Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 38

Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 38
38 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Demókratar juku fylgi sitt í kosning- um í tveimur sambandsríkjum Bandaríkjanna í fyrradag og úrslitin eru álitin áhyggjuefni fyrir Repúblik- anaflokkinn og Donald Trump Bandaríkjaforseta. Kosningarnar voru taldar veita vísbendingar um stöðu flokkanna fyrir þing- og for- setakosningarnar í Bandaríkjunum 3. nóvember á næsta ári. Demókratinn Andy Beshear sigr- aði naumlega í ríkisstjórakosningum í Kentucky eftir jafna kosningabar- áttu, samkvæmt óstaðfestum kjörtöl- um í gær. Demókratar fengu einnig meirihluta í báðum deildum ríkis- þings Virginíu í fyrsta skipti í tvo ára- tugi. Repúblikaninn Tate Reeves sigr- aði hins vegar íhaldssaman demó- krata, Jim Hood, í ríkisstjórakosn- ingum í Mississippi sem hefur verið eitt af helstu vígjum Repúblikana- flokksins síðustu ár. Reeves fékk 52,3% atkvæða og Hood 46,5%. Í ríkisstjórakosningum í Mississippi fyrir fjórum árum fékk repúblikan- inn Phil Bryant rúm 66% at- kvæðanna. Repúblikanar hafa gegnt ríkisstjóraembættinu í tæp sextán ár. Vandræðaleg fyrir Trump Stjórnmálaskýrandi The Wash- ington Post segir að margir forystu- menn Repúblikanaflokksins hafi áhyggjur af úrslitunum í ríkisstjóra- kosningunum í Kentucky og þau séu vandræðaleg fyrir Trump sem hafði lagt ríkisstjóranum og repúblikanan- um Matt Bevin lið í kosningabarátt- unni. Sigur Beshears var þó mjög naumur því að munurinn á fylgi hans og Bevins var aðeins um 0,4% sam- kvæmt óstaðfestum kjörtölum þegar öll atkvæðin höfðu verið talin. Bevin hafði þó ekki viðurkennt ósigur. Úrslitin í Kentucky eru álitin áfall fyrir Trump, en þó ekki mesti ósigur sögunnar. Forsetinn hefur verið vin- sæll í ríkinu og sigraði þar með nær 30 prósentustiga mun í forsetakosn- ingunum árið 2016, meiri en nokkur annar forsetaframbjóðandi repúblik- ana í ríkinu í rúm 40 ár. Trump fór til Kentucky á mánudaginn var til að halda fjöldafund og hvetja stuðnings- menn sína til að styðja Bevin í kosn- ingunum. Forsetinn sagði að Be- shear væri „of öfgafullur og of hættulegur“ til að stjórna ríkinu og færi hann með sigur af hólmi myndi það efla þá demókrata sem vildu að Trump yrði ákærður til embættis- missis. „Ef þið tapið sendir það mjög slæm skilaboð … Ef þið tapið segja þau að Trump hafi beðið mesta ósig- ur í sögu heimsins. Þið megið ekki láta það koma fyrir mig!“ sagði Trump við stuðningsmenn sína. Forsetinn fullyrti eftir að skýrt var frá úrslitum kosninganna að fjölda- fundur sinn í Kentucky fyrir kosning- arnar hefði hjálpað Bevin að auka fylgi sitt um „að minnsta kosti 15 pró- sentustig á síðustu dögum“. Skoðanakannanir bentu þó til þess að munurinn á fylgi frambjóðendanna hefði alltaf verið undir 10% síðustu vikurnar fyrir kosningarnar, að sögn The New York Times. Óvinsæll ríkisstjóri Bevin er kaupsýslumaður eins og Trump og var álitinn utangarðsmað- ur í stjórnmálunum þegar hann var kjörinn ríkisstjóri Kentucky fyrir fjórum árum með níu prósentustig- um meira fylgi en frambjóðandi demókrata. Hann hefur einnig getið sér orð fyrir að vera æsingamaður í stjórnmálunum, líkt og Trump, og hefur verið á meðal óvinsælustu ríkisstjóra í Bandaríkjunum, ef marka má könnun sem gerð var fyrr á árinu. Er það m.a. rakið til fram- göngu Bevins í deilu við kennara sem fóru í verkfall til að mótmæla áform- um hans um að skerða lífeyrisréttindi þeirra. Hann sagði að þeir væru „sjálfselskir“ og „fávísir“ og sakaði þá jafnvel um að bera ábyrgð á kyn- ferðislegum árásum á börn vegna þess að þau þyrftu að vera ein heima þegar kennarar þeirra væru í verk- falli. Stjórnmálaskýrandi The New York Times segir að frambjóðendur repúblikana hafi sigrað í kosningum til annarra embætta í Kentucky, svo sem ríkissaksóknara, og það bendi til þess að kjósendurnir hafi verið að hafna Bevin en ekki flokki hans. Blaðamaðurinn lýsir Beshear sem miðjumanni og segir hann hafa vikist undan að svara því hvort fulltrúa- deild Bandaríkjaþings ætti að ákæra Trump til embættismissis. Hann hafi einnig haldið sig í hæfilegri fjarlægð frá forystumönnum demókrata í Washington og lagt áherslu á að gagnrýna stefnu Bevins í deilunni við kennarana og tilraunir hans til að afturkalla umbætur á medicaid, sjúkratryggingum fyrir tekjulága. Beshear er 41 árs og faðir hans var ríkisstjóri Kentucky á árunum 2007 til 2015. Í kosningabaráttunni lagði hann áherslu á þau málefni sem hann sagði kjósendur í Kentucky telja mikilvægust: mennta-, heilbrigðis- atvinnu- og lífeyrismál. Bevin lagði hins vegar áherslu á stuðning sinn við Trump og talaði oft um mál sem eru forsetanum hugleik- in, m.a. innflytjendamál og væntan- lega ákæru á hendur honum til embættismissis. Auk forsetans hafði Mike Pence varaforseti lagt Bevin lið með því fara með honum í atkvæða- veiðar um ríkið og samtök ríkisstjóra repúblikana eyddu milljónum dollara í auglýsingar til stuðnings honum. Sterkir í úthverfum Bevin fékk mest fylgi í strjálbýlum sýslum en Beshear í borgum og byggðum í nágrenni þeirra þar sem stuðningurinn við Trump hefur minnkað, að sögn stjórnmálaskýr- anda The New York Times. Úrslit þingkosninganna í Virginíu eru álitin meira áfall fyrir repúblik- ana. Ríkið var eitt af vígjum þeirra í áratugi en síðustu ár hefur það verið á meðal svonefndra sveifluríkja þar sem báðir flokkarnir eiga raunhæfa möguleika á að sigra í kosningum. Nú þegar demókratar eru með meiri- hluta í báðum deildum þingsins virð- ist Virginía vera orðið að vígi þeirra, að mati stjórnmálaskýranda CNN. Hann bendir á að demókratar hafa sigrað í Virginíu í öllum forsetakosn- ingum frá árinu 2004 þegar George W. Bush fékk meirihluta atkvæða í ríkinu og repúblikanar sigruðu síðast í ríkisstjórakosningum þar árið 2009. Báðir þingmenn Virginíu í öldunga- deild Bandaríkjaþings eru demókrat- ar og einnig meirihluti þingmanna ríkisins í fulltrúadeildinni. Þessi breyting er einkum rakin til aukins fylgis demókrata í byggðum í nágrenni borganna í Virginíu. Flokk- urinn naut einnig góðs af óvinsældum Trumps í ríkinu, að mati stjórnmála- skýranda fréttaveitunnar AFP. Fréttaskýrandi breska ríkisút- varpsins telur að úrslit kosninganna í Kentucky og Virginíu séu áhyggju- efni fyrir Trump og repúblikana. Þau geti verið fyrirboði þess sem koma skuli í kosningunum í nóvember á næsta ári eins og aukið fylgi demó- krata í kosningum í Virginíu og New Jersey 2017, árið áður en þeir fengu meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkja- þings í fyrsta skipti í átta ár. Mikið fylgi demókrata í borgum og ná- grenni þeirra í kosningunum í Ken- tucky og Virginíu sé sérstakt áhyggjuefni fyrir repúblikana þar sem sigur demókrata í kosningunum til fulltrúadeildarinnar á síðasta ári hafi einkum byggst á þeim kjósenda- hópi. Sigurlíkur Trumps meiri en ætla mætti Skoðanakannanir hafa bent til þess að helstu forsetaefni demókrata séu með mun meira fylgi en Trump í öllu landinu. Stuðningurinn við for- setann er þó mikill í sex ríkjum þar sem sigur hans var naumastur í kosn- ingunum árið 2016: Michigan, Penn- sylvaníu, Wisconsin, Flórída, Arizona og Norður-Karólínu. Joe Biden, fyrr- verandi varaforseti Bandaríkjanna, er að meðaltali með eins prósentu- stigs forskot á forsetann í þessum ríkjum. Kannanirnar benda hins veg- ar til þess að Trump sé að meðaltali með þremur prósentustigum meira fylgi en öldungadeildarþingkonan Elizabeth Warren í ríkjunum sex. Þau eru með alls 101 af 538 kjör- mönnum sem velja forsetann form- lega. Úrslit forsetakosninganna á næsta ári gætu að miklu leyti ráðist í þeim og kannanirnar sýna að sigur- líkur Trumps eru meiri en ætla mætti af fylgi forsetaefnanna í öllu landinu. Úrslitin álitin áfall fyrir Trump  Demókratar sigruðu í ríkisstjórakosningum í Kentucky og fengu meirihluta í báðum deildum þings- ins í Virginíu í fyrsta skipti í tvo áratugi  Úrslitin talin áhyggjuefni fyrir repúblikana og forsetann AFP Sigri fagnað Andy Beshear, ríkisstjóraefni demókrata í Kentucky. 2019 2020 2021 26.-27. júní 30.-31. júlí 12. sept. 15. okt. 20. nóv. 19. des. 20. janúar Forseti settur í embætti Helstu dagar í kosningabaráttunni jan. 6 kappræður 6 kappræður 13.-16. júlí Lands- fundur 24.-27. ágúst Lands- fundur 7. okt. Heimildir: Bandarísku flokkarnir 3. nóv. KJÖR- DAGUR 29. sept. 3 kappræður forsetaefna NÆSTU KAPPRÆÐUR Demókratar Repúblikanar F o r s e t a e f n i d e m ó k r a t a v a l i ð 1 kappræður varaforsetaefna 15. okt. 22. okt. apríl Vitni yfirheyrð í beinni sjónvarpsútsendingu » Rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum Donalds Trumps forseta færist á nýtt stig í næstu viku þegar vitni verða yfirheyrð í beinni sjón- varpsútsendingu. » Áður hafði nefnd full- trúadeildarinnar yfirheyrt á þriðja tug vitna fyrir luktum dyrum. » Bill Taylor, staðgengill sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu, verður fyrsta vitnið í yfirheyrslunum sem verður sjónvarpað. VW GOLF GTE PREMIUM nýskr. 03/2018, ekinn 22 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur, leður, glerþak ofl. Verð 4.890.000 kr Raðnúmer 259690 VW GOLF GTE PANORAMA nýskr. 06/2018, ekinn 21 Þ.km, bensín /rafmagn, sjálfskiptur, glerþak, stafræntmælaborð ofl. Verð 4.690.000 kr Raðnúmer 259865 AUDI A3 E-TRON DESIGN nýskr. 05/2018, ekinn 10 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur, glerþak, stafræntmælaborð, 18“ felgur ofl. Verð 4.850.000 kr Raðnúmer 259845 VW PASSAT GTE PREMIUM nýskr. 02/2018, ekinn 20 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur, leður, glerþark, stafræntmælaborð ofl. Verð 5.290.000 kr Raðnúmer 259884 M.BENZ E 350E AVANT GARDE EQ POWER nýskr. 02/2018, ekinn 22 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Glæsilegt eintakmeð fullt af aukahlutum!. Verð 7.450.000 kr Raðnúmer 259893 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is FLEIRI SAMBÆRILEGIR TIL!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.