Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Hefur þú prófað nýju
kjúklingasteikurnar?
MANNSHVÖRF Einkaspæjaranum
Liam Brady, sem falið var að leita
Jóns Þrastar Jónssonar, hafa borist
nýjar vísbendingar um hvarfið.
Brady staðfestir við Fréttablaðið
að hann og samstarfsmaður hans
séu nú að leita að einstaklingi sem
gæti verið vistaður í fangelsi í til-
teknu Evrópulandi. Telur hann að
þessi aðili gæti veitt mikilvægar
upplýsingar um hvarf Jóns og leitt
rannsóknina áfram.
Frá þessu var greint í írska dag-
blaðinu Independent. Systir Jóns,
Anna Hildur Jónsdóttir, segir að
ákveðið hafi verið að fela Brady
að svara fyrir rannsóknina í fjöl-
miðlum.
„Við erum að vinna með upp-
lýsingar núna sem benda til þess
að það sé ákveðinn aðili sem hafi
vitneskju um málið,“ segir Brady
sem hefur starfað sem einkaspæj-
ari síðan 1976 og komið að manns-
hvarfsmálum áður.
Er Brady nú að reyna að fá viðtal
við þennan einstakling en telur að
það gæti tekið allt að sex vikur. Vill
hann ekki segja á þessari stundu í
hvaða Evrópulandi sá er.
„Ég tel góðar líkur á að þessi ein-
staklingur vilji tala við mig, en get
ekki útilokað að hann vilji það
ekki,“ segir Brady og ítrekar að fólk
geti treyst á trúnað.
Jón Þröstur sást síðast í Dublin
þann 9. febrúar í fyrra en hann fór
til Írlands til að taka þátt í póker-
móti. Rannsókn lögreglu og leit á
svæðinu hefur engu skilað til þessa.
Í desember var greint frá því að
Anna Hildur og Jana Guðjónsdóttir,
unnusta Jóns, hefðu ráðið Brady til
að rannsaka hvarfið.
Er þetta það fyrsta sem heyrist af
rannsókn Bradys en fjölskylda Jóns
er ekki einhuga um rannsóknina.
Fyrir utan þennan einstakling segir
Brady mjög líklegt að fleiri hafi vitn-
eskju um hvarf Jóns Þrastar. „Írland
er ekki stórt land,“ segir hann. – khg
Vilja ræða við aðila sem gæti
haft upplýsingar um Jón Þröst
Einkaspæjara sem leitar Jóns Þrastar Jónssonar og ráðinn var af systur og unnustu hans hafa borist nýjar
vísbendingar í málinu. Nú er leitað að einstaklingi sem gæti verið vistaður í fangelsi í tilteknu Evrópu-
landi sem gæti veitt mikilvægar upplýsingar um hvarf Jóns Þrastar. Rétt ár er nú liðið frá hvarfi hans.
Ég tel góðar líkur á
að þessi einstakl-
ingur vilji tala við mig, en
get ekki útilokað að hann
vilji það ekki.
Liam Brady, einkaspæjari
LÍFIÐ Sólborg Guðbrandsdóttir
setur viðburðinn Milljarður rís sem
fram fer í Hörpu á morgun. Mark-
mið hátíðarinnar, sem haldin er í
áttunda sinn í ár, er að sýna brota-
þolum of beldis samstöðu. Fólk er
hvatt til að mæta og dansa gegn
of beldi.
Sólborg segir mikinn heiður að
hafa verið valin til að
opna hátíðina en
hún hefur verið í
fremstu víglínu
í baráttunni
g e g n k y n -
bundnu ofbeldi
og heldu r
úti síðunni
Fávitar sem
er með yfir
25 þúsund
f y l g j e n d u r
á Instagram.
– ssþ / sjá síðu 34
Setur Milljarður
rís í Hörpu
Óvissa ríkir um framtíð álversins í Straumsvík en Rio Tinto, eigandi þess, útilokar ekki að því verði lokað. Fundað var með starfsmönnum í gærmorgun þar sem farið var yfir erfiða
rekstrarstöðu álversins en eigendur segja það óarðbært vegna hás raforkukostnaðar. Kallað hefur verið eftir endurskoðun raforkusamninga. Sjá nánar síðu 8. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI