Fréttablaðið - 13.02.2020, Síða 49
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Thomasar
Möller
BAKÞANKAR
LAUGARÁSVEGI 1
Ísland hefur á rúmri öld breyst úr einu fátækasta landi Evrópu í eitt af þeim ríkustu. Þessi
velferð okkar hefur oft byggst á
heppni frekar en fyrirhyggju. Síð-
ustu áratugir hafa verið röð af „til-
fallandi búhnykkjum“ eins og það
var orðað í Silfrinu nýlega. Fyrst
kom síldin, svo kom stríðið, síðan
Kaninn og Marshall aðstoðin.
Svo kom síldin aftur, síðan kom
hækkun álverðs og fiskverðs,
netbóla og bankabóla, makríll og
loðna. Síðan komu ferðamenn sem
er nýjasti búhnykkurinn.
Við verðum að byggja hagsæld
okkar í auknum mæli á hugviti og
nýsköpun í stað náttúruauðlinda
og heppni.
Nýlega var viðtal í Fréttablaðinu
við Guðmund Sigurjónsson,
forstjóra Kerecis, sem framleiðir
sáraumbúðir úr þorskroði. Kerecis
tekst að búa til verðmæti sem nema
um hálfri milljón króna úr hverjum
þorski. Það er um hundrað sinnum
meiri tekjur af hverjum þorski en
hann gefur af sér við hefðbundna
framleiðslu. Hugvitið mun skipta
sköpum fyrir hagvöxt á næstu
árum. Það þarf fleiri svona fyrir-
tæki til að efla lífskjörin hér.
Samtök iðnaðarins hafa til-
einkað árið 2020 nýsköpun. Á
sama tíma kemur fram að meiri-
hluti svarenda í könnun Gallups
meðal um 750 frumkvöðla telur
að Ísland sé ekki góður staður
fyrir fyrirtæki í örum vexti eða
alþjóðleg nýsköpunarfyrirtæki. Í
könnuninni kom fram að 73,5 pró-
sent svarenda töldu séríslenskan
gjaldmiðil hafa neikvæð áhrif á
rekstur síns fyrirtækis.
Ef þetta er skoðun frumkvöðl-
anna þurfa stjórnvöld að gjör-
breyta rekstrarumhverfi nýsköp-
unar. Annars gætum við þurft að
reiða okkur áfram á tilfallandi
búhnykki.
Hálf milljón
fyrir einn þorsk
FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO
*GERIR KRAFTAVERK*
/ Fyrir DAGLEGT BRAUÐ /
Hummusinn frá Sóma