Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 49
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Thomasar Möller BAKÞANKAR LAUGARÁSVEGI 1 Ísland hefur á rúmri öld breyst úr einu fátækasta landi Evrópu í eitt af þeim ríkustu. Þessi velferð okkar hefur oft byggst á heppni frekar en fyrirhyggju. Síð- ustu áratugir hafa verið röð af „til- fallandi búhnykkjum“ eins og það var orðað í Silfrinu nýlega. Fyrst kom síldin, svo kom stríðið, síðan Kaninn og Marshall aðstoðin. Svo kom síldin aftur, síðan kom hækkun álverðs og fiskverðs, netbóla og bankabóla, makríll og loðna. Síðan komu ferðamenn sem er nýjasti búhnykkurinn. Við verðum að byggja hagsæld okkar í auknum mæli á hugviti og nýsköpun í stað náttúruauðlinda og heppni. Nýlega var viðtal í Fréttablaðinu við Guðmund Sigurjónsson, forstjóra Kerecis, sem framleiðir sáraumbúðir úr þorskroði. Kerecis tekst að búa til verðmæti sem nema um hálfri milljón króna úr hverjum þorski. Það er um hundrað sinnum meiri tekjur af hverjum þorski en hann gefur af sér við hefðbundna framleiðslu. Hugvitið mun skipta sköpum fyrir hagvöxt á næstu árum. Það þarf fleiri svona fyrir- tæki til að efla lífskjörin hér. Samtök iðnaðarins hafa til- einkað árið 2020 nýsköpun. Á sama tíma kemur fram að meiri- hluti svarenda í könnun Gallups meðal um 750 frumkvöðla telur að Ísland sé ekki góður staður fyrir fyrirtæki í örum vexti eða alþjóðleg nýsköpunarfyrirtæki. Í könnuninni kom fram að 73,5 pró- sent svarenda töldu séríslenskan gjaldmiðil hafa neikvæð áhrif á rekstur síns fyrirtækis. Ef þetta er skoðun frumkvöðl- anna þurfa stjórnvöld að gjör- breyta rekstrarumhverfi nýsköp- unar. Annars gætum við þurft að reiða okkur áfram á tilfallandi búhnykki. Hálf milljón fyrir einn þorsk FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *GERIR KRAFTAVERK* / Fyrir DAGLEGT BRAUÐ / Hummusinn frá Sóma

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.