Fréttablaðið - 13.02.2020, Síða 11
Kaldalón er grunnt og fallegir steinar setja svip á fjörðinn. MYND/PÁLL STEFÁNSSON
Ofan Votu-
bjarga er ótrú-
legt útsýni yfir
Kaldalón og
Ísafjarðardjúp.
MYND/DAGNÝ
HEIÐDAL
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Í norðanverðu Ísafjarðardjúpi er fallegur fjörður sem ber kuldalegt nafn, Kaldalón, sem þó á ekki við um magnaða náttúruna. Kaldalón er grunnt og víða stingast steinar upp úr leirugum botninum. Innar tekur við gróinn dalbotn með kjarri sem teygir sig upp brattar hlíðar beggja
vegna. Niður hátt þverhnípið steypist síðan fjöldi fossa
og kallast klettabeltið austan megin Votubjörg. Önnur
skemmtileg örnefni eru jökuláin Mórilla og kletturinn
Keggsir en í honum er drangur sem heitir Sigga.
Í Kaldalóni hefst vinsæl göngu- og skíðaleið á
Drangajökul, nyrsta jökul landsins. Gengið er meðfram
Mórillu inn að Kaldalónsjökli, skriðjökli frá Dranga-
jökli, sem berst fyrir lífi sínu vegna hlýnandi loftslags.
Skammt frá er fallegur foss í Mórillu sem gaman er að
skoða. Auðvelt er að komast upp Kaldalónsjökul og
í langri dagsferð má ná hæsta punkti Drangajökuls,
Jökulbungu. Hún er 925 m há og sést af henni yfir
Jökulfirði og Hornstrandir. Fleiri taka þó stefnuna á
tilkomumeiri tind austar sem kallast Hrolleifsborg (851
m) og býður upp á frábært útsýni yfir Strandir. Einnig
má halda niður í Reykjarfjörð nyrðri en þar bíða hús
og heit útisundlaug. Fyrir þá sem kjósa styttri göngu er
tilvalið að ganga að Kaldalónsjökli og upp með honum
uns komið er ofan við Votubjörg. Þarna býðst frábært
útsýni yfir Kaldalón en einnig hluta Ísafjarðardjúps.
Aðeins vestar er Æðey, kirkjustaðurinn Unaðsdalur og
jörðin Tyrðilmýri sem er dyragættin að snævi þöktum
fjöllum Snæfjallastrandar.
Lengst af var búið í Kaldalóni og nágrenni þess og er
tónskáldið og læknirinn Sigvaldi Kaldalóns (fæddur
1881) eflaust frægasti ábúandinn. Þarna stundaði hann
læknisstörf og samdi tónlist en síðar átti hann eftir að
verða á meðal okkar dáðustu tónskálda. Ísland ögrum
skorið er talin hans frægasta tónsmíð en önnur þekkt
lög eru Á Sprengisandi, Suðurnesjamenn, Hamra-
borgin, Ave María og Þú eina hjartans yndið mitt.
Sigvalda þótti Kaldalón svo fallegt að hann ákvað rúm-
lega þrítugur að taka sér ættarnafnið Kaldalóns. Síðar
á ævinni veiktist hann illa af taugaveiki og flutti til
Flateyjar eftir endurhæfingu á Vífilsstöðum og í Dan-
mörku. Hann flutti síðan til Grindavíkur og lést 1946.
Skammt austur af Kaldalóni er Skjaldfannar-
dalur en þar eru jökulár sem staðið hefur til
að virkja með svokallaðri Austurgilsvirkjun.
Landsvirkjun sagði sig þó nýlega frá verk-
inu sem var skynsamleg ákvörðun því
virkjun hefði skert ósnortin víðerni
í næsta nágrenni Kaldalóns og ekki
viljum við sjá Ísland örum skorið.
Músík
Kaldalóns
Horft til
norðurs inn
Kaldalón. Fyrir
miðju er Kalda-
klofsjökull en
í fjarska sést í
Jökulbungu og
Hrolleifsborg.
MYND/MATS WIBE
LUND
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð