Morgunblaðið - 07.11.2019, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er sagan af því hvernig þjóð-
in reis upp á lappirnar og komst í
álnir en með hrikalegum afleið-
ingum – við drápum norsk-íslenska
síldarstofninn,“ segir Páll Baldvin
Baldvinsson rithöfundur.
Þriggja ára lærdómsrík vinna
Fjögur ár eru síðan Páll sendi frá
sér stórvirkið Stríðsárin 1938-1945
sem vakti mikla eftirtekt og seldist
frábærlega. Hann hefur síðustu
þrjú árin setið
við skriftir og
afraksturinn
er annað stór-
virki. Umfjöll-
unarefnið að
þessu sinni
eru síldarárin
á Íslandi
1867-1969,
skeið sem
hófst með til-
raunum Norðmanna til síldveiða
fyrir austan og segir svo frá því
þegar Íslendingar tóku veiðar og
vinnslu í eigin hendur eftir áratuga
arðrán erlendra þjóða á Íslands-
miðum, Norðmanna, Svía, Þjóð-
verja, jafnvel Rússa. Þá voru risnar
bryggjur og plön víða um land og
stórar síldarverksmiðjur tóku að
rísa í kjölfarið sem framleiddu mjöl
og lýsi – íslenskur stóriðnaður varð
til. Síldveiðarnar skópu mörg árin
mikla vinnu og uppgangur var víða í
plássum þótt síldin væri duttlunga-
full í göngum sínum, sum árin
veiddist mikið norðvestan við land,
önnur norðaustan. Ekki var Suður-
landssíldin auðveldari, en síldin var
um tíma burðarstoð í ársafla og
veigamest í útflutningsverðmætum
þjóðarinnar uns síldarstofninn á
endanum hrundi.
„Þetta var feikilega skemmtilegt
verkefni enda var hægt að hlaupa í
alls konar kima og kíkja. Þessi
vinna var líka lærdómsrík og ég
vona að það skili sér í bókinni,“ seg-
ir Páll.
Saga fátæktar og auðs
Síldarárin er alls 1.152 blaðsíður í
stóru broti og hana prýðir 1.101
ljósmynd. Útgáfa er fyrirhuguð eft-
ir um tvær vikur. Páll segir að bók-
in sé byggð upp eins og annálarit.
„Þegar þú eltir þennan fisk gefur
það tækifæri til að koma víða við.
Síldveiðarnar eru uppspretta svo
margs, allt frá 1867 og þar til við
þurrausum miðin árið 1969. Þetta er
að hluta til verslunarsaga, hvernig
erlenda verslunin smátt og smátt
hverfur úr landinu og innlenda
verslunin verður til, saga útgerðar
og vinnslu, fátæktar og auðs.“
Ráðamenn í dag af
síldarfólki komnir
Þræðirnir liggja víða að sögn
Páls. „Það er engin tilviljun að í
ríkisstjórn Íslands í dag sitja í
embætti forsætisráðherra og fjár-
málaráðherra krakkar sem eru
fjórða kynslóð frá þeim sem hófu
síldveiðar á Íslandi.
Katrín er komin af Ottó Tulin-
ius, einum fyrsta síldarútvegs-
manni í okkar sögu, Benedikt
langafi Bjarna keypti síldarnót á
uppboði á Húsavík innan við tví-
tugt sem hann seldi með góðum
hagnaði. Afi hans og að lokum
pabbi Bjarna var í síldarútgerð
sem ungur maður. Allar fjöl-
skyldur á Íslandi tengjast síldveið-
um og -vinnslu á fyrri tíð.“
Bókin helguð síldarkonum
Páll segir að mikið sé til af heim-
ildum um síldarárin, bæði í yfirlits-
ritum frá ólíkum tímum og þá sé
mikið geymt í samtímaheimildum
sem birtast í bókinni. Líka talsvert
af skráðum munnlegum frásögnum
úr bókum og viðtölum. Þá eru sótt-
ar heimildir í skjalasöfn. Leitað er
sem víðast heimilda og reynt að
nýta þær á nýstárlegan hátt frá nýj-
um sjónarhóli: „Ég legg mig fram
um að leita þeirra sem minnst fer
fyrir í ljósi sögunnar. Það eru konur
og börn. Maður reynir að finna það
fólk og það þarf stundum að þaul-
leita. Sem er merkilegt því bæði
vinnuafl barna og kvenna er það
sem heldur landvinnslunni uppi að
stærstum hluta öll þessi ár. Flotinn
var hins vegar að mestu mannaður
körlum, þótt konur hafi reyndar líka
farið á síld – yfirleitt sem kokkar.“
Páll lagði sig líka fram um að
draga fram sögur kvenna við ritun
stríðsárasögu sinnar. Hann segir að
það sé ekki vandalaust. „Að leita
uppi kvenkynið í Íslandssögunni frá
1850 er ekki auðvelt. Það verður að
leita með logandi ljósi vegna þess að
þær eru ekki fyrirferðarmiklar þótt
hlutur þeirra sé stór. Þess vegna er
þessi bók helguð þeim: síldarskját-
unum, konunum á plönunum og við
kerin.“
Snertu hættulegan streng
Í minningum margra sem muna
síldarárin fyrir hrunið 1969 og enn
lengra aftur eru síldarsumrin víða í
dýrðarljóma; aflahrotan, stórakast-
ið, yfirfullir bátar og akkorðið verð-
ur í minningunni ljóslifandi þeim
sem lifðu þessa tíma, vosbúðin og
vökurnar gleymast.
„Þessi fiskur, þetta mjög svo
undarlega fyrirbæri, tryllti menn,“
segir höfundurinn. „Margir hafa
lýst þeim veiðum sem því skemmti-
legasta sem þeir hafi unnið um æv-
ina. Síldveiðarnar snertu mjög
hættulegan streng í mannlegu fari
sem er áfergjan og græðgin vegna
þess að henni vill oft fylgja gull.“
Samfélagslegar hræringar
Og svo voru það samfélagsbreyt-
ingarnar. „Í gegnum þessa sögu
sjáum við plássin verða til og verða
stór og glæsileg. Þú byrjar á
Djúpavogi og ferð norður alla Aust-
firðina allt til Raufarhafnar. Frá
Djúpinu austur fyrir í Húnaflóa og
allt að Oddeyri – alla leiðina rísa
plönin, sumstaðar utan byggða,
stórar verksmiðjur á afskekktum
stöðum og um sinn er hlaðafli, en
svo allt í einu er fiskurinn farinn og
þá er ekkert þar að hafa. Það eru
sumar eftir sumar miklir mann-
flutningar á vinnuafli landshorna á
milli, fyrir fjörðum eru hundruð
skipa af fjölda þjóðerna, fólk er rifið
úr heyskap í sveitum til að salta sól-
arhringum saman. Síldveiðarnar
keyra fram ótrúlegar samfélags-
legar hræringar. Konur fara að fá
kaup. Verkalýðsfélög verða til enda
er þrælkunin ómannúðleg. Menn
verða forríkir á fáum árum og tapa
öllu á einni vertíð. Hér eru því rakt-
ar sögur af miklum örlögum, gulli
og glópsku.“
Hundrað ára saga af gulli og glópsku
Páll Baldvin hefur ritað ríflega 1.100 síðna stórvirki um síldarárin Síldin „undarlegt fyrirbæri
sem tryllti menn“ Dregur fram sögur af konum og börnum sem lítið hefur farið fyrir í eldri ritum
Morgunblaðið/Hari
Höfundurinn Páll Baldvin Baldvinsson hefur varið síðustu þremur árum í að skrifa um síldarárin á Íslandi. Afrakst-
urinn er 1.152 síðna bók sem kemur brátt út. Páll leggur áherslu á að segja sögur kvenna og barna þessara ára.
Mikil gróska er í bókaútgáfu sé
horft til nýrra titla í Bókatíð-
indum þetta árið. Alls er 842
skráningar nýrra bóka þar að
finna í ár.
Íslensk skáldverk eru 149 í
ár eða 21% fleiri en í fyrra.
Ljóðabókum og leikritum
fjölgar um 51% frá fyrra ári en
mesta gróskan er í barna- og
ungmennabókum.
Útgáfa barnabóka hefur tvö-
faldast frá 2016 og barnabók-
um fjölgar um 47% á milli ára
nú. Ungmennabókum fjölgar
um 39% frá 2018.
Bókatíðindum ársins verður
dreift 18.-19. nóvember í 125
þúsund eintökum.
Mikil fjölgun
barnabóka
BLÓMLEG ÚTGÁFA Í ÁR
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
ertu tilbúin í veturinn?
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina