Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 14
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Hótunin um
að greiða
ekki
aukafjár-
veitinguna
virðist ekki
eiga stoð í
ákvörðun
Alþingis um
hana.
Gildismat er mikilvægt við pólitískar ákvarðanir. Það er til að mynda forsenda fyrir því að
unnt sé að forgangsraða verkefnum,
sem er eitt mikilvægasta hlutverk
stjórnmálamanna.
Heilbrigðisráðherra skrifaði fyrir
nokkrum vikum undir þjónustusamn-
inga um rekstur hjúkrunarheimila. Til
þess að skoða gildismatið, sem að baki
býr, þarf samanburð. Í þeim tilgangi er
fróðlegt að skoða búvörusamningana. Í
báðum tilvikum greiðir ríkið sinn hlut
á móti beinum greiðslum neytenda
landbúnaðarafurðanna og notenda
hjúkrunarþjónustunnar.
Svo vill til að þeir þrír f lokkar, sem
sitja í núverandi ríkisstjórn, stóðu
einnig að og studdu gerð búvöru-
samninga. Samanburðurinn er því líka
pólitískt hliðstæður.
Samningstími er
mælikvarði á gildismat
Samningstími er lykilatriði í rekstri
þeirra sem stunda framleiðslu búvöru.
Sama er að segja um þá sem annast
rekstur hjúkrunarheimila. En hér
kemur til sögunnar mismunandi og
afar áhugavert gildismat.
Flokkarnir þrír, sem að þessum
samningum hafa staðið, telja fráleitt
að takmarka rekstraröryggi við fram-
leiðslu búvara við skemmri tíma en tíu
ár. Flestir telja það sanngjarnt.
Þegar kemur að samningum um
framlög til hjúkrunarheimila telur
heilbrigðisráðherra aftur á móti fráleitt
að tryggja rekstur þeirra með samn-
ingum til lengri tíma en tveggja ára.
Búvörusamningarnir þykja almennt
ekki lýsa of háu gildismati á starfi
bænda. Samt er það fimm sinnum
hærra en á samningunum um rekstur
hjúkrunarheimila samkvæmt þessum
mælikvarða.
Verðtrygging lýsir
mismunandi gildismati
Stjórnarflokkarnir þrír eru allir
sammála um að nauðsyn beri til að
verðtryggja framlag ríkisins í búvöru-
samningum. Allt annað sé ósanngjarnt
gagnvart bændum og neytendum.
Fyrir því má færa ýmis rök.
Við gerð samninga um rekstur hjúkr-
unarheimila telur heilbrigðisráðherra
hins vegar að það stríði gegn megin-
reglum um ábyrga fjármálastjórn að
verðtryggja framlög ríkisins og hefur
í því efni óblandinn stuðning þing-
manna stjórnarflokkanna. Framsókn
er til að mynda í prinsippinu á móti
allri verðtryggingu en telur hana lífs-
nauðsynlega í búvörusamningum.
Einnig á þennan mælikvarða sker
munurinn á gildismati í augu.
Sátt og hótanir lýsa
mismunandi gildismati
Það hefur komið fyrir við gerð búvöru-
samninga og endurskoðun þeirra að
óánægja hefur komið upp á meðal
bænda. Þá hefur ríkið sest aftur að
samningaborði. Það hefur aldrei skilið
við samninga án þess að bændur væru
almennt vel sáttir eða að minnsta kosti
sæmilega sáttir.
Almenn og djúp óánægja ríkir hins
vegar með síðustu samninga heil-
brigðisráðherra um rekstur hjúkrunar-
heimila hjá Samtökum fyrirtækja
í velferðarþjónustu og Samtökum
íslenskra sveitarfélaga. Yfirlýsing
samninganefndar þessara aðila verður
ekki skilin á annan veg en að skrifað
hafi verið undir samninga um skert
framlög vegna hótunar um að ella yrði
skerðingin aukin enn frekar með því
að greiða ekki aukafjárveitingu, sem
Alþingi ákvað.
Hótunin um að greiða ekki auka-
fjárveitinguna virðist ekki eiga stoð í
ákvörðun Alþingis um hana. Það gæti
verið tilefni athugunar á meðferð ráð-
herravalds.
En aðalatriðið er að fyrirfram
ákveðnar skerðingar og hótanir um að
virða ekki ákvarðanir Alþingis er enn
ein birtingarmyndin um mismunandi
gildismat á samningum um búvöru-
framleiðslu og hjúkrun aldraðra.
Leysir ekki fráflæðisvandann
Í viðtali við Morgunblaðið 23. janúar
sagði framkvæmdastjóri Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu að
Sjúkratryggingar hefðu í upphafi við-
ræðna sagt að fyrir lægi að það yrði
niðurskurður á þessu ári, sem semja
yrði um.
Þessi orð eru vísbending um að
heilbrigðisráðherra sé ekki að leysa
það sem kallað hefur verið fráflæðis-
vandi Landspítalans á þessu kjörtíma-
bili með því að auka og bæta hjúkrun
aldraðra. Fréttir berast jafnvel af því að
hjúkrunarheimilin séu farin að senda
skjólstæðinga sína til baka inn á Land-
spítalann og fleiri sveitarfélög vilji
skila rekstrinum til ríkisins.
Engu er því líkara en eitthvað hafi
verið missagt í þessum efnum. Það er
líka dæmi um gildismat.
Framleiðsla búvöru og hjúkrun aldraðra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
– MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
Það er hvergi betri staður fyrir ölpóst en inni í Fréttablaðinu.
Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað!
Íslendinga lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali.*
Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050
eða sendu tölvupóst a orn@frettabladid.is.
Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.
93.000
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0