Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 1

Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 1
F I M M T U D A G U R 7. N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  262. tölublað  107. árgangur  ATVINNUBLAÐ MORGUN- BLAÐSINS GULLÖLD FYRIR TÓNLISTARLÍFIÐ Á ÍSLANDI ÓLYMPÍULEIKARNIR Í BERLÍN 1936 32 SINFÓNÍUTÓNLEIKAR 72FINNA VINNU  Það sem af er árinu hafa 5.500 fullorðnir einstaklingar, fæddir ár- ið 2000 eða fyrr, verið bólusettir gegn mislingum, samanborið við 614 allt árið í fyrra. Flestir voru bólusettir í kjölfar þess að tak- markaður mislingafaraldur kom upp hér í febrúar. Mislingar eru skæður smit- sjúkdómur sem getur leitt til dauða. Ný rannsókn, sem birtist í tímaritinu Science, bendir einnig til þess að mislingaveiran eyði mót- efnum sem myndast hafa gegn öðr- um barnasjúkdómum og börn þurfi því að reisa varnir líkamans upp á nýtt. Læknar sem hafa tjáð sig um rannsóknina segja að hún undir- striki mikilvægi bólusetningar gegn mislingum. »20 Morgunblaðið/Hari Bólusetning Margir fullorðnir hafa látið bólusetja sig í ár gegn mislingum. 5.500 bólusett gegn mislingum í ár  Þorgeir Páls- son, fyrrverandi flugmálastjóri, segir borgar- stjóra ekki draga upp rétta mynd af skýrslu um ör- yggishlutverk Reykjavíkur- flugvallar. Borgarstjóri láti ógert að nefna margvíslega fyrirvara sem gerðir séu við Hvassahraun sem flugvall- arstæði, sem komi í veg fyrir að hægt sé að taka nú ákvörðun um byggingu flugvallar á þessum stað. Tilefnið er viðtal við borgar- stjóra í Morgunblaðinu um síðustu helgi. „Mér finnst borgarstjóri gera lítið úr getu Reykjavíkurflugvallar sem varaflugvallar,“ segir Þorgeir. Ingvar Tryggvason, formaður öryggisnefndar Félags íslenskra at- vinnuflugmanna, segir það rangt hjá Degi borgarstjóra að Icelandair muni ekki geta notað Max-vélarnar á Reykjavíkurflugvelli. Það sé al- vörumál að setja fram rangfærslur og afvegaleiða umræðuna. »22 Segja borgarstjóra fara með rangt mál Þorgeir Pálsson Iceland Airwaves sem er fjögurra daga tónlist- arhátíð í Reykjavík hófst í gær. Forseti Íslands setti hátíðina á hjúkrunarheimilinu Grund. Í gærkvöldi voru síðan 26 tónleikar á fimm stöð- um í miðborg Reykjavíkur. Meðal annars kom söngkonan Valborg Ólafs fram í Hressingarskál- anum með samnefndu bandi. Hafði hún salinn á sínu bandi. Hátíðinni lýkur með stórtónleikum á Hlíðarenda á laugardagskvöldið. »73 Morgunblaðið/Eggert Airwaves-tónlistarhátíðin hófst með látum í miðbænum Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Helstu rútufyrirtæki landsins buðu í akstursþjónustu fatlaðra í Kópavogi og buðu tvö þeirra, Snæland Gríms- son og Teitur Jónasson, talsvert lægra en fjárhagsáætlun bæjarins gerði ráð fyrir. Haraldur Teitsson, framkvæmda- stjóri Teits Jónassonar, segir að rútu- fyrirtæki séu í auknum mæli farin að horfa til annars konar þjónustu en þjónustu við ferðamenn vegna breyttra aðstæðna á markaði. „Við höfum verið og erum í sambærilegum akstri svo við þekkjum þetta alveg. Markaðurinn er farinn að þrengjast vegna fækkunar ferðamanna og þá þurfa menn einfaldlega að horfa í kringum sig,“ segir Haraldur. Alls buðu átta fyrirtæki í þjón- ustuna en tilboð Teits Jónassonar var lægst, eða 776 milljónir króna. Er það 64,7% af áætlun Kópavogsbæjar, sem var upp á 1,2 milljarða króna. Snæ- land Grímsson bauð næstlægst, eða 934,5 milljónir. Tilboð annarra fyrir- tækja voru öll talsvert nær fjárhags- áætluninni. Samningur um þjón- ustuna er gerður til fimm ára. Eina fyrirtækið sem bauð hærra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir var fyrirtækið Ferðó, sem hefur séð um þennan akstur. Bauð það um 1.353 milljónir króna. Spurður hvort tilboð Teits Jónas- sonar sé raunhæft segir Haraldur: „Miðað við það hvernig útboðs- gögnin eru ætti tilboðið að vera það. Svo spyr maður sig líka út frá hverju kostnaðaráætlunin sé gerð. Ef maður sér fyrri tilboð og fyrri útboð kemur svolítið önnur mynd á þetta. Sam- kvæmt gögnunum á þetta að vera hægt en svo veit maður aldrei.“ Morgunblaðið leitaði til Kópavogs- bæjar vegna útboðsins en almanna- tengill Kópavogsbæjar gat ekki tjáð sig um málið fyrr en niðurstöður út- boðsins yrðu lagðar fyrir bæjarráð. Það verður gert í dag. Þrengir að í ferðaþjónustu  Átta rútufyrirtæki buðu í akstur fatlaðra í Kópavogi  Mikill áhugi talinn merki um þrengingar á markaðnum  Tilboðin tekin fyrir í bæjarráði Kópavogs í dag GERÐU GARÐINN FRÆGAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.