Morgunblaðið - 07.11.2019, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Boris John-son, for-sæt-
isráðherra
Bretlands, sló tón-
inn fyrir kosning-
arnar í desember í
grein í The Daily Telegraph í
gær. Þar harmaði hann þær
tafir sem orðið hafa á útgöngu
Bretlands úr Evrópusamband-
inu, Brexit, og sagði að ef það
tækist að ljúka Brexit myndu
hundraða milljarða punda fjár-
festingar streyma til landsins.
Þá myndu fyrirtæki og fjöl-
skyldur hafa vissu til að taka
ákvarðanir sem myndu lyfta
efnahagslífinu.
Einu leiðina til að ná Brexit
fram segir hann vera að kjósa
Íhaldsflokkinn; atkvæði greitt
smáflokkum – og þar hefur
hann eflaust sérstaklega hug-
ann við Brexit-flokk Nigels
Farage – sé í raun greitt Je-
remy Corbyn, leiðtoga Verka-
mannaflokksins.
Óhætt er að segja að John-
son hafi ekki mikið álit á stefnu
Corbyns. Hann vilji nýjar
kosningar um Brexit með óljós
markmið og enn frekari tafir í
að minnsta kosti ár. Þá hafi
hann horn í síðu efnamanna og
þeirra framtakssömu ein-
staklinga sem haldi atvinnulífi
og hagkerfi gangandi. Hatur
Corbyns á auðmönnum sé
raunar slíkt að ekki hafi sést
síðan í herferð Stalíns gegn
bændum sem voru landeig-
endur í Sovétríkjunum.
Þá sagði hann Corbyn hafa
greitt atkvæði gegn skatta-
lækkunum upp á jafnvirði
1.250.000 króna til þeirra sem
hafi hófleg laun og hafi þegar
lýst yfir áformum
um að leggja skatt
á fyrirtæki sem
yrði einn hinn
hæsti í Evrópu.
Þessu eigi að
fylgja gríðarleg
þjóðnýting fyrirtækja sem hafi
verið einkavædd.
Andstætt Corbyn vilji
Íhaldsflokkurinn, sem fer fram
undir slagorðinu Ein þjóð,
styðja við verðmætasköpun
framtakssamra einstaklinga,
auk þess að setja meira fé í
grunnstoðir á borð við skóla,
lögreglu, heilbrigðiskerfi, vegi
og háhraðanet inn á öll heimili.
En fyrst og fremst vilji
ríkisstjórn Íhaldsflokksins
virða lýðræðislegan vilja fólks-
ins eftir þriggja og hálfs árs
tafir. Brexit er það sem kosn-
ingarnar snúast fyrst og
fremst um.
Einn helsti kosturinn við
bresk stjórnmál – fyrir utan að
þar koma oft fram litríkir ein-
staklingar sem hafa munninn
fyrir neðan nefið – er að þar
eru línur yfirleitt skýrari en
víðast annars staðar. Og það er
mikilvægt í stjórnmálum að
línur séu skýrar og að kjós-
endur átti sig á hvaða kostir
eru í boði, fyrir hvað hver
flokkur stendur og hvar skilur
á milli. Með þessu verða áhrif
almennings meiri og áhrif
ósýnilegra embættismanna –
kerfisins eins og það er stund-
um kallað – minni. Með því
eykst skilningur á lýðræðinu
og áhuginn á lýðræðislegri
þátttöku. Þetta eru grundvall-
aratriði sem stjórnmálamenn
ættu að leggja sig fram um að
verja og viðhalda.
Boris Johnson talar
með afgerandi hætti
í upphafi kosinga-
baráttunnar}
Tónninn sleginn
Frumvarpsdrögum breytingu
á samkeppn-
islögum hafa vakið
nokkra athygli og
þá ekki síst fyr-
irhuguð breyting á
heimild Samkeppniseftirlitsins
til að skjóta úrskurði
áfrýjunarnefndar samkeppn-
ismála til dómstóla. Sam-
keppniseftirlitið, sem er í viss-
um skilningi aðili þessa máls,
sendi frá sér sérstaka yfirlýs-
ingu vegna þessa og mótmælti
fyrirhugaðri breytingu.
Þrátt fyrir vissa aðild Sam-
keppniseftirlitsins að þessu
máli má efast um hversu eðli-
legt það er að þeir sem þar
starfa noti stofnunina, sem á
að starfa eftir lögum, til að
þrýsta á ráðherra og þing-
menn um það hvernig lögin
eiga að vera.
Í þessu sambandi skiptir þó
ekki síður máli að
Samkeppniseft-
irlitið er ekki í
skilningi stjórn-
sýsluréttarins aðili
þeirra samkeppn-
ismála sem það
tekur fyrir og úrskurðar um,
eins og Árni Grétar Finnsson
lögfræðingur bendir á í grein í
Viðskiptamogganum í gær.
Niðurstaða úrskurðar-
nefndar samkeppnismála á að
vera endanleg nema aðili máls
skjóti henni til dómstóla. Þó að
starfsmenn Samkeppnis-
eftirlitsins vilji aukin völd er
það ekki þeirra að ákvarða um
völd sín. Þá sýnir reynslan að
það fyrirkomulag sem ríkt hef-
ur á undanförnum árum hefur
valdið óeðlilegu ástandi í at-
vinnulífinu, miklum kostnaði
og óhóflegum töfum. Brýnt er
að þetta verði lagað í samræmi
við frumvarpsdrögin.
Samkeppniseftir-
litið má ekki fara of-
fari frekar en aðrar
ríkisstofnanir}
Ekki aðili máls
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Greinilegt samband er á millibreytinga sem verða á um-svifum í efnahags- og at-vinnulífinu og bílaumferðar
um þjóðvegi landsins. Þetta hefur
ekki farið á milli mála á umliðnum ár-
um að sögn Friðleifs Inga Brynjars-
sonar, verkefnisstjóra hjá Vegagerð-
inni. Þegar hægir á hagvexti líður
ekki á löngu þar til þess má sjá merki
í minni umferð, eins og gerðist á árinu
2008 þegar hægði mjög á umferðinni.
Í uppganginum á umliðnum árum og
fjölgun erlendra ferðamanna stór-
jókst umferðin en samhliða minnk-
andi hagvexti að undanförnu hefur
mjög hægt á umferð þótt á móti vegi
fjölgun íbúa landsins.
Samkvæmt mælingum Vega-
gerðarinnar á 16 völdum stöðum á
hringveginum jókst umferðin í síðasta
mánuði um 0,4 prósent og er þetta
minnsta aukning í októbermánuði síð-
an árið 2011, eða í átta ár. ,,Fjögurra
prósenta samdráttur mældist í um-
ferðinni á Suðurlandi og má leiða lík-
ur að því að samdráttur í ferða-
mennsku skýri þann samdrátt.
Reikna má með að umferðin í ár auk-
ist eigi að síður um 2,5-3 prósent,“
segir í samantekt Vegagerðarinnar.
Áhrif af fjölda erlendra ferða-
manna á umferðina á höfuðborgar-
svæðinu eru ekki eins sýnileg og á
hringveginum, en skv. nýjum tölum
Vegagerðarinnar jókst umferðin á
höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum mán-
uði um 1,6% borið saman við sama
mánuð á síðasta ári. Mest jókst um-
ferðin yfir mælisnið ofan Ártúns-
brekku, eða 3,1%, en 1,0% samdráttur
varð í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi.
Fram kemur í samantekt Vega-
gerðarinnar að meðaltalsaukningin á
höfuðborgarsvæðinu í október frá
2005 og til ársins 2018 var 3,2% og þar
af leiðir að aukningin núna er langt
undir meðalþróun. Leita þarf aftur til
ársins 2011 til að finna minni aukn-
ingu umferðar um höfuðborgar-
svæðið í október líkt og á hringveg-
inum.
Að mati sérfræðinga Vegagerð-
arinnar er talið líklegast vegna spáðs
samdráttar í hagkerfinu nú þegar að-
eins tveir mánuðir eru eftir af árinu
að lítil aukning verði í nóvember og
desember og þá muni aukningin yfir
árið allt verða um 1%. Skv. nýrri þjóð-
hagsspá Seðlabankans, sem birt var í
gær, hafa horfur um hagvöxt á seinni
hluta ársins versnað frá því sem spáð
var í ágúst. Friðleifur bendir á að þótt
aukning verði í umferðinni á
höfuðborgarsvæðinu megi geta þess
að íbúum þar hefur fjölgað um 1,7%
frá áramótum til októberbyrjunar og
gæti staðan orðið um og yfir 2% heild-
araukning í árslok. Rannsóknir Vega-
gerðarinnar hafi sýnt fram á afar
sterk tengsl á milli umferðar- og
íbúaþróunar. Því megi færa fyrir því
rök að um raunsamdrátt í umferð sé
að ræða haldi umferðaraukning ekki í
við íbúaþróun.
Á hringveginum hefur umferðin
aukist um 2,7% frá áramótum miðað
við sama tímabil á síðasta ári. Árleg
meðaltalsaukning fyrir lykilsniðin í
heild frá árinu 2005 hefur verið 3,5%
og má því sjá að núverandi aukning er
23% undir meðalþróun, verði þetta
niðurstaðan í árslok, skv. upplýs-
ingum Vegagerðarinnar.
,,Mest hefur umferðin aukist um
mælisnið á Vesturlandi eða um 5,6%
en dregist saman um 2,8% um
Austurland. Einnig hefur umferð um
Suðurland dregist saman um 1,2%,“
segir í greinargerð Vegagerðarinnar.
Á höfuðborgarsvæðinu var mest
ekið á föstudögum í nýliðnum mánuði,
en minnst á sunnudögum. ,,Hlutfalls-
lega jókst umferðin mest á laugar-
dögum eða um 2,5% en minnst varð
aukningin á mánudögum eða 0,6%.
Umferð jókst að meðaltali um 1,3% á
virkum dögum en 2,1% um helgar.“
Minnsta aukning
umferðar í átta ár
Umferð á hringveginum og höfuðborgarsvæðinu
Umferð á hringveginum í októbermánuði 2005-2019
Umferð á höfuðborgarsvæðinu 2018 og 2019 eftir mánuðum
75
50
25
0
180
160
150
140
2018 2019
’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19
Heimild: Vegagerðin
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
48 54
57 52 52 54 51 51 53 55
62
69
80 82 83Þúsundir ökutækja á dag yfir 16 lykilteljara
Þúsundir ökutækja á dag yfir þrjá lykilteljara
177
174
163
170
167
162
178
156
153
Samdráttur í hagkerfinu og
minni umferðarþungi á þjóðveg-
unum fylgjast að og íbúaþróun-
in hefur vitaskuld einnig mikið
að segja. Minni hagvöxtur er að
mati sérfræðinga Vegagerðar-
innar helsta ástæða fyrir minni
aukningu á hringveginum en
einnig hafi mikið að segja að
ferðamönnum fækkaði verulega
við fall Wow air.
„Nú má gera ráð fyrir að er-
lendum ferðamönnum til lands-
ins geti fækkað um 15% í ár
miðað við árið á undan. Verði
þetta raunin hafa rannsóknir
Vegagerðarinnar, um fjölda er-
lendra ferðamanna í umferð-
inni, sýnt fram á að slíkur sam-
dráttur gæti dregið úr umferð
um 1,5-2,0 prósentustig. Því má
draga þá ályktun að ef ferða-
mannastraumurinn hefði hald-
ist óbreyttur til landsins væru
sterkar líkur á að á þessum tíma
ársins væri verið að áætla um
4-5% aukningu á umferð um
hringveginn nú í ár,“ segir í um-
fjöllun Vegagerðarinnar.
Dregur úr
umferðinni
FÆKKUN FERÐAMANNA
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
H
inn 1. jan. 2017 var afnumin hin
svokallaða króna-á-móti-
krónu-skerðing á eldri borg-
ara. Markmiðið var að einfalda
almannatryggingakerfið. Kerfi
sem við öll vitum að er svo stagbætt og flókið
að ekki nema færustu sérfræðingar á sviði al-
mannatrygginga botna nokkurn skapaðan
hlut í því. Það er skemmst frá því að segja að
öryrkjar, fátækasti minnihlutahópur sam-
félagsins, voru skildir eftir og áfram látnir
bera byrðar skerðingarinnar.
Óumdeilt er, að mikil óánægja hefur ríkt
með skerðinguna frá því henni var komið á í
tíð hinnar svonefndu velferðarstjórnar
Vinstri-grænna og Samfylkingar eftir hrun.
Flokkur fólksins hefur haft það á stefnuskrá sinni frá
upphafi að afnema skerðinguna með öllu, enda metið það
svo að um hreina valdníðslu stjórnvalda sé að ræða.
Bjarnargreiði?
Hænuskref var stigið þegar Alþingi samþykkti í vor að
lækka krónu-á-móti-krónu-skerðinguna um 35 aura.
Lækkunin fól í sér að aðrar tekjur örorkulífeyrisþegans
skerðast ekki lengur um 100% á móti lífeyri, heldur um
65%. Lækkunin var látin gilda afturvirkt frá 1. janúar
2019. Í ágúst sl. endurgreiddi Tryggingastofnun síðan
öryrkjum mismuninn á tímabilinu sem leiðréttingin tók
til.
Að sjálfsögðu var einhvers staðar í kerfinu möguleiki á
að hrifsa til baka með vinstri hendinni það
sem sú hægri var að gera. Var það gert með
því að reikna endurgreiðsluna sem hluta af
tekjum ágústmánaðar. Það hafði í för með sér
tilheyrandi minnkun húsnæðisstuðnings og
hækkun húsaleigu.
Ríður ekki við einteyming
Orðið einteymingur merkir „einfaldur
taumur á hesti“. Sá sem ríður við einteyming
hefur því aðeins taum öðrum megin við
hnakka hestsins. Það er nokkuð öruggt að
slíkur taumur er ekki upp á marga fiska.
Þannig taum notaði félags- og barnamála-
ráðherra þegar hann, væntanlega í góðri trú,
dró úr krónu-á-móti-krónu-skerðingunni um
35% á eintali við sjálfan sig án þess að tryggja hagsmuni
þeirra sem hann sagðist vera að hjálpa.
Ekkert var gert til að koma í veg fyrir þetta gífurlega
högg. Afturvirku greiðslunum var t.a.m. ekki dreift á
átta mánaða tímabilið sem þær tóku til. Sannarlega hef-
ur borgarstjórn ekki hækkað lágmarkstekjuviðmið sitt
svo koma megi í veg fyrir að það skref sem stigið var í
viðleitninni til að bæta kjör öryrkjans snúist upp í and-
hverfu sína.
Það er dapurt að horfa upp á jólagjöfina sem stjórn-
völd senda öryrkjum nú sem endranær. Skilaboðin eru
skýr. Öryrkjar: Látið ykkur líða illa um jólin!
Inga Sæland
Pistill
Hættið að níðast á öryrkjum
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen