Fréttablaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 17
Þessir vinsælu hlífðarhanskar eru húðaðir með AlloGel,
latexfríir og hafa reynst þeim mjög vel sem hafa ofnæmi
eða viðkvæmar hendur. Þola vel ýmis efni. Góðir til að
eiga í vaskaskápnum eða þvottahúsinu. Stærðir: XS–L.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
BLEIKU
HANSKARNIR
– bjarga viðkvæmum höndum
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
100 stk
. í kassa
Verð 1.6
49 kr.
Það hefur alltaf
verið metnaður á
Selfossi en metnaðurinn er
meiri til að gera enn betur
eftir árangur
síðasta árs.
Alfreð Elías
Jóhannsson,
þjálfari Selfoss
1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Óhætt er að segja að
kvennalið Selfoss ætli ekki að slá
slöku við árið eftir að félagið vann
sinn fyrsta stóra titil í knattspyrnu.
Selfyssingar tilkynntu á dögunum
að félagið hefði samið við fjórða
leikmanninn í vetur og þann þriðja
sem á leik að baki í NWSL-deildinni
í Bandaríkjunum, einni af sterkustu
deildum heims.
Íþróttalífið á Selfossi tók stórt
skref í rétta átt á síðasta ári þegar
kvennaliðið vann bikarmeistara-
titilinn og náði besta árangri Selfoss
í efstu deild stuttu eftir að hand-
boltadeild félagsins vann sinn fyrsta
Íslandsmeistaratitil.
„Ég er alveg sammála því og það
er gott að heyra að gusturinn finnst
í Reykjavík,“ segir Alfreð Elías
Jóhannsson, þjálfari meistaraflokks
Selfoss í kvennaflokki, léttur í lund
þegar hann er spurður út í meðbyr-
inn sem Selfoss tók frá síðasta ári
fyrir komandi tímabil.
„Það hefur alltaf verið metnaður
á Selfossi til að gera vel en ég verð
að viðurkenna að metnaðurinn er
meiri til að gera enn betur eftir gott
gengi síðasta árs og taka þetta næsta
skref. Titillinn í fyrra braut vissan ís
fyrir okkur, sýndi okkur að þetta
væri hægt. Það er gott undirlag í
hópnum, ungar stelpur sem hafa
verið að byggja þetta upp til fram-
tíðar í staðinn fyrir að hafa þetta
eitthvað svona einstakt (e. one sea-
son wonder) og við höfum verið að
styrkja innviðina í hópnum.“
Selfoss er í vor að hefja sitt þriðja
tímabil í efstu deild eftir óvænt fall
árið 2016.
„Það voru einhverjir sem spáðu
okkur falli í fyrra og við hlustum
ekkert á það sem aðrir eru að segja.
Við erum að byggja upp lið eftir
okkar hugsunarhætti. Það er ekki
langt síðan við féllum þó að við
höfum sýnt stöðugleika árin þar á
undan en okkur vantaði þennan
titil til að taka næsta skref og sýna
að við getum farið að gera tilkall
til einhverra titla. Allt síðasta tíma-
bil var í raun frábært, við töpum
fyrstu tveimur leikjunum en töpum
bara fjórum eftir það og vorum hálf
svekktar yfir að tímabilið væri að
baki síðasta haust.“
Alfreð tekur undir að það sé
hvalreki fyrir Selfoss að fá Dagnýju
Brynjarsdóttur heim, lykilleikmann
úr íslenska landsliðinu, sem hefur
leikið með Portland Thorns í NWSL-
deildinni undanfarin ár.
„Algjörlega, það er mjög jákvætt
að fá Dagnýju til okkar. Það er
ákveðin lyftistöng fyrir félagið og
gerir okkur auðveldara fyrir að
sannfæra leikmenn um að hægt sé að
taka næsta skref. Þetta hvetur hinar
stelpurnar áfram, gefur þeim von og
trú á því sem við ætlum okkur að
gera en hún gerir þetta ekki ein. Við
þurfum sameiginlegt liðsátak til að
ná markmiðum okkar.“
Þá eru Selfyssingar búnir að semja
við tvo leikmenn sem voru á mála
hjá NWSL-liðum og eiga að baki leiki
fyrir yngri landslið Bandaríkjanna.
Framherjinn Tiffany McCarthy var
á sínum tíma tekin með öðrum val-
rétti í nýliðavalinu og á að baki 84
leiki í efstu deild. Kaylan Marck-
ese var valin í nýliðavalinu í fyrra
og kemur til með að verja markið í
sumar.
„Við höfum að ég held aldrei sótt
erlendan leikmann með jafn flotta
ferilskrá. Við höfum yfirleitt verið
að taka leikmenn sem eru nýkomnir
út úr háskólaboltanum og skortir
aðeins reynslu og við ákváðum að
sækja reynslumeiri leikmenn núna.
Tiffany á að geta skorað mörk fyrir
okkur. Hún var öf lugur marka-
skorari í háskólaboltanum og hefur
spilað lengi í efstu deild í Banda-
ríkjunum. Ég hef fulla trú á því að
hún smellpassi inn í liðið og styrki
hópinn vel.“
Aðspurður hver markmiðin séu
fyrir komandi tímabil með þessum
liðsstyrk segir Alfreð að það sé að
taka framförum.
„Við stefnum á að gera betur en í
fyrra, það er ekkert leyndarmál. Það
væri skrýtið að stefna á að standa í
stað. Við gerðum mjög vel í fyrra og
það eru markmiðin að byggja ofan á
það. Það verður erfitt en við setjum
pressu á okkur að gera eins vel og
hægt er og reyna að vinna alla leiki.
Pressan er enn þá á Breiðablik og Val
að vinna titlana, þau eru með besta
mannskapinn. Þetta verður forvitni-
legt í sumar, ég held að deildin sé
sterkari en oft áður og erfiðara fyrir
toppliðin.“ kristinnpall@frettabladid.is
Markmiðið er að gera enn þá betur
Kvennalið Selfoss hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir tímabilið til að byggja ofan á besta árangur í sögu félagsins síðasta sumar.
Bikarmeistaratitillinn gaf leikmannahópnum smjörþefinn af því að vinna titla og er markmiðið að taka næsta skref á þessu ári.
Leikmenn Selfoss fagna bikarmeistaratitlinum í Laugardalnum síðasta sumar. Það var fyrsti stóri titill félagsins í knattspyrnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR