Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ætla má að heildarrúmmál þeirra
jarðefna sem fallið hafa úr Ketu-
björgum á Skaga á síðastliðnum
ellefu árum sé alls um 70 þúsund
rúmmetrar. Þetta má sjá úr gögn-
um frá Loftmyndum ehf. en elstu
myndir fyrirtækisins af svæðinu
við Ketubjörgum eru frá árinu
2008. Þegar þær og myndir frá
2017 eru bornar saman sést að
1.240 fermetrar eru horfnir. Því til
viðbótar svo 170 fermetrar í fyll-
unni sem fór í sjóinn, að því er
best er vitað síðastliðinn laugar-
dag. Alls eru þetta 1.410 fer-
metrar.
Karl Arnar Arnarson hjá Loft-
myndum áætlar að efni stapans
sem fór í sjóinn um síðustu helgi
sé þó aðeins 1/8 af rúmmáli þess
efnis sem þarna hefur hrunið nið-
ur í fjöru á síðustu árum. „Ef
myndir frá Ketubjörgum eru
skoðaðar sér maður áhugaverða
framvindu og að þar hefur landið
breyst mikið á ekki löngum tíma.
Vissulega eru 70 þúsund rúmmetr-
ar mikið magn en svo má setja
hlutina í annað samhengi,“ segir
Karl Arnar og rifjar í þessu sam-
bandi upp að mikil skriða féll í
Öskju í Dyngjufjöllum sumarið
2014 Rúmmál þeirrar skriðu var
af náttúrufræðingum metið vera
rúmlega 30-50 milljónir tonna. Þá
var ummál berghlaups sem kom
úr Fagraskógarfjalli við bæinn
Hítardal á Mýrum í júlí á síðasta
ári talið vera 7,1-7,5 milljónir rúm-
metra, skv. því sem starfsmönnum
Loftmynda reiknaðist til út frá
myndefni sem þeir öfluðu strax í
kjölfar hamfaranna.
Hrun úr Ketubjörgum
Loftmyndir ehf.
Útlína Ketubjarga
árið 2008
Bjargið sem hrundi
sl. laugardag
Ketubjörg
Hvíta línan utar á myndinni sýnir útlínur
landsins 2008. Guli reiturinn á myndinni
er stapinn sem hrundi í sjóinn nú í
nóvemberbyrjun. Loftmyndin er
tekin 2017.
Um 70 þúsund rúm-
metrar í sjó á 11 árum
Mikið landbrot við Ketubjörg 1.340 fermetrar farnir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagi Innri-Bjargavík í Ketubjörgum í júlímánuði 2016. Verulega hefur
gengið á landið frá því þessi mynd var tekin, sbr. loftmyndina hér að ofan.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Áform um stórfellda uppbyggingu á
Skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins
í Bláfjöllum og Skálafelli eru sögð í
uppnámi vegna þess að Veitur
kærðu þá niðurstöðu Skipulags-
stofnunar að framkvæmdirnar
þyrftu ekki að fara í umhverfismat.
Fjallað var um stöðu málsins á
fundi samstarfsnefndar Skíðasvæða
höfuðborgarsvæðisins á dögunum.
Þar kom fram að veruleg undirbún-
ingsvinna hefði átt sér stað sem mið-
aði fyrst og fremst að því að tryggja
vatnsvernd á Bláfjallasvæðinu.
„Unnið hefur verið markvisst að til-
lögum að mótvægisaðgerðum til að
tryggja framgang málsins. Heil-
brigðiseftirlit sveitarfélaganna hafa
þegar samþykkt áætlunina,“ segir í
fundargerð nefndarinnar. Þar er
rakið að Veitur og Hafnarfjarðarbær
hafi kært úrskurð Skipulagsstofnun-
ar en Hafnarfjörður hafi nú dregið
kæruna til baka. „Samstarfsnefnd
Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
skorar á Veitur ohf. að draga til baka
kæruna enda hafi verið brugðist við
áhyggjuefnum Veitna eða þau komin
í ferli. Frekari tafir setja uppbygg-
ingaráform í uppnám,“ segir í fund-
argerð.
„Það er vissulega jákvæð hreyfing
á málum sem við bindum vonir við að
leiði til farsællar niðurstöðu fyrir öll
sem hlut eiga að máli,“ segir Eiríkur
Hjálmarsson, talsmaður Veitna,
dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur.
Ekki náðist í Diljá Ámundadóttir,
formann samstarfsnefndar Skíða-
svæða höfuðborgarsvæðisins, í gær.
Tryggja þurfi vegabætur
Umrædd áform um uppbyggingu
fela í sér uppsetningu nýrra skíða-
lyftna og endurbætur á þeim eldri,
bætta aðstöðu fyrir skíðagöngu-
göngufólk og snjóframleiðslu svo
eitthvað sé talið. Áætlað er að heild-
araðsókn að skíðasvæðunum aukist
um 50 prósent í kjölfar þessa og
gestir verði um 60 þúsund að með-
altali ár hvert.
Þessi mikla fjölgun gesta og til-
heyrandi umferð um vegi yfir grunn-
vatnsstrauma höfuðborgarsvæðisins
eru ástæða þess að Veitur vildu að
framkvæmdirnar færu í umhverfis-
mat. Tryggja þurfi vegabætur áður
en ráðist verði í uppbyggingu og
horft verði til vatnsverndarsjónar-
miða.
Frekari tafir
setja áformin
í uppnám
Skorað á Veitur að afturkalla kæru
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bláfjöll Frábær staður á góðum degi og nú á að bæta aðstöðuna til muna.
Einn morgun í vikunni var lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu köll-
uð að heimili í Austurbænum en þar
hafði verið brotist inn og stolið
munum af húsráðendum. Var með-
al annars tölvum, tækjum og öðru
fémætu stolið.
Í íbúðinni búa erlendir verka-
menn, sem hafa oft skamma veru á
Íslandi og tjónið því tilfinnanlegt
fyrir fólkið, eins og iðulega er með
innbrot og þjófnaði, að því er segir í
tilkynningu frá lögreglunni.
Rannsóknarlögreglumaður fékk
fljótlega upplýsingar um að sam-
starfsmaður íbúa hefði verið rekinn
úr starfi fyrr um daginn og hefði
líklega bókað flug úr landi að
kvöldi sama dags. Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu hafði samband
við starfsmenn embættis lögreglu-
stjórans á Suðurnesjum og óskaði
eftir því að maðurinn yrði stopp-
aður á leið úr landi og skóbúnaður
hans kannaður. Var það gert til
þess að bera saman við fótspor sem
fundust á vettvangi glæpsins.
Reyndist hugboð rannsóknarlög-
reglumannsins rétt og var mað-
urinn handtekinn í Leifsstöð þar
sem hann var á leið úr landi. Í ljós
kom að skór hans passa við fót-
sporin sem fundust á vettvangi. Allt
þýfið úr innbrotinu fannst í far-
angri mannsins og er málið á loka-
stigum rannsóknar.
Skófar á vettvangi
kom upp um þjófinn
Náðist í Leifsstöð á leið úr landi
Café
AUSTURSTRÆTI
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI
AKUREYRI
VESTMANNAEYJUM Komdu í kaffi