Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 33

Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 33
Frítt fæði og uppihald Þýska stjórnin bauð Íslending- unum frítt fæði og uppihald en það hefur hvergi komið fram hvort það var Eimskip eða einhver annar sem borgaði ferðalagið yfir hafið. Það fékkst styrkur frá Reykjavíkurborg og ríkinu en að öðru leyti þurftu þeir að borga sjálfir. „Fimmmenningarnir í Eyjum gengu í hús og fengu pening frá vel- viljuðum og áhugamönnum um íþróttir. Hver og einn fékk 500 krónur í eyðslufé. Ég komst að því að fyrir þessar 500 krónur á þessum tíma var hægt að kaupa tvö tonn af kartöflum sem í dag kosta um 480 þúsund krónur.“ Æfðu hálfan mánuð á Laugarvatni Þarna var öllu tjaldað til, leik- vangurinn sem byrjað var að reisa 1932 og þarna skartar Þýskaland öllu sína glæsilegasta undir ægi- valdi nasismans. „Stærðin á þessum tíma hefur verið gígantísk og gam- an að reyna að setja sig í spor þess- ara manna. Þetta voru miklir íþróttamenn og þegar þetta er skoð- að í víðara samhengi stóðu þeir sig ekki illa. Þeir voru að keppa við menn sem voru vanir því besta. Hér var engin aðstaða og undir- búningurinn með þeim hætti að keppendur héðan fengu hálfan mán- uð á Laugarvatni við æfingar. Þann- ig að viðbrigðin eru mikil og Karl Vilmundar, sem átti að keppa í tug- þraut, kiknar undan álaginu. Press- an bugar hann. Það er svo mikill há- vaði á vellinum að hann heyrir ekki þegar nafnið hans er kallað upp í 100 metra hlaupið. Heyrir það ekki, það er allt tryllt á vellinum og hann veit ekki hvort hann er að koma eða fara. Hann fær svo að hlaupa einn og hleypur á mun lakari tíma en hann gerði nokkurn tíma hér heima. Í langstökki stekkur hann miklu styttra en hann gerði hér heima og hættir keppni,“ segir Hörður og er viss um þetta hafi lagst þungt á Karl að hafa hætt keppni. Mikið ævintýri „En þetta var gríðarlegt ævintýri fyrir þessa menn að sjá alla þessa uppbyggingu í Þýskalandi og þessa Ólympíuleika sem voru fyrst og fremst pólitískir og áttu að vera skrautfjöður í hatt Hitlers og nas- istanna. Þeir vissu það ekki og héldu að þetta ætti að vera svona. Þeim er boðið í bíltúra um allar trissur þannig að þetta var gríðar- legt ferðalag. Það er fengur að fá upplýsingar um það frá þessum mönnum. Friðrik Jesson hélt dagbók sem ég fékk að skoða. Einnig allt sem til var frá Sigurði Sigurðssyni. Þor- steinn Einarsson, sem var íþrótta- fulltrúi ríkisins, var þekktur íþróttamaður sem og fyrir störf sín að íþróttamálum. Hann skrifaði mjög mikið en ég hef ekki fundið neitt eftir hann um ferðina. Slatta af ljósmyndum en annars ekki mik- ið. Ég hef þó fengið nóg héðan og þaðan, t.d. úr Morgunblaðinu, til að fá heildarmynd af þessum merka þætti í íþróttasögu Íslands og ekki síður Vestmannaeyja. Varðandi Þorstein má geta þess að sonur hans, Gísli Ingimundur, keppti í júdó á Ólympíuleikunum 1976 í Montreal og dóttursonur Friðriks, Logi Jes Kristjánsson, Íslands- meistari í sundi, keppti á leikunum í Atlanta. Þannig að fræ sem sáð var 1936 náðu að blómstra þótt seinna væri,“ sagði Hörður að endingu. Eins og áður kemur fram báru gestgjafarnir Íslendingana á örm- um sér og sem dæmi um það var þeim síðasta kvöldið í Berlín boðið til kvöldverðar á einum glæsileg- asta veitingastað Berlínar, Atlantis- Winkerdorf. Opnuð verður sýning í Sagn- heimum um helgina og er hún liður í Safnahelgi. Hörður mun í upphafi flytja fyrirlestur um rannsóknir sín- ar. Á höndum Friðrik Jesson sýnir jafnvægislistir í góða veðrinu. Um borð Ólafur Sveinsson þjálfari, Karl Vilmundarson, Sveinn Ingvarsson, Kristján Vattnes og Sigurður Sigurðsson. Fjórir íslenskir frjálsíþróttamenn voru þátttakendur á Ólymp- íuleikunum í Berlín 1936. Einn keppendanna, Sigurður Sigurðsson, komst í úrslita- keppnina í þrístökki, sá fyrsti í frjálsum íþróttum. Sigurður stökk í annarri tilraun vel yfir 14 metra sem dugði til að kom- ast í úrslit. Þar stökk hann 13,58 m sem nægði í 11. sæti. Sig- urður tók einnig þátt í hástökki og jafnaði Íslandsmetið með því að stökkva 1,80 metra. Hann reyndi næst við 1,85 m en tókst ekki, en það var hæðin sem þurfti að stökkva til að kom- ast í úrslit. Þá keppti Karl Vilmundarson í tugþraut. Hann hljóp 100 metra á 12,6 sek. og stökk 5,62 metra í langstökki. Eftir þessa slæmu byrjun hætti Karl keppni. Einnig keppti Kristján Vattnes Jónsson í spjótkasti og Sveinn Ingvarsson í 100 metra hlaupi en hvorugur komst í úr- slit. Segja má að árangur íslensku keppendanna hafi verið vel viðunandi miðað við það álag að þurfa að keppa fyrir framan 100.000 manns. Fjórir kepptu í frjáls- íþróttum í Berlín Móttaka Íslenski ólympíuhópurinn, 50 manns, í móttöku í Berlín fyrir Ólympíuleikana í borginni árið 1936. Smiðshöfða 9 , 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Ljósaskilti fyrir þitt fyrirtæki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnisölu í plexigleri og álprófílum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.