Fréttablaðið - 13.02.2020, Side 25

Fréttablaðið - 13.02.2020, Side 25
hún hafi látið f lytja burtu stóran hluta innfæddra íbúa á filippseyskri eyju svo að hún gæti f lutt inn fjölda afrískra dýra, þar á meðal eitt stykki gíraffa. Hún var og er raunar svo alræmd fyrir eyðslusemi að nýtt lýsingarorð, orðið „Imeldific“, var innblásið af henni en það stendur fyrir eyðslusemi, agaleysi og óhóf. Þegar Bítlarnir spiluðu í Manila árið 1966 sendi frúin boð eftir þeim í veislu þar sem hinir gestirnir voru valdamesta fólk Filippseyja á þeim tíma. Þegar þeir létu ekki sjá sig fóru hlutirnir f ljótt úr böndunum. Starfs- fólk hótelsins hætti að þjónusta þá og á f lugvellinum hættu rúllu- stigarnir að virka þegar Bítlarnir og fylgdarlið þeirra nálguðust svo þeir þurftu að bera þunga magnara og hljóðfæratöskur upp stigana. Í ögnþveitinu var sparkað í andlit umboðsmanns Bítlanna, Brian Epstein, og sparkað svo fast í rótarann Mal Evans að hann rif- beinsbrotnaði. Þá öskraði einhver á ensku að Bítlarnir væru ekkert sér- stakir og ættu að fá sömu meðferð og aðrir farþegar. Lennon svaraði þá um hæl: Venjulegir farþegar? Það er ekki sparkað í þá og þeir lamdir, er það? Nokkrum árum síðar, árið 1972, var Imelda svo stungin í hendur og handleggi í misheppnaðri morðtil- raun. Hún sagði síðar að það fyrsta sem hún hefði hugsað meðan á árásinni stóð var hversu ljótt morð- vopnið væri og að árásarmaðurinn hefði betur skreytt vopnið með gulum borða. Það er nefnilega það. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Ég verð að hafa mig til og gera mig fallegri vegna þess að hin fátæku eru alltaf í leit að stjörnu í myrkri nætur,“ sagði Imelda eitt sinn. Óhætt er að fullyrða að fáar konur í mannkyns- sögunni hafi verið jafn áberandi og umdeildar og hún. Imelda fæddist árið 1929 og giftist eiginmanni sínum Ferdinand Marcos árið 1954, ekki nema 11 dögum eftir þeirra fyrstu kynni, og var forsetafrú í 21 ár. Svívirðilegt skósafn Þrátt fyrir að vera afar umdeild þótti Imelda glæsileg á sínum yngri árum og þá sérstaklega á sjöunda áratugnum og var hún meira að segja kölluð „hin filippseyska Jackie Kennedy“. Hún notaði svartan augn- blýant, túperaði hárið, setti það upp og klæddist vönduðustu fötum sem völ var á. Meðal þess sem hún hafði fyrir stafni var að halda íburðarmiklar veislur fyrir frægt og ríkt fólk víðs vegar að úr heiminum. Hún naut mikilla vinsælda meðal stjórnmála- leiðtoga á borð við Fidel Castro, Muhammed Gaddafi og Banda- ríkjaforsetana Lyndon B. Johnson og Ronald Reagan meðan á valdatíð þeirra stóð. Castro sagði að það væru bara tvær konur sem hann myndi setjast í bílstjórasætið fyrir, móðir hans og Imelda Marcos. Það sem var þó sennilega hvað mest talað um í fari Imeldu var stjórnlaust skóblæti en hún er sögð hafa átt yfir 3.000 skópör. Imelda var ekki sátt við þessar fullyrðingar og sá sig síðar knúna til þess að leiðrétta mýtuna. „Ég átti ekki 3.000 skópör, þau voru 1.060.“ Þá eyddi hún líka miklum fjármunun í listaverk og skartgripi. Ostahneisan og Bítlarnir Eftirminnilegasta verslunarferðin var þó vafalaust þegar hún lét f lug- stjóra snúa við á miðri leið og fljúga aftur til Rómar vegna þess að hún hafði gleymt að kaupa tiltekinn ost. Var atvikið nefnt „Ostahneisan“ eða „The Cheese Scandal“. Eyðsluáráttu Imeldu virtust engin takmörk sett en ein sagan segir að Gullþyrsta stálfiðrildið Nafn hinnar umdeildu forsetafrúar Filippseyja, Imeldu Marcos, er í hugum margra samofið spillingu og græðgi. Á góðri stundu með Ronald Reagan. Bítlarnir standa í ströngu í heimsókn sinni til Filippseyja. MYND/GETTY Imelda ásamt Lyndon B. Johnson. Imelda Marcos eyddi gríðarleg- um fjármunum í veraldlega hluti. MYND/GETTY Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS -20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM BUXUM FRÁ ZHENZI OG ZE-ZE Með því að auglýsa í Atvinnublaðinu nær þitt fyrirtæki til 89% lesenda dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.