Fréttablaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 9
S. 414 7000 · Glæsibær / Vesturhús, 2. hæð · 104 Reykjavík · www.augljos.is
Það gleður okkur
að tilkynna að
Elva Dögg Jóhannesdóttir
augnlæknir hefur
hafið störf á
augnlæknastofunni
Augljósi
Tímapantanir í síma
414 7000
Elva Dögg Jóhannesdóttir
Augnlæknir
Tilkynning
Skoðaðu úrvalið á notadir.is
Birt með fyrirvara á verðbreytingum, innsláttarvillum og myndarugli
GOTT ÚRVAL FJÓRHJÓLADRIFINNA BÍLA
Á FRÁBÆRU VERÐI
3.350.000 kr.
MERCEDES-BENZ GLK 220 CDI
Raðnúmer: 994514
Árgerð 2012, ekinn 77 þús. km,
dísil, 2.143 cc, 170 hö, sjálfskiptur.
Staðsetning: Klettháls
Verð áður 5.190.000 kr.
TOYOTA LAND CRUISER 150 GX
Raðnúmer: 994736
Árgerð 2012, ekinn 110 þús. km,
dísil, 2.982 cc, 191 hö, sjálfskiptur.
Staðsetning: Klettháls
4.790.000 kr. 5.490.000 kr.
KIA SORENTO EX
Raðnúmer: 994199
Árgerð 2017, ekinn 56 þús. km,
dísil, 2.199 cc, 200 hö, sjálfskiptur.
Staðsetning: Klettháls
Verð áður 5.890.000 kr.
4.690.000 kr.
KIA SPORTAGE EX
Raðnúmer: 994502
Árgerð 2018, ekinn 59 þús. km,
dísil, 1.995 cc, 136 hö, sjálfskiptur.
Staðsetning: Klettháls
4.990.000 kr.
HYUNDAI SANTA FE PREMIUM
Raðnúmer: 994662
Árgerð 2016, ekinn 38 þús. km,
dísil, 2.199 cc, 200 hö, sjálfskiptur.
Staðsetning: Bílakjarninn Eirhöfða
Verð áður 5.390.000 kr.
13.900.000 kr.
MERCEDES-BENZ GLS 350 D
Raðnúmer: 391136
Árgerð 2019, ekinn 10 þús. km,
dísil, 2.987 cc, 259 hö, sjálfskiptur.
Staðsetning: Bílakjarninn EirhöfðaKletthálsi 2
Bílakjarnanum Eirhöfða 11
110 Reykjavík
Sími 590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Föstudaga 10–17
Laugardaga 12–16
K JAR A M ÁL Frístundaheimili á
höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi
verða lokuð frá og með 9. mars komi
til verkfallsaðgerða aðildarfélaga
BSRB. Atkvæðagreiðsla um verk-
fallsboðun hefst á mánudaginn og
nær til sautján aðildarfélaga.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá BSRB. Aðgerðirnar gætu náð til
um 18 þúsund starfsmanna ríkis,
sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar.
Samningar BSRB hafa verið lausir
frá byrjun apríl á síðasta ári.
Um er að ræða hóp félagsmanna
BSRB sem starfa meðal annars á
Landspítalanum og í annarri heil-
brigðisþjónustu, velferðarþjónustu,
skólum, leikskólum og frístunda-
heimilum. Einnig er um að ræða
starfsfólk í sundlaugum, íþrótta-
húsum og starfsfólk sem sinnir
þjónustu við aldraða og fatlaða.
Verða aðgerðirnar tvískiptar en
þannig myndi þorri félagsmanna
leggja niður störf á ákveðnum
dögum. Hins vegar færu ákveðnir
hópar í ótímabundið verkfall frá 9.
mars. Þar á meðal eru starfsmenn
grunnskóla og frístundaheimila á
höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi.
Verkfallsaðgerðir myndu halda
áfram fram í dymbilviku en ótíma-
bundið allsherjarverkfall félags-
manna tæki við 15. apríl. Atkvæða-
greiðsla um aðgerðirnar stendur til
næsta miðvikudags.
Þrjú aðildarfélög BSRB sem ekki
hafa verkfallsrétt hafa lýst yfir
stuðningi við aðgerðirnar. Það eru
Landssamband lögreglumanna,
Tollvarðafélag Íslands og Félag
starfsmanna stjórnarráðsins.
Sameyki, sem er stærsta aðildar-
félag BSRB, kannaði nýlega hug
félagsmanna sinna til verkfallsað-
gerða. Niðurstöðurnar voru þær að
um 90 prósent styðja verkfallsboð-
un til að þrýsta á um samninga. – sar
Víðtækar aðgerðir BSRB
Atkvæðagreiðsla um aðgerðir hefst á mánudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SE LTJARNARNE S Samþykkt um
Bílastæðasjóð Seltjarnarnesbæjar
og gjaldskrá hefur verið samþykkt
í bæjarstjórn og mun starfsemi
sjóðsins að öllum líkindum hefjast
í næsta mánuði.
„Það var tekin ákvörðun um þetta
síðastliðið haust og nú erum við að
fara í innleiðingu,“ segir Ásgerður
Halldórsdóttir, bæjarstjóri Sel-
tjarnarness.
Ekki stendur til að taka upp gjald-
skyld stæði í bænum og verður
gjaldskrá sú sama fyrir umferðar-
lagabrot og í Reykjavík. „Við ætlum
ekki að setja upp stöðumæla, þetta
byggir á því að hafa möguleikann á
því að beita sektum ef um umferð-
arlagabrot er að ræða. Svo sem að
leggja uppi á gangstétt, í veg fyrir
gangandi vegfarendur eða stæði
fyrir sjúkrabíla eða fatlaða,“ segir
Ásgerður og bætir við að þó nokkuð
sé um brot af þessu tagi í bænum.
„Það hefur verið ósk um það í
bænum að þetta kerfi sé tekið upp
og vonandi fer þetta í gang strax í
næsta mánuði,“ segir Ásgerður. – bdj
Hefja starfsemi bílastæðasjóðs á Seltjarnarnesi í næsta mánuði
Bærinn svarar kallinu um ráðstafanir gegn stöðubrotum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við ætlum ekki að
setja upp stöðu-
mæla, þetta byggir á því að
hafa möguleikann á að beita
sektum ef um umferðarlaga-
brot er að ræða.
Ásgerður Halldórsdóttir
1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð