í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Þar vorum við Hallveig í kórnum hjá Þorgerði og sungum einmitt einsöng saman í fyrsta sinn,“ segir Hrólfur Sæm- undsson barítón, annar þeirra ein- söngvara sem fram koma með Nes- kórnum sem flytur Sálumessu Brahms nk. laugardag. „Við þrjú vinnum vel saman og þegar ég er á landinu finnst mér mjög gaman að vinna með Stein- grími og ekki síður Hallveigu, hún er frábær söngkona,“ segir Hrólfur og bætir við að honum finnist Sálu- messa Brahms gríðarlega flott verk. „Þetta er eitt mest krefjandi verk kórbókmenntanna og sérstakt fyrir þær sakir að þetta er lútersk sálu- messa en ekki kaþólsk, eins og sálu- messur eru flestar. Verkið sjálft er stórfenglegt og fyrir vikið nýtur það mikilla vinsælda og er oft sett upp. Það þarf ákveðnar raddtýpur til að syngja sólóin í þessu verki og auðvit- að líka góðan kór, en ég verð að hrósa kór Neskirkju sérstaklega, þau hljóma alveg ótrúlega vel heyrði ég á æfingu með þeim um daginn.“ Innblásin og mikilfengleg Þegar Hrólfur er spurður hvort Brahms sé góður við söngvarana sína í þessu verki eða með svínslegar kröfur segir hann að sér finnist alltaf þægilegt að syngja Brahms. „Vissu- lega getur það líka verið krefjandi, en hann kunni sannarlega að skrifa fyrir söngvara, enda skrifaði hann líka mikið af sönglögum. Hljómur radd- anna í sálumessunni þarf að vera sá rétti, sópraninn þarf til dæmis að hafa það sem einkennir röddina hennar Hallveigar; hina engilfögru miklu hæð og að geta svifið yfir. Á meðan barítóninn þarf að hafa mýkt en vera um leið þéttur og röddin stór, því það er stór hljómsveit sem spilar með.“ Þegar Hrólfur er spurður hvað það sé við þessa sálumessu sem geri það að verkum að hún lifi og sé svo vinsæl sem raun ber vitni segir hann að það sé fyrst og fremst tónlistin.„Hver sá sem heyrir þessa músík hrífst með, hún er ótrúlega innblásin og mikil- fengleg. Fólk fær gjarnan gæsahúð og tár spretta fram, sérstaklega í lif- andi flutningi. Brahms samdi þetta eftir að móðir hans lést og þar sem hann var sjálfur mótmælendatrúar sankaði hann að sér textum bæði úr Biblíunni og úr apókrýfum versum. Hann samdi þetta ótrúlega verk í sinni persónulegu sorg og þessi sálu- messa, öfugt við flestar þær kaþ- ólsku, fókuserar meira á eftirlifandi syrgjendur en sál hins látna. Nálg- unin er því mannlegri en í mörgum öðrum sálumessum,“ segir Hrólfur og bætir við að þetta sé eitt af allra skemmtilegustu verkum sem hann tekst á við innan kirkjulistaverka. „Það er virkilega gefandi að syngja þetta.“ Debúterar á Spáni næsta vor Hrólfur býr í Hollandi, rétt við landamæri Þýskalands þar sem hann starfar og hefur gert mest- megnis undanfarinn áratug. „Ég er með samning hjá óperunni í Aachen um að syngja alltaf í tveim- ur uppfærslum á hverri leiktíð þar, en tvær til þrjár uppfærslur annars staðar. Í vetur byrjaði leiktíðin með Niflungahringnum eftir Wagner þar sem ég syng hlutverk dvergsins Alberichs, sem er auðvitað nokkuð skondið því ég er hávaxnasti söngv- ari sýningarinnar. Spaðadrottningin verður svo næst og ég mun svo deb- útera á Spáni næsta vor í Teatro Real í Madrid, þ.e. konunglegu óp- erunni, sem er eitt stærsta óperuhús Evrópu, sem er virkilega spennandi. Líklega fer ég svo til Ástralíu að syngja Rínargull Wagners og þaðan til Svíþjóðar að syngja í uppfærslu á Macbeth,“ segir Hrólfur sem kann vel við fyrirkomulagið. „Ég hef fastar tekjur í óperunni í Aachen en svigrúm til að koma heim til Íslands eða fara út í heim til að takast á við önnur verkefni. Börnin mín búa á Íslandi svo ég reyni að koma eins mikið og ég get til að hitta þau og þá er gaman að geta verið með í stórverkum eins og Sálumessa Brahms er.“ Kór Neskirkju og Sinfóníuhljóm- sveit áhugamanna flytja sálumessu Johannesar Brahms, Ein deutsches Requiem, á laugardaginn kemur kl. 17. Einsöngvarar eru Hallveig Rún- arsdóttir og Hrólfur Sæmundsson. Stjórnandi er Steingrímur Þórhalls- son. Alls taka um 100 manns þátt í flutningnum í Neskirkju. Miðar eru seldir á tix.is. „Fær gæsahúð og tár spretta fram“  Kór Neskirkju og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna flytja sálumessu Johannesar Brahms í Neskirkju á laugardag kl. 17  Einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir og Hrólfur Sæmundsson Hljómur Stjórnandinn Steingrímur Þórhallsson (lengst til hægri) ásamt Kór Neskirkju. Ljósmynd/Wil van Iersel Barítón Hrólfur Sæmundsson. Það þykir kannski hálfgerð hneisa á dæmigerðumtímum viðburðamenningar að þurfa að játa aðmaður hafi ekki áður heyrt fiðlusnillinginn Josh-ua Bell (f. 1967) í lifandi framkomu. Hvað þá að hafa dvalið í heimabæ hans vestra, Bloomington IN., án þess nokkurn tíma að hafa hlýtt á þessa vonarstjörnu nafntogaða hvítrússneska fiðlukennarans Josefs Gingolds (1909-95) sem þegar fór mikið orð af í indíanska háskóla- bænum 1982, þá aðeins 15 ára að aldri. Því meiri voru greinilega eftirvæntingar hlustenda í Eldborg sl. sunnudag, er höfðu margir hverjir líklega heyrt glæsta frammistöðu Bells 21.11. 2019 þar sem hann lék með og stjórnaði frægri hljómsveit Nevilles Marr- iners, Academy of St. Martin-in-the-fields, með að sögn frábærum árangri. Enda stóð ekki á eldheitum undir- tektum tónleikagesta á hér um ræddum tónleikum, jafnvel þótt aðsóknin næði að þessu sinni varla 75% – sem kom því óneitanlega svolítið á óvart. Verkefnaval kvöldsins var nokkuð vítt og spannaði allt frá síðbarokki til síðrómantíkur. Fyrst sjaldheyrt en krefj- andi Rondó í h-moll D 895 frá næstsíðasta aldursári Schu- berts, er flutt var með neistandi tilþrifum. Vakti, þar sem síðar, og eftirtekt hvað fiðlarinn hreyfði sig mikið, allavega miðað við hvað gengur og gerist, og kom manni til að gruna að vaskar sviðsfettur geti bætt jafnt tónræna tján- ingu sem líkamsheilsu. Næst kom alkunn fjórþætt Sónata Césars Francks í A frá 1886 og fagnaði nánast örðulausri syngjandi túlkun. Þrátt fyrir undramjúkan píanóleik Baxs á veikustu stöð- um þótti manni samvægi hljóðfæranna stundum verða enn mýkri strokum Bells í óhag og því spurning hvort alvöru- kammersalur – s.s. mun minni að umfangi – hefði hugs- anlega skilað betri balansi. Allavega frá neðri hliðarsvöl- um heyrt, enda mun nú almennt vitað að heyrð hins annars verðugt rómaða Eldborgarsalar er fráleitt alls staðar eins. Eftir hlé léku þeir félagar fyrst 4. Sónötu J.S. Bachs í c- moll BWV 1017 fyrir fiðlu og sembal, nú talda frá kringum 1726-28 eða þegar kantötusmíðum hans í Leipzig var að mestu lokið. Mig vantaði því miður nægilegan samanburð um þessa tiltölulega lítið þekktu sónötu stórmeistarans (af 6). En túlkun dúósins kom samt vel fyrir, jafnvel þótt virt- ist heldur rómantísk, a.m.k. miðað við seinni tíma upp- runahyggju. Boðaðri dagskrá lauk síðan með Sónötu Eugènes Ysay- es (1858-1931) nr. 3 af 6 í d-moll fyrir fiðlu án undirleiks, er belgíski virtúósinn samdi sem n.k. framhald síns tíma af sömu tóngrein Bachs. Kastaði leikur Bells þar sannköll- uðum tólfum með lýtalausri tæknifimi og heillandi innlifun – og af þvílíkum þrótti að stappaði nærri suðupunkti eftir viðbrögðum hlustenda að dæma. Í lokin kynnti Bell munn- lega þrjú aukalög – yndisljúfa Rómönzu eftir Clöru Schu- mann, verk eftir Henryk Wieniawski og að endingu út- setningu f. fiðlu og píanó á kunnu píanónæturljóði eftir Chopin. Náði ekki heitinu, en ef marka mátti frumstefið var það Op. 9,2 í Es-dúr (so – mi- re mi – re do …) í eft- irminnilega hugljúfri meðferð dúósins. Var þeim félögum fagnað á fæti eins og sagt er. Og ekki að ófyrirsynju. Af þýðum þrótti Eldborg Hörpu Kammertónleikarbbbbm Verk eftir Schubert, Franck, Bach, Ysafe o.fl. Joshua Bell fiðla og Alessio Bax píanó. Sunnudaginn 20. október 2019. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Snillingur Fiðluleikarinn Joshua Bell. Leiklestrafélagið stendur í sam- vinnu við Þjóðleikhúsið og Krist- björgu Kjeld fyrir viðamikilli dag- skrá í Þjóðleikhúskjall- aranum á næstu vikum til minn- ingar um Guð- mund Steinsson leikskáld. Þrjú verk hans verða leiklesin en verk- efninu er ýtt úr vör með dagskrá þar sem lífi og starfi Guð- mundar eru gerð skil og fer dag- skráin fram laugardaginn 26. októ- ber kl. 16. Þar verður meðal annars lesið úr Forsetaefninu. Umsjón hafa María Kristjánsdóttir og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Guð- mundur var fæddur 19. apríl 1925 en lést 15. júlí 1996. Hann var einn helsti leikritahöfundur á Íslandi á ofanverðri 20. öld. Verkin þrjú sem lesin verða eru Þjóðhátíð í leikstjórn Sveins Ein- arssonar sunnudaginn 27. október kl. 19.30 og þriðjudaginn 29. októ- ber kl. 19.30; Stundarfriður í leik- stjórn Benedikts Erlingssonar fimmtudaginn 31. október kl. 19.30 og sunnudaginn 3. nóvember kl. 16 og Katthóll í leikstjórn Stefáns Bald- urssonar fimmtudaginn 7. nóvember kl. 19.30 og sunnudaginn 10. nóv- ember kl. 16. Fjöldi listafólks tekur þátt í leiklestrunum. Þeirra á meðal er Sigurður Skúlason, Guðrún S. Gísladóttir, Arnar Jónsson og Krist- björg Kjeld, ekkja skáldsins. Verk Guðmundar Steinssonar leiklesin Guðmundur Steinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.