Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarin ár hafa verið miklar
framkvæmdir á Klambratúni.
Markmiðið með þeim er að gera
þetta vinsæla útivistarsvæði í
borginni enn vinsælla og meira að-
laðandi.
Nú er unnið að lokafrágangi
sunnan við nýtt torg við Kjarvals-
staði. Fyrsti áfangi verksins verð-
ur unninn á haustmánuðum 2019
og sá síðari á vormánuðum 2020.
Fyrri áfangi verksins felst í
landmótun sunnan við torgið og
svæðið þökulagt. Í síðari áfanga
verður stígur lagður frá torginu að
malbikuðum stíg ásamt því að
gengið verður frá austurhluta dval-
arsvæðis. Landslag ehf. hannaði
útlit svæðisins og Garðsmíði ehf.
vinnur verkið. Það átti lægsta til-
boðið, 24 milljónir króna.
Torgið klárað í fyrrasumar
Í ágúst í fyrra lauk fram-
kvæmdum við torgið sjálft. Verkið
fól í sér að gera hellulagt torg
sunnan við Kjarvalsstaði með set-
pöllum og tröppum. Þarna hefur
verið útbúið skjólgott rými til dval-
ar og leikja.
Hönnun var í höndum Landslaga
ehf., Liska ehf. og HNIT verk-
fræðistofu. Verktaki var NKEA
slf. – Grafa og grjót ehf. – Sölvi
Steinarr slf. Kostnaður við verkið
var tæpar 70 milljónir króna.
Lýsing á Klambratúni hefur ver-
ið stórbætt frá því sem áður var.
Ljósastaurum var fjölgað um
helming og nýir lampar settir á
alla staurana. Lýsing við stíga var
endurnýjuð (led-lýsing), litalýsing
sett upp við stíg á horni Lönguhlíð-
ar og Miklabrautar og listaverk
lýst upp. Framkvæmdum við lýs-
inguna lauk í september 2017.
Klambratún er með stærri al-
menningsgörðum í Reykjavík og
setur mikinn svip á Hlíðahverfið.
Klambratún, sem hefur einnig bor-
ið heitið Miklatún, afmarkast af
Hringbraut, Rauðarárstíg, Flóka-
götu og Lönguhlíð en svæðið er
nefnt eftir býlinu Klömbrum.
Klambratún er einn stærsti al-
menningsgarðurinn sem var sér-
staklega hannaður sem hluti af að-
alskipulagi borgarinnar en hönnun
hans hófst upp úr 1960. Fram-
kvæmdir á Klambratúni hófust
1964 og var Reynir Vilhjálmsson
landslagsarkitekt aðalhönnuður
garðsins.
Þetta kemur fram í samantekt á
heimasíðunni www. reykjavik.is.
Klambratún er um 10 hektarar
að stærð. Það skiptist í stórar
grasflatir, trjálundi og leik- og
íþróttasvæði. Á undanförnum ár-
um hefur aðstaða til íþróttaiðk-
unar verið stórbætt og það hefur
aukið aðsóknina að garðinum til
muna.
Kjarvalsstaðir, sem hýsa sýn-
ingarsali Listasafns Reykjavíkur,
eru við norðurenda Klambratúns.
Þar er einnig vinsælt kaffihús.
Hannes Kr. Davíðsson arkitekt
teiknaði bygginguna.
Nýja torgið tekur á sig mynd
Lokaframkvæmdir eru hafnar við nýtt torg á Klambratúni Skjólgott rými til dvalar og leikja
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Klambratún Unnið er af fullum krafti við lokafrágang hins nýja torgs sunnan við Kjarvalsstaði. Nýja torgið verður í góðu skjóli fyrir norðanáttinni.
Nýja torgið Í vor á allt að vera tilbúið fyrir fólk að skemmta sér og öðrum.
Á föstudagskvöld í næstu viku, 15.
nóvember, verður uppfærsla Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar og Óperu-
félagsins Norðuróps á Fiðlaranum á
þakinu frumsýnd. Söngleikurinn, eft-
ir Jerry Boch við texta Sheldons Har-
nicks, er meðal þeirra söngleikja sem
oftast hafa verið settir upp á heims-
vísu og er þetta því einn vinsælasti og
dáðasti söngleikur allra tíma.
Tónlistin í söngleiknum er létt og
skemmtileg og meðal þekktra laga
eru Ef ég væri ríkur og Sól rís, sól
sest. „Fiðlarinn á þakinu er fjörugur,
hjartnæmur og alvarlegur, en mest
af öllu fyndinn og stórskemmtilegur
söngleikur með grípandi tónlist,“
segir í tilkynningu.
Söngleikurinn segir frá Tevje
mjólkurpósti, fjölskyldu hans og sam-
ferðafólki í litla þorpinu Anatevka í
Rússlandi árið 1905. Í Anatevka eru
siðvenjur og hefðir fyrir öllu. Tevje
og Golda konan hans eiga fimm dæt-
ur, sem þurfa eiginmenn. Jenta hjú-
skaparmiðlari gerir sitt besta til að
það gangi eftir, en hlutirnir fara á
annan veg þar sem dæturnar fara
ekki eftir vali Jentu eða foreldra
sinna.
Söngleikurinn verður fluttur í
Stapa, Hljómahöll í Reykjanesbæ, í
fullri leikhúsuppfærslu. Þar koma
fram góðir og efnilegir söngvarar og
hljóðfæraleikarar af Suðurnesjum,
alls rúmlega 50 manns. Leikstjóri er
Jóhann Smári Sævarsson og hljóm-
sveitarstjóri Karen Janine Sturlaugs-
son.
Fyrirhugaðar eru þrjár sýningar.
Frumsýningin er sem fyrr segir
föstudaginn 15. nóvember. Svo eru
sýnt á laugardeginum og sunnudeg-
inum þar á eftir, 16. og 17. nóvember,
og hefjast allar sýningarnar klukkan
19.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fiðlarinn Svipmynd úr uppfærslunni í Hljómahöllinni.
Fiðlarinn í Stapanum
Vinsæll söngleikur sýndur í Reykja-
nesbæ Tónlistarskóli og Norðuróp
ára afmælishátíð Spítalans okkar5
Alma
Anna
Charlotta
Sigríður
Svandís
Dagskrá:
Kl. 15.00
Setning – Þorkell Sigurlaugsson, varaformaður Spítalans okkar
Kl. 15.10 – 15.25
„Þörfin kallar hærra með hverju árinu“ Áhrif kvenna á stofnun Landspítala
– Anna Stefánsdóttir, formaður Spítalans okkar
15.25 – 15.45
Nýtt þjóðarsjúkrahús – framþróun heilbrigðisþjónustu
– Alma Möller, landlæknir
Tónlist – Blásarakvintett Skólahljómsveitar Grafarvogs
16.00- 16.20
Vísindi og menntun til framtíðar
– Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala
16.20- 16.50
Learnings and warnings from the boom of „digital health“ in Sweden
– Charlotta Tönsgaard, framkvæmdastjóri og stofnandi heilbrigðistæknisprotans
„Kind App“
16.50-17.00
Lokaorð
– Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Að málþinginu loknu er gestum boðnar léttar veitingar
Verið öll hjartanlega velkomin
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 kl. 15-17
á Icelandair Hótel Natura
UPPBYGGING LANDSPÍTALA:
Menntun, vísindi og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu