Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 11
Kaldalón er grunnt og fallegir steinar setja svip á fjörðinn. MYND/PÁLL STEFÁNSSON Ofan Votu- bjarga er ótrú- legt útsýni yfir Kaldalón og Ísafjarðardjúp. MYND/DAGNÝ HEIÐDAL Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Í norðanverðu Ísafjarðardjúpi er fallegur fjörður sem ber kuldalegt nafn, Kaldalón, sem þó á ekki við um magnaða náttúruna. Kaldalón er grunnt og víða stingast steinar upp úr leirugum botninum. Innar tekur við gróinn dalbotn með kjarri sem teygir sig upp brattar hlíðar beggja vegna. Niður hátt þverhnípið steypist síðan fjöldi fossa og kallast klettabeltið austan megin Votubjörg. Önnur skemmtileg örnefni eru jökuláin Mórilla og kletturinn Keggsir en í honum er drangur sem heitir Sigga. Í Kaldalóni hefst vinsæl göngu- og skíðaleið á Drangajökul, nyrsta jökul landsins. Gengið er meðfram Mórillu inn að Kaldalónsjökli, skriðjökli frá Dranga- jökli, sem berst fyrir lífi sínu vegna hlýnandi loftslags. Skammt frá er fallegur foss í Mórillu sem gaman er að skoða. Auðvelt er að komast upp Kaldalónsjökul og í langri dagsferð má ná hæsta punkti Drangajökuls, Jökulbungu. Hún er 925 m há og sést af henni yfir Jökulfirði og Hornstrandir. Fleiri taka þó stefnuna á tilkomumeiri tind austar sem kallast Hrolleifsborg (851 m) og býður upp á frábært útsýni yfir Strandir. Einnig má halda niður í Reykjarfjörð nyrðri en þar bíða hús og heit útisundlaug. Fyrir þá sem kjósa styttri göngu er tilvalið að ganga að Kaldalónsjökli og upp með honum uns komið er ofan við Votubjörg. Þarna býðst frábært útsýni yfir Kaldalón en einnig hluta Ísafjarðardjúps. Aðeins vestar er Æðey, kirkjustaðurinn Unaðsdalur og jörðin Tyrðilmýri sem er dyragættin að snævi þöktum fjöllum Snæfjallastrandar. Lengst af var búið í Kaldalóni og nágrenni þess og er tónskáldið og læknirinn Sigvaldi Kaldalóns (fæddur 1881) eflaust frægasti ábúandinn. Þarna stundaði hann læknisstörf og samdi tónlist en síðar átti hann eftir að verða á meðal okkar dáðustu tónskálda. Ísland ögrum skorið er talin hans frægasta tónsmíð en önnur þekkt lög eru Á Sprengisandi, Suðurnesjamenn, Hamra- borgin, Ave María og Þú eina hjartans yndið mitt. Sigvalda þótti Kaldalón svo fallegt að hann ákvað rúm- lega þrítugur að taka sér ættarnafnið Kaldalóns. Síðar á ævinni veiktist hann illa af taugaveiki og flutti til Flateyjar eftir endurhæfingu á Vífilsstöðum og í Dan- mörku. Hann flutti síðan til Grindavíkur og lést 1946. Skammt austur af Kaldalóni er Skjaldfannar- dalur en þar eru jökulár sem staðið hefur til að virkja með svokallaðri Austurgilsvirkjun. Landsvirkjun sagði sig þó nýlega frá verk- inu sem var skynsamleg ákvörðun því virkjun hefði skert ósnortin víðerni í næsta nágrenni Kaldalóns og ekki viljum við sjá Ísland örum skorið. Músík Kaldalóns Horft til norðurs inn Kaldalón. Fyrir miðju er Kalda- klofsjökull en í fjarska sést í Jökulbungu og Hrolleifsborg. MYND/MATS WIBE LUND 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.