Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 36
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Sala á rafmagnshjólum og reið-
hjólum gæti tekið kipp eftir ára-
mót, ef nýtt frumvarp verður að
lögum um afnám virðisaukaskatts
á farartækjunum. Þetta er mat
framkvæmdastjóra hjólabúðarinn-
ar TRI við Suðurlandsbraut, Ró-
berts Grétars Péturssonar, sem er
þegar byrjaður að búa sig undir
mögulega söluaukningu.
Í lagafrumvarpinu er lögð til
niðurfelling virðisaukaskatts á raf-
magnshjól sem kosta að hámarki
400 þúsund krónur og hefðbundin
reiðhjól sem kosta að hámarki 100
þúsund. Gert er ráð fyrir að lögin
taki gildi í byrjun næsta árs og
gildi út 2023.
Jafngildir 20% afslætti
Róbert Grétar segir í samtali
við Morgunblaðið að þessar íviln-
anir komi til með að þýða afslátt
upp á 20% miðað við núgildandi
verð.
Eins og fram kemur í lagafrum-
varpinu eru ívilnanirnar til þess
fallnar að draga úr bílaumferð og
fjölga í hópi þeirra sem ferðast
með vistvænum hætti. „Þannig
stuðla slíkar ívilnanir að umhverf-
isvænum samgöngum og eru til
þess fallnar að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda í sam-
göngum.“
Þá er sagt að sérstök áhersla sé
í frumvarpinu lögð á stuðning við
rafmagnsreiðhjól þar sem rann-
sóknir hafi leitt í ljós að reiðhjól
búin rafknúinni hjálparvél geti
verið staðkvæmdarvara fyrir bif-
reiðir og leitt til þess að fólk velji
slíkan samgöngumáta frekar en
þær. Slík þróun sé til þess fallin
að minna álag verði á samgöngu-
mannvirki en ella.
Algengustu reiðhjólin sem knúin
eru rafmagni eru þau, eins og
fram kemur í rökstuðningi með
frumvarpinu, sem styðja notanda
með því að kraftur úr rafmagns-
mótor bætist við þegar hjólað er
með stigbúnaði á meðan hraði er
ekki yfir 25 km á klst.
Róbert segir að lögin þýði það
m.a. að hjól sem kostar 496 þús-
und krónur fari niður í 400 þúsund
með breytingunni, og yrði þá dýr-
asta rafmagnshjólið sem fengist
skattfrjálst. „Ef þú kaupir hjól
fyrir 700 þúsund færðu það skatt-
frjáls upp að 400 þúsundum en
borgar skatt af því sem eftir
stendur.“
Hefði viljað hærra hámark
Róbert segir að frumvarpið muni
virka hvetjandi fyrir kaup á bæði
rafmagns- og venjulegum reiðhjól-
um en segist hefðu viljað sjá hærri
hámarksupphæð í reiðhjólunum.
„Það má segja að á meðan raf-
magnshjól er umhverfisvænna en
bíll, þá er hefðbundið hjól enn um-
hverfisvænna en rafmagnshjól. Ég
hefði viljað sjá sama hámark á báða
flokkana, þ.e. 400 þúsund króna há-
mark á bæði rafhjól og reiðhjól.“
Róbert segir að mikið sé um að
fólk selji annan bílinn og kaupi sér
rafmagnshjól í staðinn. „Við heyr-
um af því nánast á hverjum degi,“
segir Róbert, en að hans sögn er
sala rafmagnshjóla 10-15% af heild-
arsölu hjóla í TRI.
Býr sig undir kipp í sölu
rafmagnshjóla frá 1. janúar
Morgunblaðið/Hari
Hjólað Rafmagnshjólin styðja notanda. Kraftur úr mótor bætist við þegar
hjólað er með stigbúnaði á meðan hraði er ekki yfir 25 km á klukkustund.
Umhverfisvænt
» Rannsóknir hafa leitt í ljós
að reiðhjól búin rafknúinni
hjálparvél geta verið stað-
kvæmdarvara fyrir bifreiðir og
leitt til þess að fólk velji slíkan
samgöngumáta frekar en þær.
» Framkvæmdastjóri TRI seg-
ist heyra af því nánast dag-
lega að fólk skipti út öðrum
bílnum á heimilinu fyrir raf-
magnshjól.
» Rafmagnshjól skattlaus upp
að 400 þúsund krónum og
reiðhjól upp að 100 þúsund kr.
Ívilnanir í boði fyrir bæði rafmagnshjól og hefðbundin hjól 400 þ.kr. hámark
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands hefur ákveðið að lækka
meginvexti bankans um 0,25 pró-
sentur og eru vextir á sjö daga
bundnum innlánum því 3%. Er
þetta í fimmta sinn á þessu ári sem
nefndin tekur ákvörðun um að
lækka stýrivexti. Þannig reið hún á
vaðið í maí og lækkaði þá um 0,5
prósentur en í júní, ágúst og októ-
ber lækkuðu vextirnir í hvert sinn
um 0,25 prósentur. Vextirnir hafa
því lækkað um 1,5 prósentustig það
sem af er ári. Peningastefnunefnd á
eftir að koma saman einu sinni það
sem eftir líður þessa árs og verður
kynnt um niðurstöður þess fundar
11. desember.
Stýrivextir Seðlabankans hafa
ekki verið lægri frá því að verð-
bólgumarkmið var tekið upp.
Þrátt fyrir að hagvöxtur hafi
reynst meiri á fyrri hluta ársins en
áður var gert ráð fyrir benda mæl-
ingar til að samdráttur ársins verði
0,2%. Þá er gert ráð fyrir að hag-
vöxtur á komandi ári verði nokkru
lakari en áður var gert ráð fyrir,
eða 1,6% samanborið við 1,9% skv.
fyrri spá.
Segir nefndin að lækkun vaxta
hafi að undanförnu stutt við eftir-
spurn.
Stýrivextir
niður í 3%
Fimmta lækkunin
á yfirstandandi ári
● Samanlögð velta
í Kauphöll Íslands í
gær nam 3,7 millj-
örðum króna. Mest
hækkuðu bréf
Kviku, eða um
1,95% í 135 miljóna
króna viðskiptum
og stendur gengi
bréfa bankans í
10,45 kr. Næst-
mest hækkuðu
bréf Sýnar, eða um 1,3% í 179 milljóna
króna viðskiptum og stendur gengi
bréfa félagsins í 27,35 kr. Umfangsmest
voru viðskipti með bréf Marels, og
námu þau 423 milljónum króna. Bréf
félagsins standa í 590 kr. og hækkuðu
um 0,34% í gær. Gengi fasteignafélag-
anna þriggja lækkaði í gær. Mest allra
lækkuðu bréf Reita, eða um 3,38% í
366 milljóna króna viðskiptum. Standa
bréf félagsins í 74,3 kr. Bréf Regins
lækkuðu næstmest allra félaga, eða um
2,4% í 62 milljóna króna viðskiptum.
Standa bréf félagsins í 20,3 kr. Bréf Eik-
ar lækkuðu um 1,35% í 97 milljóna
króna viðskiptum og standa í 8,05 kr.
Gengi flugfélagsins Icelandair hækkaði
um 0,54% í 35 milljóna króna við-
skiptum og hefur haldið velli nokkuð vel
þrátt fyrir tilkynningu um stofnun hins
nýja Play á þriðjudag.
Fasteignafélögin lækk-
uðu mest í kauphöll
Bjalla Gærdag-
urinn var líflegur.
7. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.6 124.2 123.9
Sterlingspund 159.48 160.26 159.87
Kanadadalur 94.17 94.73 94.45
Dönsk króna 18.404 18.512 18.458
Norsk króna 13.535 13.615 13.575
Sænsk króna 12.86 12.936 12.898
Svissn. franki 124.71 125.41 125.06
Japanskt jen 1.1351 1.1417 1.1384
SDR 170.32 171.34 170.83
Evra 137.52 138.28 137.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.133
Hrávöruverð
Gull 1504.6 ($/únsa)
Ál 1813.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.04 ($/fatið) Brent
STUTT
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
EIRVÍK FLYTUR HEIMILISTÆKI INN
EFTIR ÞÍNUMSÉRÓSKUM
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is