Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kanna upplifun sjúklinga af þjónustu  Landlæknisembættið gerir úttekt á starfsemi Reykjalundar  Á að geta tekið skamman tíma  Stjórn SÍBS fagnar úttektinni  Formaður læknaráðs treystir á fagmannleg vinnubrögð yfirvalda Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sérstaklega verður horft til upplif- unar sjúklinga af þjónustu Reykja- lundar í úttekt sem landlæknisemb- ættið mun gera á stofnuninni á næstu dögum. Að því leyti er athug- unin frábrugðin öðrum úttektum landlæknis. Einnig verður rætt við starfsfólk um upplifun þess af ástandinu. Landlæknir sagði frá hugmyndum embættisins um úttekt á Reykja- lundi á samráðsfundi með Sjúkra- tryggingum Íslands og heilbrigðis- ráðuneytinu um málefni Reykja- lundar í gærmorgun. Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, segir að Svandís Svav- arsdóttir heilbrigðisráðherra hafi fagnað því á fundinum. Í kjölfarið hafi verið ákveðið að gera úttektina og stjórnendum Reykjalundar til- kynnt það. Geti haft áhrif á teymisvinnu Spurður um ástæðu úttektarinnar segir Kjartan að hún sé gerð í ljósi atburða að undanförnu. Embættið hafi áhyggjur af því að það álag sem verið hafi á starfsfólki og andrúms- loft á stofnuninni smiti út frá sér og hafi áhrif á teymisvinnu með sjúk- lingum. Hann tekur það fram að engar vísbendingar hafi borist um að misbrestur hafi orðið á veitingu þjónustu, það sé ekki ástæðan. Reiknað er með að farið verði í heimsókn á Reykjalund í lok þess- arar viku eða byrjun þeirrar næstu. Kjartan telur ekkert því til fyrir- stöðu að athugunin taki skamman tíma. Það sé mikilvægt því það stytt- ist í 1. febrúar þegar uppsagnir margra lækna taka gildi. Fram hefur komið að flestir læknar Reykjalund- ar hafa hætt eða sagt upp störfum. Traust er mikilvægt Stjórn SÍBS fagnar fyrirhugaðri úttekt landlæknis á starfsemi Reykjalundar, þegar leitað er við- bragða eiganda Reykjalundar. „Mik- ilvægt er að stofnunin njóti fulls trausts heilbrigðisyfirvalda og gegnsæi sé tryggt um starfsemina,“ segir ennfremur. Magdalena Ásgeirsdóttir, læknir og formaður læknaráðs Reykjalund- ar, tekur fram að hún viti ekki um hvað úttektin eigi að snúast. Við- brögð starfsfólksins fari eftir því hvernig að þessu verði staðið. „Ég verð að treysta því að heilbrigðis- yfirvöld leggi sig fram við að gera þetta á sem faglegastan hátt,“ segir Magdalena. Hún bætir því við að hvorki stjórn- endur Reykjalundar né heilbrigðis- yfirvöld hafi leitað til lækna stofn- unarinnar vegna ástandsins og þeir heyri aðeins og lesi í fjölmiðlum hvað stjórnendur Reykjalundar hyggist gera. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki hefur skýrst hvers vegna tog- báturinn Blíða SH-277 sökk á Breiða- firði í fyrradag. Lögreglan á Vestur- landi og fulltrúar siglingasviðs rannsóknarnefndar samgönguslysa tóku skýrslur af skipverjum í gær. Jón Arilíus Ingólfsson, rannsóknar- stjóri siglingasviðs, sagði þegar þeim var lokið að böndin bærust ekki að neinu sérstöku atriði. Jón Arilíus segir að samhliða sé unnið að gagnasöfnun um skipið, ferð- ir þess, stöðugleika og annað sem skiptir máli. Hann telur víst að kafað verði niður að bátnum til að athuga hvort hægt sé að sjá eitthvað við það. Rannsóknarnefndin gerir síðan skýrslu um atvikið. Blíða SH sökk norður af Langeyj- um á Breiðafirði um hádegisbil í fyrradag þar sem skipið var á beitu- kóngsveiðum. Ágætis veður var en báturinn sökk svo hratt að skipverj- arnir þrír náðu ekki að komast í björgunargalla. Þeim var bjargað um borð í togbátinn Leyni SH af björg- unarbátnum sem var á hvolfi í sjón- um. Skipverjarnir voru orðnir kaldir. Þeir gengust undir læknisskoðun í Stykkishólmi. Skýrslutökurnar fóru fram hjá Lögreglunni á Vesturlandi á Akra- nesi og voru túlkar til aðstoðar þar sem mennirnir eru frá Lettlandi og Litháen. Strandaði í sumar Blíða SH hefur alloft steytt á skerj- um í Breiðafirði á undanförnum ár- um. Síðast um miðjan júní sl., skammt frá Stykkishólmi, og var strand í nokkrar klukkustundir. Eftir að skip- ið réttist af gátu skipverjar losað það af strandstað og siglt fyrir eigin vél- arafli til hafnar í Stykkishólmi. Þar var ástand skipsins kannað. Áhugi á að kafa að flaki Blíðu til að leita skýringa  Skýrslutökur leiddu ekki í ljós ástæður óhappsins Af vef Landhelgisgæslunnar Strand Gæslan stjórnaði aðgerðum þegar Blíða strandaði sl. sumar. Flestir þeirra fjörutíu sem unnu hjá fiskvinnslunni Ísfiski á Akranesi eru komnir á atvinnuleysis- bætur. Uppsagn- ir starfsfólksins tóku gildi um ný- liðin mánaðamót. Albert Svav- arsson, fram- kvæmdastjóri Ísfisks, segir að enn sé unnið að því að uppfylla ákveðna skilmála sem Byggðastofnun setti fyrir lánafyrirgreiðslu. Stjórn Byggðastofnunar tók jákvætt í láns- umsókn fyrirtækisins um miðjan október. Skilmálarnir, segir Albert, lúta meðal annars að hlutafé fyrir- tækisins og samningum við lánar- drottna. Hann vill ekki tjá sig nánar um það að svo stöddu og vonast til þess að úr leysist á næsta hálfa mán- uðinum. „Þau eru bara komin á atvinnu- leysisbætur, flestöll,“ segir hann um starfsfólkið. „Það eru reyndar ein- hverjir sem eru komnir með aðra vinnu, en flestir eru komnir á at- vinnuleysisbætur.“ athi@mbl.is Flestir eru nú komnir á bætur Akraneshöfn Lítið er um fiskvinnslu.  Enn óvissa með rekstur Ísfisks Bifreið er illa farin eftir að eldur kom upp í henni á bensínstöð N1 við Hringbraut í Reykja- vík rétt eftir hádegið í gær en engin slys urðu á fólki. Slökkviliðsmenn komu á dælubíl og slökktu eldinn. Það flækti slökkvistarf að bíllinn, sem er af gerðinni Volvo XC90, er tengiltvinnbíll með rafhlöðu. Slökkvistarf gekk engu að síður vel. Ekki fengust upplýsingar í gærkvöldi um ástæður þess að eldur kom upp í bílnum. Kviknaði í bíl á bensínstöð við Hringbraut Morgunblaðið/Stefán Einar Stefánsson Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi ll 595 1000 lur .H i sf r ir s ia i i . Verð frá kr. 139.995 RoqueNublo 12. nóvember í 15 nætur Gran Canaria

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.