Morgunblaðið - 07.11.2019, Qupperneq 12
Kristján Oddsson,
heimilis-, fæðinga- og kven-
sjúkómalæknir, svæðisstjóri
Heilsugæslunni Hamraborg í
Kópavogi.
Regluleg skimun fyrir legháls-krabbameini getur komið íveg fyrir rúmlega 90% til-
fella sjúkdómsins. Ein aðalforsenda
þess að koma megi í veg fyrir leg-
hálskrabbamein er reglubundin
þátttaka í skimun fyrir sjúkdómn-
um ásamt þátttöku stúlkna í HPV-
bólusetningum sem öllum stúlkum í
7. bekk stendur til boða. Talið er að
bólusetningin veiti 70% vörn gegn
leghálskrabbameini.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur gefið út að æskileg þátttaka
kvenna í skimuninni sé 85% en hér
á landi er þátttakan aðeins 67%,
sem er undir öllum viðmið-
unarmörkum.
Nýgengi hefur aukist
Fjöldi kvenna sem greinast með
leghálskrabbamein árlega (nýgengi)
hefur fjölgað undanfarin ár og kon-
ur greinast einnig yngri og með al-
varlegra stig sjúkdómsins. Legháls-
krabbamein er lýðheilsuvandamál á
Íslandi samkvæmt skilgreiningu Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinnar en
nýgengi þess er rúmlega helmingi
hærra en viðmið Alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar eða tæplega
níu tilfelli á hverjar100.000 konur.
Fjöldi kvenna sem deyja úr leg-
hálskrabbameini árlega hér á landi
(dánartíðni) hefur aukist um 50% sl.
10 ár. Bandaríska sóttvarnar-
stofnunin (CDC) hefur gefið út að
engin kona eigi að þurfa að deyja
úr leghálskrabbameini.
Innviðir og þekking til staðar
Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra hefur ákveðið
að fela heilsugæslunni framkvæmd
skimunar fyrir leghálskrabbameini.
Skimunin er forvörn sem fellur vel
að starfsemi heilsugæslunnar líkt
og ungbarna- og mæðravernd og
bólusetningar. Allir innviðir og
þekking eru til staðar. Haldist
framlag Alþingis til skimunar
óbreytt ætti að vera hægt að bjóða
skimun fyrir leghálskrabbameini
gjaldfrjálst á vegum heilsugæsl-
unnar.
Það er markmið heilsugæslunnar
að þátttaka í skimun og nýgengi
leghálskrabbameins verði í sam-
ræmi við markmið Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar og þannig
fækki þeim konum sem greinsast
og deyja af völdum legháls-
krabbameins hér á landi.
Ný rannsóknaraðferð
verði tekin upp
Í Svíþjóð, þar sem þátttaka í
skimun fyrir leghálskrabbameini er
hæst í heiminum, er hún gjaldfrjáls
og á vegum heilsugæslustöðva þar
sem sýnin eru tekin af ljósmæðrum.
Hér á landi er góð reynsla af því að
ljósmæður taki frumusýni frá leg-
hálsi og þegar skimun fyrir
leghálskrabbameini var færð til
heilsugæslustöðva á landsbyggðinni
fyrir nokkrum árum voru dæmi
þess að þátttaka ykist yfir 20% á
sumum stöðum. Heilsugæslan mun
einnig styðja það að tekin verði upp
ný rannsóknaraðferð við skimun
fyrir leghálskrabbamein, eða svo-
kölluð HPV-frumskimun. Næmi
hennar til að greina frumubreyt-
ingar er um 95% en næmi hefð-
bundinnar frumuskoðunar er aðeins
um 50%. HPV-frumskimun lækkar
einnig dánartíðni af völdum legháls-
krabbameins og fækkar alvarlegri
frumubreytingum. Upptaka HPV
frumskimunar er því brýnt gæða-
mál sem heilsugæslan horfir til að
tekin verði upp hér á landi.
Gagnreynd vísindaþekking
Heilsugæslan verður vel undir
það búin að taka að sér framkvæmd
skimunar fyrir leghálskrabbameini
samkvæmt ákvörðun heilbrigðis-
yfirvalda og mun leggja höf-
uðáherslu á aukna þátttöku með
auknu aðgengi að skimun, faglegri
þekkingu, betri skimunaraðferð,
viðeigandi og siðferðilegum upplýs-
ingum byggðum á gagnreyndri vís-
indaþekkingu með heilsufarslega
hagsmuni kvenna í forgrunni.
Þótt miðað sé við að heilsugæslan
á höfuðborgarsvæðinu taki ekki
formlega við framkvæmd skimunar
fyrir leghálskrabbameini af
Krabbameinsfélagi Íslands fyrr en
1. janúar 2021 hafa margar heilsu-
gæslustöðvar boðið upp á þessa
þjónustu í fjölda ára. Á þjón-
ustuvefsjá á heilsuvera.is má sjá
hvernig krabbameinsleit er háttað á
öllum heilsugæslustöðvum landsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kvennahlaup Fækki þeim konum sem greinast og deyja af völdum leghálskrabbameins hér á landi, segir í greininni.
Skima fyrir leghálskrabba-
meini hjá heilsugæslunni
Heilsuráð
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Kvennamegin er yfirskrift málþings
um söng og samhljóm kvenna sem
haldin verður í Veröld – húsi Vigdísar
næstkomandi laugardag, 9. nóvem-
ber. Með tónlist og áhugaverðum er-
indum verður fjallað um kórsöng
kvenna, en tilefnið er 25 ára afmæli
kvennakórsins Vox Feminae um þess-
ar mundir. Málþingið hefst á söng
kórsins undir stjórn Hrafnhildar
Árnadóttur Hafstað en svo koma fjöl-
breytt erindi.
Nostalgían og núið er yfirskrift er-
indis Ásdísar Björnsdóttur, félaga í
Vox Feminae til 25 ára, og Hljóð hand-
an heima er titill Margrétar J. Pálma-
dóttur sem stýrir Söngskólanum Do-
mus Vox. Það erindi mun Kolbrún
Völkudóttir leikkona einnig flytja á
táknmáli. Frá Grottasöng til Máríu-
kvæða heitir erindi Ásdísar Egils-
dóttur, prófessors emerita. Fleira
mætti þá tiltaka af erindum. Þá kem-
ur Stúlknakór Reykjavíkur fram á
málþinginu, en honum stjórna Mar-
grét J. Pálmadóttir og Sigríður Soffía
Hafliðadóttir.
Málþing um söng og samhljóm kvenna í Veröld um helgina
Með tónlist og áhugaverðum erindum
Söngur Vox Feminae hefur lengi gefið tóninn í listalífi landsmanna.
SÆMUNDUR
Megas tekur lagið | Magga Stína les upp
Tilboð á barnum og stemning í anda skáldsins
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
Meistaraverk Megasar,BJÖRN OG SVEINN, er loksins fáanlegt
aftur. Bókin sem bókmenntaelítan hafnaði árið 1994 á meira erindi en
nokkru sinni, á MeToo-tímum. Marglaga Íslandssaga sögð af hugrekki
og með mergjuðu tungutaki sem á sér engan sinn líka.
Fögnum
meðMegas
i
Skáldsagan BJÖRN OG SVEINN rekur ferðalag feðga tveggja
um næturlíf og undirheima Reykjavíkur og fýsnir þeirra grimmar.
Þótt þeir séu á ferð í nálægum samtíma, liggja rætur þeirra þó djúpt
í íslenskri fortíð og sagnasjóði, þar sem eru feðgarnir Axlar-Björn og
Sveinn skotti á 16. og 17. öld. Aukheldur telja þeir til frændsemi við öllu
frægari kumpána losta og glæpa, ekki síst þann Don Juan sem helst á
óperu Mozarts, Don Giovanni, líf sitt að þakka.
Útgáfuhóf í Ægisgarði, Eyjarslóð 5 í Reykjavík
í dag klukkan 17.00