Fréttablaðið - 13.02.2020, Síða 25
hún hafi látið f lytja burtu stóran
hluta innfæddra íbúa á filippseyskri
eyju svo að hún gæti f lutt inn fjölda
afrískra dýra, þar á meðal eitt stykki
gíraffa. Hún var og er raunar svo
alræmd fyrir eyðslusemi að nýtt
lýsingarorð, orðið „Imeldific“, var
innblásið af henni en það stendur
fyrir eyðslusemi, agaleysi og óhóf.
Þegar Bítlarnir spiluðu í Manila
árið 1966 sendi frúin boð eftir þeim
í veislu þar sem hinir gestirnir voru
valdamesta fólk Filippseyja á þeim
tíma. Þegar þeir létu ekki sjá sig fóru
hlutirnir f ljótt úr böndunum. Starfs-
fólk hótelsins hætti að þjónusta
þá og á f lugvellinum hættu rúllu-
stigarnir að virka þegar Bítlarnir
og fylgdarlið þeirra nálguðust
svo þeir þurftu að bera þunga
magnara og hljóðfæratöskur upp
stigana. Í ögnþveitinu var sparkað
í andlit umboðsmanns Bítlanna,
Brian Epstein, og sparkað svo fast
í rótarann Mal Evans að hann rif-
beinsbrotnaði. Þá öskraði einhver á
ensku að Bítlarnir væru ekkert sér-
stakir og ættu að fá sömu meðferð og
aðrir farþegar. Lennon svaraði þá um
hæl: Venjulegir farþegar? Það er ekki
sparkað í þá og þeir lamdir, er það?
Nokkrum árum síðar, árið 1972,
var Imelda svo stungin í hendur og
handleggi í misheppnaðri morðtil-
raun. Hún sagði síðar að það fyrsta
sem hún hefði hugsað meðan á
árásinni stóð var hversu ljótt morð-
vopnið væri og að árásarmaðurinn
hefði betur skreytt vopnið með
gulum borða. Það er nefnilega það.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Ég verð að hafa mig til og gera mig fallegri vegna þess að hin fátæku eru alltaf í leit
að stjörnu í myrkri nætur,“ sagði
Imelda eitt sinn. Óhætt er að
fullyrða að fáar konur í mannkyns-
sögunni hafi verið jafn áberandi og
umdeildar og hún. Imelda fæddist
árið 1929 og giftist eiginmanni
sínum Ferdinand Marcos árið 1954,
ekki nema 11 dögum eftir þeirra
fyrstu kynni, og var forsetafrú í 21 ár.
Svívirðilegt skósafn
Þrátt fyrir að vera afar umdeild
þótti Imelda glæsileg á sínum yngri
árum og þá sérstaklega á sjöunda
áratugnum og var hún meira að
segja kölluð „hin filippseyska Jackie
Kennedy“. Hún notaði svartan augn-
blýant, túperaði hárið, setti það upp
og klæddist vönduðustu fötum sem
völ var á.
Meðal þess sem hún hafði fyrir
stafni var að halda íburðarmiklar
veislur fyrir frægt og ríkt fólk víðs
vegar að úr heiminum. Hún naut
mikilla vinsælda meðal stjórnmála-
leiðtoga á borð við Fidel Castro,
Muhammed Gaddafi og Banda-
ríkjaforsetana Lyndon B. Johnson
og Ronald Reagan meðan á valdatíð
þeirra stóð. Castro sagði að það væru
bara tvær konur sem hann myndi
setjast í bílstjórasætið fyrir, móðir
hans og Imelda Marcos.
Það sem var þó sennilega hvað
mest talað um í fari Imeldu var
stjórnlaust skóblæti en hún er sögð
hafa átt yfir 3.000 skópör. Imelda var
ekki sátt við þessar fullyrðingar og
sá sig síðar knúna til þess að leiðrétta
mýtuna. „Ég átti ekki 3.000 skópör,
þau voru 1.060.“ Þá eyddi hún líka
miklum fjármunun í listaverk og
skartgripi.
Ostahneisan og Bítlarnir
Eftirminnilegasta verslunarferðin
var þó vafalaust þegar hún lét f lug-
stjóra snúa við á miðri leið og fljúga
aftur til Rómar vegna þess að hún
hafði gleymt að kaupa tiltekinn ost.
Var atvikið nefnt „Ostahneisan“ eða
„The Cheese Scandal“.
Eyðsluáráttu Imeldu virtust engin
takmörk sett en ein sagan segir að
Gullþyrsta stálfiðrildið
Nafn hinnar umdeildu forsetafrúar Filippseyja, Imeldu
Marcos, er í hugum margra samofið spillingu og græðgi.
Á góðri stundu með Ronald Reagan.
Bítlarnir standa í ströngu í heimsókn sinni til Filippseyja. MYND/GETTY
Imelda ásamt Lyndon B. Johnson.
Imelda Marcos
eyddi gríðarleg-
um fjármunum í
veraldlega hluti.
MYND/GETTY
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
-20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM BUXUM
FRÁ ZHENZI OG ZE-ZE
Með því að auglýsa í
Atvinnublaðinu nær
þitt fyrirtæki til 89%
lesenda dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R