Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 14
AF KÖGUNARHÓLI Þorsteinn Pálsson Hótunin um að greiða ekki aukafjár- veitinguna virðist ekki eiga stoð í ákvörðun Alþingis um hana. Gildismat er mikilvægt við pólitískar ákvarðanir. Það er til að mynda forsenda fyrir því að unnt sé að forgangsraða verkefnum, sem er eitt mikilvægasta hlutverk stjórnmálamanna. Heilbrigðisráðherra skrifaði fyrir nokkrum vikum undir þjónustusamn- inga um rekstur hjúkrunarheimila. Til þess að skoða gildismatið, sem að baki býr, þarf samanburð. Í þeim tilgangi er fróðlegt að skoða búvörusamningana. Í báðum tilvikum greiðir ríkið sinn hlut á móti beinum greiðslum neytenda landbúnaðarafurðanna og notenda hjúkrunarþjónustunnar. Svo vill til að þeir þrír f lokkar, sem sitja í núverandi ríkisstjórn, stóðu einnig að og studdu gerð búvöru- samninga. Samanburðurinn er því líka pólitískt hliðstæður. Samningstími er mælikvarði á gildismat Samningstími er lykilatriði í rekstri þeirra sem stunda framleiðslu búvöru. Sama er að segja um þá sem annast rekstur hjúkrunarheimila. En hér kemur til sögunnar mismunandi og afar áhugavert gildismat. Flokkarnir þrír, sem að þessum samningum hafa staðið, telja fráleitt að takmarka rekstraröryggi við fram- leiðslu búvara við skemmri tíma en tíu ár. Flestir telja það sanngjarnt. Þegar kemur að samningum um framlög til hjúkrunarheimila telur heilbrigðisráðherra aftur á móti fráleitt að tryggja rekstur þeirra með samn- ingum til lengri tíma en tveggja ára. Búvörusamningarnir þykja almennt ekki lýsa of háu gildismati á starfi bænda. Samt er það fimm sinnum hærra en á samningunum um rekstur hjúkrunarheimila samkvæmt þessum mælikvarða. Verðtrygging lýsir mismunandi gildismati Stjórnarflokkarnir þrír eru allir sammála um að nauðsyn beri til að verðtryggja framlag ríkisins í búvöru- samningum. Allt annað sé ósanngjarnt gagnvart bændum og neytendum. Fyrir því má færa ýmis rök. Við gerð samninga um rekstur hjúkr- unarheimila telur heilbrigðisráðherra hins vegar að það stríði gegn megin- reglum um ábyrga fjármálastjórn að verðtryggja framlög ríkisins og hefur í því efni óblandinn stuðning þing- manna stjórnarflokkanna. Framsókn er til að mynda í prinsippinu á móti allri verðtryggingu en telur hana lífs- nauðsynlega í búvörusamningum. Einnig á þennan mælikvarða sker munurinn á gildismati í augu. Sátt og hótanir lýsa mismunandi gildismati Það hefur komið fyrir við gerð búvöru- samninga og endurskoðun þeirra að óánægja hefur komið upp á meðal bænda. Þá hefur ríkið sest aftur að samningaborði. Það hefur aldrei skilið við samninga án þess að bændur væru almennt vel sáttir eða að minnsta kosti sæmilega sáttir. Almenn og djúp óánægja ríkir hins vegar með síðustu samninga heil- brigðisráðherra um rekstur hjúkrunar- heimila hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samtökum íslenskra sveitarfélaga. Yfirlýsing samninganefndar þessara aðila verður ekki skilin á annan veg en að skrifað hafi verið undir samninga um skert framlög vegna hótunar um að ella yrði skerðingin aukin enn frekar með því að greiða ekki aukafjárveitingu, sem Alþingi ákvað. Hótunin um að greiða ekki auka- fjárveitinguna virðist ekki eiga stoð í ákvörðun Alþingis um hana. Það gæti verið tilefni athugunar á meðferð ráð- herravalds. En aðalatriðið er að fyrirfram ákveðnar skerðingar og hótanir um að virða ekki ákvarðanir Alþingis er enn ein birtingarmyndin um mismunandi gildismat á samningum um búvöru- framleiðslu og hjúkrun aldraðra. Leysir ekki fráflæðisvandann Í viðtali við Morgunblaðið 23. janúar sagði framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu að Sjúkratryggingar hefðu í upphafi við- ræðna sagt að fyrir lægi að það yrði niðurskurður á þessu ári, sem semja yrði um. Þessi orð eru vísbending um að heilbrigðisráðherra sé ekki að leysa það sem kallað hefur verið fráflæðis- vandi Landspítalans á þessu kjörtíma- bili með því að auka og bæta hjúkrun aldraðra. Fréttir berast jafnvel af því að hjúkrunarheimilin séu farin að senda skjólstæðinga sína til baka inn á Land- spítalann og fleiri sveitarfélög vilji skila rekstrinum til ríkisins. Engu er því líkara en eitthvað hafi verið missagt í þessum efnum. Það er líka dæmi um gildismat. Framleiðsla búvöru og hjúkrun aldraðra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU – MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS Það er hvergi betri staður fyrir ölpóst en inni í Fréttablaðinu. Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Íslendinga lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali.* Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst a orn@frettabladid.is. Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. 93.000 *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.