Fréttablaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 47
LEKTOR Í
BÚFJÁRRÆKT
LEKTOR Í
JARÐRÆKT
Laust er til umsóknar starf lektors í jarðrækt
við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ).
STARFSSKYLDUR
» Ábyrgð á verkefnum og einstaka verkþáttum
á sviði jarðræktar- og umhverfisrannsókna
» Kennsla á grunn- og framhaldsstigi og leiðbeining
nemenda í rannsóknaverkefnum
» Virk þátttaka í mótun nýrra rannsókna og samstarfs-
verkefna og öflun styrkja til þeirra
» Birting ritrýndra vísindagreina
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
» Doktorspróf í jarðrækt eða skyldum greinum
» Þekking á ræktun nytjajurta á norðlægum slóðum
» Reynsla og áhugi á kennslu og miðlun þekkingar
» Reynsla af rannsóknum og birtingum
rannsóknaniðurstaðna
» Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og skýr framtíðarsýn
Laust er til umsóknar starf lektors í búfjárrækt
við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ).
STARFSSKYLDUR
» Ábyrgð á verkefnum og einstaka verkþáttum
á sviði búfjárræktar- og umhverfisrannsókna
» Kennsla á grunn- og framhaldsstigi og leiðbeining
nemenda í rannsóknaverkefnum
» Virk þátttaka í mótun nýrra rannsókna og samstarfs-
verkefna og öflun styrkja til þeirra
» Birting ritrýndra vísindagreina
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
» Doktorspróf í búfjárrækt, dýralækningum eða
skyldum greinum
» Þekking á ræktun búfjár á norðlægum slóðum
» Reynsla og áhugi á kennslu og miðlun þekkingar
» Reynsla af rannsóknum og birtingum
rannsóknaniðurstaðna
» Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og skýr framtíðarsýn
Nánari upplýsingar veita
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri, gudmunda@lbhi.is sími 433-5000 og Þóroddur Sveinsson forseti
deildar ræktunar og fæðu, thorodd@lbhi.is, sími 843-5331. Sótt er um störfin á heimasíðu LbhÍ www.lbhi.is/storf.
Umsóknarfrestur er til 2. mars 2020
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Rektor er heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu ef umsækjandi uppfyllir viðkomandi hæfnisviðmið.
Hlutverk LbhÍ er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar
nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu
á norðurslóðum.
Viðkomandi starfsmenn yrðu hluti af teymi LbhÍ sem sinnir
kennslu, rannsóknum og nýsköpun á sviði búfjárræktar,
jarðræktar og umhverfisrannsókna.
Alverk leitar að laghentum og þjónustuliprum
einstaklingi til fjölbreyttra starfa
Viðkomandi þarf að vera reglusamur, vinnusamur, snyrtilegur og stundvís. Starfið
sem um ræðir er fjölbreytt verkamanna- og þjónustustarf. Á starfssviði viðkomandi
eru meðal annars þrif, minni háttar smíðaverkefni, umsjón með lager og flutningur á
aðföngum vegna framkvæmda félagsins.
Viðkomandi þarf að hafa bílpróf og D-réttindi á vinnulyftur eru kostur. Boðið er upp á
gott starfsumhverfi og samkeppnishæf laun.
Fyrirspurnir og umsóknir varðandi starfið skal senda á Þorleif Kristinn Árnason
(thorleifur@alverk.is) og Kristinn Jónsson (kristinn@alverk.is) fyrir 29. febrúar
n.k. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Alverk er metnaðarfullt og framsækið stjórnunarfyrirtæki í mannvirkjagerð með
megináherslu á framkvæmdir og ráðgjöf. Fyrirtækið starfar að mestu sem stjórnunar,
al- og/eða aðalverktaki.
Við horfum bjartsýn til næstu ára, verkefnastaða félagsins er góð, mörg spennandi
verkefni í vinnslu og önnur í undirbúningi.
FRAMKVÆMDIR OG RÁÐGJÖF
Nýtt fólk
Heiður Björk nýr
framkvæmdastjóri
fjármálasviðs
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir hefur verið ráðin fram-kvæmdastjóri fjármálasviðs
Samkaupa og mun taka við starf-
inu í mars af Brynjari Steinars-
syni. Hún hefur víðtæka reynslu
á sviðum fjármála en hún hefur
starfað hjá Arion banka síðan 2007,
m.a. sem fjármálaráðgjafi, sérfræðingur
í fyrirtækjalánum, viðskiptastjóri fyrirtækja og síðast
sem þjónustustjóri einstaklinga í aðalútibúi bankans.
Heiður Björk hefur lokið MBA námi við Háskóla Íslands,
er með BS.c. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík,
með próf í verðbréfamiðlun og vottaður sem fjármálaráð-
gjafi.
Benoit Chéron til KPMG
Benoit Chéron hefur hafið störf á ráðgjafarsviði KPMG þar sem hann mun þróa þjónustu
sem tengist sjálf bærni og jafn-
framt veita ráðgjöf á sviði ábyrgra
fjárfestinga, áhættustýringar og
innri endurskoðunar. Áður en
Benoit hóf störf hjá KPMG stofnaði
hann fyrirtækið X.FIN, fjármála- og
fyrirtækjaráðgjöf og aðstoðaði fjár-
málastofnanir og -fyrirtæki í ábyrgum fjárfestingum
og skýrslugjöf samkvæmt UFS (e. ESG). Í Lúxemborg
starfaði Benoit meðal annars sem fjármálastjóri og einn
af eigendum idi Emerging Markets, fjármálafyrirtæki
sem sérhæfir sig í framtaksfjárfestingum á nýjum mörk-
uðum. Hann starfaði einnig sem yfirmaður skrifstofu
PAI Partners, leiðandi fjármálafyrirtækis á evrópskum
markaði í framtaksfjárfestingum, í Lúxemborg. Benoit var
stjórnarmaður í félagi framtaks- og áhættufjárfestinga í
Lúxemborg og formaður í reikningshalds- og matsnefnd
félagsins í sjö ár.
Ari Fen ger nýr for maður
Við skipta ráðs
Ari Fenger, forstjóri og einn eigenda 1912, sem rekur Nathan & Olsen, Ekruna og
Emmessís, var kjörinn formaður
Viðskiptaráðs Íslands til næstu
tveggja ára á aðalfundi ráðsins í
morgun. Ari, sem var einn í fram-
boði, hefur setið í stjórn Viðskipta-
ráðs frá árinu 2014 og framkvæmda-
stjórn ráðsins frá árinu 2018. Auk þess situr hann í stjórn
Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins.
Hreiðar Þór til Datera
Stafræna birtinga- og ráðgjafa-fyrirtækið Datera hefur ráðið Hreiðar Þór Jónsson sem
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Tryggvi Freyr Elínarson, forveri
Hreiðars, tekur stöðu þróunar-
stjóra og sérfræðings tæknilausna
í stafrænni markaðssetningu.
Hreiðar er menntaður viðskipta-
fræðingur og starfaði sem sölu- og
markaðsstjóri áfengra drykkja hjá Ölgerðinni. Þar vann
hann náið með nokkrum af stærstu fyrirtækjum heims
eins og PepsiCo, Diageo og Carlsberg. Áður starfaði hann
hjá Coca Cola European Partners og í markaðsdeild Sím-
ans. Hreiðar hefur einnig setið í stjórn og gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum hjá ÍMARK.
capacent.is
Ef þú ert með rétta starfið
– erum við með réttu manneskjuna
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.