Fréttablaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 65
Súkkulaði er hollt eins og ber og
ávextir á gómsætri ábætispítsu.
Um helgar, og ekki síst þegar veður er vont, er huggulegt að vera heima við og maula
eitthvað gott. Börn hafa gaman af
því að föndra við sinn mat sjálf og
eins og allir vita eru pítsur í uppá-
haldi hjá börnum og unglingum.
Því er skemmtileg uppástunga að
útbúa ávaxta- og súkkulaðipítsu til
að hafa með eftirmiðdagskaffinu
eða í eftirmat á laugardagskvöldi.
Það er leikur einn að búa til
gómsæta súkkulaðipítsu. Einfald-
ast er að kaupa tilbúið pítsadeig,
f letja það út og baka og smyrja
á það til dæmis Nutella súkku-
laðihnetusmjöri eða þá að bræða
uppáhalds súkkulaðið í vatnsbaði
og strá jafnvel súkkulaðibitum
yfir.
Hitið ofn í 180°C, penslið deigið
með smjöri og bakið á ofnplötu
þar til pítsabotninn er orðinn
gullinn á brúnum. Takið þá út,
smyrjið súkkulaði yfir heitan
botninn og setjið aftur í ofninn
í 2 til 3 mínútur. Þegar pítsan er
komin aftur út skal dreifa yfir
hana söxuðum hnetum að eigin
vali, ávöxtum, berjum og jafnvel
sælgæti, ef vill.
Laugardagstrít
Í dag gefst áhugasömum púsl-urum kostur á að selja og kaupa ný púsl en verslunin Spilavinir
er með púslmarkað frá klukkan
11:30-13:30.
Í viðburðarlýsingu segir að nú
sé „tækifærið til að skipta, selja og
kaupa notuð púsl – jafnvel ný. Spila-
vinir opna kjallarann hjá sér og
setja upp borð fyrir púsluspilasölu.“
Þá kemur fram að það kosti ekkert
að fá borð og að hver og einn haldi
utan um sína sölu. Fólki er ráðlagt
að taka með pening þar sem ólík-
legt sé að seljendur séu með posa.
Þeir sem hafa áhuga geta haft
samband við Spilavini í gegnum
tölvupóst en netfangið er spilavin-
ir@spilavinir.is og einnig má senda
skilaboð í gegnum Facebook.
Púslmarkaður í Spilavinum
Í dag gefst áhuga-
sömum púslurum
kostur á að selja og kaupa
ný púsl.
Spilavinir verða með púslhátíð í dag þegar markaðurinn hefst kl. 11.30.
Á bókasafninu verður kennt að búa
til bolluvendi og sauma öskupoka
Í dag verður notaleg fjölskyldu-stund á 1. hæð Bókasafns Kópa-vogs í samstarfi við Waldorf-
skólann í Lækjarbotnum. Þangað
verður hægt að koma og gera sinn
eigin bolluvönd að danskri fyrir-
mynd eða fínan fígúruöskupoka!
Allt efni verður á staðnum og leið-
beinendur frá Waldorfskólanum
verða þátttakendum til halds og
trausts í smiðjunni. Viðburðurinn
er liður í dagskrá Menningar-
húsanna í Kópavogi, sem fer fram
á laugardögum á Bókasafni
Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúru-
fræðistofu, Héraðsskjalasafni eða
í Salnum í hverri viku. Aðgangur
er ókeypis og allir innilega vel-
komnir!
Í leiðinni er kjörið að kíkja á
borðspila- og púslskiptimark-
aðinn sem fer fram á safninu þessa
dagana og stendur til 22. febrúar.
Hægt er að koma með gömul
borðspil og púsl á bókasafnið
og finna eitthvað spennandi í
staðinn.
Bolluvendir, spil
og öskupokar
Nú þykkri og bragðmeiri
grillsósur frá Hunt’s
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R