Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Boris Johnson sem hóf kosninga-baráttu sína á þriðjudag er ein-
lægur aðdáandi Churchills, síns
frægasta fyrirrennara. Johnson hef-
ur skrifað ágæta bók um hetju sína,
og þekkir vel sögu hans.
Johnson veit þvíað stórmennið
var mannlegt og átti
til að slá feilnótur
þótt snilldartakt-
arnir ýti þeim út í
horn gleymskunnar.
En sum slysaskot
hans reyndust dýr-
keypt og þóttu jafn-
vel til marks um
dómgreindarskort.
Boris Johnson hófbaráttu sína með ræðu og voru
ræðan og framsetningin í stíl við
Churchill og var sigurmerkið fræga
ekki það eina. Í ræðunni þótti John-
son með réttu við hæfi að vara kjós-
endur við Jeremy Corbyn og þeim
neikvæðu áhrifum sem það hefði
næði hann að smeygja sér inn í
Downingstræti 10, en stóðst ekki þá
freistingu að hafa tengingu á milli
Corbyns og Stalíns.
Í fyrstu ræðu sinni fyrir kosning-arnar 1945 varð Churchill á að
gefa til kynna að kæmist Clement
Attlee til valda myndi hann ekki
geta náð pólitískum áformum sínum
fram nema með atbeina harðsnúinn-
ar leynilögreglu á borð við Gestapo
Hitlers.
Þótt sú fráleita kenning hafi ekkiráðið úrslitum um sigur Attlees
þá viðurkenndi Churchill síðar að
þetta hefðu verið mistök og ósann-
gjarnt að auki.
Vonandi koma öðruvísi atkvæðiupp úr kössum nú en sumarið
1945.
Boris Johnson
Skynugum
skjöplast
STAKSTEINAR
Winston Churchill
Tveir sóknarprestar þjóðkirkjunnar
eru að láta af störfum fyrir aldurs
sakir og hafa embætti þeirra verið
auglýst laus til umsóknar á vef
biskups. Báðir hafa þeir lengi verið
í þjónustu kirkjunnar.
Séra Gunnlaugur Garðarsson
lætur ef embætti sóknarprests í
Glerárprestakalli á Akureyri í byrj-
un næsta árs, en þá verður hann
sjötugur. Biskup hefur auglýst
prestakallið laust til umsóknar frá
1. febrúar 2020. Umsóknarfrestur
rennur út mánudaginn 9. desember.
Í Glerárprestakalli er ein sókn,
Lögmannshlíðarsókn, með rúmlega
sjö þúsund íbúa og eina kirkju,
Glerárkirkju. Lögmannshlíðarsókn
er á samstarfssvæði með Akureyr-
ar-, Grundar-, Hóla-, Kaupangs-,
Munkaþverár-, Möðruvalla- og
Saurbæjarsóknum.
Séra Baldur Kristjánsson lætur
sömuleiðis af starfi sóknarprests í
Þorlákshafnarprestakalli um ára-
mótin, en varð sjötugur á árinu.
Biskup hefur auglýst embættið
laust til umsóknar frá 1. febrúar
2020. Umsóknarfrestur er til 9. des-
ember. Í Þorlákshafnarprestakalli
eru tvær sóknir, Þorláks- og Hjalla-
sókn í Ölfusi og Strandarsókn, með
tæplega 1.800 íbúa og þrjár kirkjur:
Þorlákskirkju í Þorlákshöfn,
Hjallakirkju á Hjalla í Ölfusi og
hina fornfrægu Strandarkirkju á
Strönd í Selvogi.
Þá hefur biskup auglýst eftir
presti til þjónustu í hinu nýja
Garða- og Hvalfjarðarstrand-
arprestakalli frá og með 1. febrúar
2020.
Garða- og Hvalfjarðarstrandar-
prestakall er fjórar sóknir með
rúmlega átta þúsund íbúa og er
sóknarkirkja í hverri sókn. Þær
eru: Akranessókn, Innra-Hólms-
sókn, Leirársókn og Saurbæjarsókn
á Hvalfjarðarströnd. Umsóknar-
frestur er til mánudags 9. desem-
ber. Sóknarprestur er séra Þráinn
Haraldsson. sisi@mbl.is
Tveir prestar eru
að láta af störfum
Baldur
Kristjánsson
Gunnlaugur
Garðarsson
Biskup hefur auglýst embættin laus
Skipti á þrotabúi Kaupfélags
Norður-Þingeyinga á Kópaskeri
hafa verið tekin upp, heilum 24 árum
eftir að skiptunum lauk. Tilefni
endurupptökunnar var að inneign
búsins að fjárhæð kr. 1.952.461
fannst á bankareikningi í Arion
banka. Var héraðsdómi tilkynnt um
inneignina í síðasta mánuði og ákvað
hann að skiptin yrðu endurupptekin.
Skiptastjóri var skipaður Ingvar
Þóroddsson, lögmaður á Akureyri.
Hefur hann boðað til skiptafundar
15. nóvember næstkomandi. Í aug-
lýsingu í Lögbirtingablaðinu boðar
Ingvar að hann muni á fundinum
leggja til að ljúka skiptunum með
því að greiða framangreinda fjárhæð
í ríkissjóð, að frádregnum kostnaði
við endurupptöku skiptanna.
Ingvar segir að peningarnir hafi
komið af skuldabréfi sem var til inn-
heimtu í bankanum um áraraðir.
Ógjörningur sé að skipta upphæð-
inni milli kröfuhafa eftir svona lang-
an tíma, enda séu sum félaganna
sem kröfur áttu í búið ekki lengur
til. Stærstu kröfuhafarnir voru Sam-
vinnubankinn, sem er ekki lengur til,
og ríkissjóður, sem nú fær pen-
ingana í kassann.
Kaupfélag Norður-Þingeyingavar
stofnað 1894. Á seinni hluta síðustu
aldar þyngdist reksturinn. Var fé-
lagið tekið til gjaldþrotaskipta árið
1990. Skiptum lauk 1995. sisi@mbl.is
Gjaldþrota kaupfélag átti fé í banka
Skipti á þrotabúi Kaupfélags Norður-Þingeyinga tekin upp Lauk árið 1995
Kópasker Þar var Kaupfélag Norð-
ur-Þingeyinga með höfuðstöðvar.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Opið:
Mán. til fimmtudaga kl. 9 -18
Föstudaga kl. 9 - 17
Laugardagar kl. 11-15
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
GASELDAVÉLAR
HÁGÆðA
Við höfummörg járn í eldinum þegar það kemur að úrvali á gaseldavélum því við vitum
að ekki elda allir kokkar eins. Hvort sem þú ert ástríðukokkur eða ekki, þá höfum við
réttu græjurnar fyrir þig. Ofnarnir okkar eru með fjölda stillinga sem henta
ástríðukokkum sem og áhugafólki ummatargerð. ELBA - 106 PX
ELBA - 126 EX
3ja ára ábyrgð
ELBA Í YFiR
60 ÁR