Morgunblaðið - 07.11.2019, Side 41

Morgunblaðið - 07.11.2019, Side 41
Tíska Ekki láta þeir sem leigja rafskutlur og taka þátt í nýjustu tískubylgj- unni kuldann trufla sig. Þessi rúllaði niður Stórholtið – í stuttbuxum. Hari 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 Á næstunni verður afgreidd tillaga sem miðar að því að bæta námslegar og fé- lagslegar aðstæður barna í norðanverðum Grafarvogi. Að baki er vandaður undirbún- ingur og framundan mikilvægt umbótaferli. Mikil umræða hefur skapast um málið og því miður er sums staðar hallað réttu máli eins og í greinum sem tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins birtu hér í blaðinu á dögunum. Austur og vestur Viðrar vel til loftárása heitir prýði- legt tónverk Sigur Rósar sem kom í hugann við lestur greinar Eyþórs Arnalds, „Árásir á efri byggðir“, þar sem hann heldur því fram að upp- bygging sé meiri í vesturhluta borg- arinnar en dregið úr í austurhlut- anum. Þessi fullyrðing stenst auðvitað ekki enda er mestur gangur í framkvæmdum í austurborginni. Langþyngst vegur uppbygging skóla, íþróttamannvirkja og menn- ingarmiðstöðvar í Úlfarsárdal. Um- fang þeirra fjárfestinga er rúmlega 12 milljarðar króna. Uppbygging íþróttamannvirkja á félagssvæði ÍR í Breiðholti er annað stórt fjárfesting- arverkefni í austurhlutanum sem sömuleiðis hleypur á milljörðum. Verið er að byggja húsnæði um alla borg en flestar íbúðir verða til í Ár- túnshöfða og Vogabyggð – í austur- hluta borgarinnar. Bjúgverpill Veruleg fækkun grunnskólanem- enda er staðreynd í norðanverðum Grafarvogi og munar þar mest um fækkun í Kelduskóla-Korpu. Skólinn var byggður fyrir 170 börn en nem- endum hefur fækkað jafnt og þétt undanfarinn áratug. Þar eru nú 59 nemendur, enginn í 6. bekk og fjórir í 3. bekk og er hvergi að finna svo fá- mennan skóla í Reykjavík eða á öllu höfuðborgarsvæðinu. Nemendafjöldi í grunnskólum landsins er að með- altali rúmlega 430 börn. Tilteknir borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins segja fækkunina í Korpu komna til vegna að- gerða borgarinnar og ganga jafnvel svo langt að halda því fram að börn hafi verið flutt úr skólanum gegn vilja for- eldra sinna. Þau þekkja söguna illa – eigin sögu – því eina ákvörðunin sem borgaryfirvöld hafa tekið um flutning nem- enda úr skólanum var árið 2008, þegar ákveðið var að bregðast við myglu í færanlegu hús- næði við Korpuskóla með því að flytja unglingastigið yfir í Vík- urskóla. Þá stýrði Sjálfstæðisflokk- urinn meirihluta borgarstjórnar. Sjálfstæðismenn lofuðu að þetta væri tímabundin aðgerð en stóðu hvorki við það né loforð sem gefin voru íbú- um um að byggja við Korpuskóla, sem eftir á að hyggja verður að telj- ast lán í óláni í ljósi fækkunar nem- enda. Skynsamlegar breytingar Áform okkar um breytingar á skólahaldi í norðanverðum Graf- arvogi byggjast á faglegum, fé- lagslegum og fjárhagslegum rökum. Faglegu rökin fyrir breytingum á skólahaldi í norðanverðum Graf- arvogi eru þau að nemendur muni njóta meiri fjölbreytni varðandi nám og kennslu í stærri nemendahópi, þó vissulega hafi kennarar og stjórn- endur Kelduskóla-Korpu spilað vel úr aðstæðum og haldið uppi faglegu og góðu starfi. Félagslegu rökin eru þau að val um vini og félaga aukist til muna í fjölmennari nemendahópi, enda er ólíku saman að jafna að vera fjórir eða fjörutíu í árgangi sem er meðalstærð árganga í grunnskólum borgarinnar. Félagslegu rökin vega þungt enda er vaxandi skilningur á mikilvægi þess að byggja upp og þroska félagsfærni barna frá unga aldri svo sem sjá má á nýrri mennta- stefnu Reykjavíkurborgar þar sem félagsfærni er einn af fimm for- gangsþáttum sem sérstaklega verða efldir á komandi árum. Fjárhagslegu rökin felast í verulegum sparnaði af því að fækka skólastofnunum um eina. Nú er kostnaður á hvern nem- anda rúmlega tvöfalt hærri í Korpu en að meðaltali í öðrum grunnskólum borgarinnar. Markviss innleiðing Samkvæmt tillögu okkar verða þrír grunnskólar í norðanverðum Grafarvogi, hver með sinn stjórn- anda og 240-300 börn: Borgaskóli, Engjaskóli og Víkurskóli. Tveir fyrr- nefndu fyrir börn í 1.-7. bekk en Vík- urskóli verður sameinaður unglinga- skóli fyrir nemendur í 8.-10. bekk, nýsköpunarskóli með áherslu á frum- kvöðlanám, fjölbreytt skapandi starf, gagnrýna hugsun og þjálfun hæfni- þátta til að bregðast við áskorunum í tæknivæddum heimi. Vilji okkar í meirihluta skóla- og frístundaráðs stendur til þess að skólahúsnæði Korpu nýtist áfram til skóla- og frí- stundastarfs, t.d. í samstarfi við sjálf- stætt starfandi skóla. Tillaga um þessar breytingar verður lögð fram til afgreiðslu í skóla- og frístundaráði 12. nóvember að loknu umsagnarferli og væntanlega afgreidd endanlega í borgarstjórn viku síðar. Þá tekur við innleiðingarferli, þar sem áhersla verður lögð á að þær samgöngu- bætur sem boðaðar eru í tillögunni verði fjármagnaðar og komi til fram- kvæmda á fyrri hluta næsta árs. Ásetningur okkar sem stöndum að tillögunni er skýr: að búa betur að börnunum bæði námslega og fé- lagslega. Við munum leggja okkur fram um að innleiðingin verði mark- viss og fari fram í góðu samstarfi við starfsfólk, nemendur og foreldra. Viðrar vel til loftárása? Eftir Skúla Helgason Skúli Helgason » Áform okkar byggj- ast á faglegum, félagslegum og fjár- hagslegum rökum. Ásetningur okkar er skýr: að búa betur að börnunum bæði náms- lega og félagslega. Höfundur er borgarfulltrúi Sam- fylkingarinnar og formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. skuli.helgason@reykjavik.is Elliðaárdalurinn er eitt stærsta og fjöl- sóttasta útivist- arsvæði borgarinnar. Þar er einstakt nátt- úrufar sem vitnar um stórbrotna og heillandi jarðsögu, auk þess sem svæðið býður upp á ýmsar sögulegar minjar. El- liðaárnar renna um miðjan dalinn, fáar ef nokkrar aðrar borgir geta státað af að eiga laxveiðiá sem rennur um miðja borg. Við eigum því ekki að þurfa að standa í pólitísku þrasi við borgaryfirvöld um að vernda slíka náttúruparadís. Elliðaárdalur ekki meðal frið- lýstra svæða í borgarlandinu Þeir sem halda því fram að El- liðaárdalurinn sé friðlýstur hafa rangt fyrir sér. Hverfisvernd í deiliskipulagi er ekki friðlýsing enda á friðlýsing sér stoð í nátt- úruverndarlögum. Hún er unnin í samvinnu við umhverfisráðuneytið óski sveitarfélag eftir því að und- angenginni auglýsingu. Sam- kvæmt upplýsingum á vef Um- hverfisstofnunar eru einungis fimm svæði í borgarlandinu frið- lýst, þau eru Fossvogsbakkar, Háubakkar, Laugarás, Rauðhólar og Eldborg í Bláfjöllum. Elliðaár- dalurinn er ekki á meðal þessara svæða. Óafturkræft umhverfisslys í uppsiglingu Elliðaárdalinn verður að friðlýsa til að vernda hann frá ágangi nýrra bygginga og mannvirkja. Það yrði óafturkræft umhverfis- slys ef gengið yrði á dalinn með umfangsmiklum byggingum. Nú- verandi lóðarvilyrði borg- arstjórnar miða að slíkum hamför- um en þau hljóða upp á 12.500 fermetra mannvirki undir gróð- urhvelfingar og veit- ingarekstur. Þar er gert ráð fyrir bygg- ingum að grunnfleti 4.500 fermetrar. Auk þessarar lóðar ætlar meirihlutinn að út- hluta þremur öðrum lóðum undir ýmiss konar starfsemi á svæðinu. Enginn sem í raun og veru metur nátt- úruperlur á við Elliða- árdalinn má láta þrönga, skamm- sýna og flokkspólitíska hagsmuni villa sér sýn í þessum efnum. Því miður hafa umhverfisvernd- arsinnar, sem ýmist fylgja Vinstri- grænum eða Samfylkingunni að málum, ekki tjáð sig um málið í fjölmiðlum. Nánast algjör þögn ríkir í þessum hópi varðandi þau umhverfisspjöll sem meirihlutinn í borgarstjórn hyggst samþykkja endanlega á næstu vikum. Það vekur athygli sérstaklega í ljósi þess að í aðdraganda síðustu borg- arstjórnarkosninga voru Vinstri- græn með hástemmdar yfirlýs- ingar um vilja til þess að friðlýsa dalinn og lýstu því yfir að þau hefðu verið á móti nýbyggingum í dalnum. En núna – ekki eitt einasta orð frá ofangreindum umhverfisvernd- arsinnum um þau náttúruspjöll sem meirihlutinn ætlar að heimila að verði framkvæmdar við Stekkjarbakka í Elliðaárdal. Fádæma þögn umhverfissinna Eftir Mörtu Guðjónsdóttur Marta Guðjónsdóttir »Enginn sem í raun og veru metur náttúruperlur á við Elliðaárdalinn má láta þrönga, skammsýna og flokkspólitíska hagsmuni villa sér sýn. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hagkvæmara og vistvænna húsnæði var til umfjöllunar á fundi byggingarmálaráð- herra Norðurlanda- ríkjanna sem haldinn var hér á landi í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherra- nefndinni í október. Í kjölfarið skuldbundum við okkur með sam- eiginlegri yfirlýsingu til að leitast við að vera í fararbroddi þegar kemur að því að samræma byggingarreglugerðir og þróa lausnir sem draga úr losun í byggingariðnaði. Íslenskar aðstæður eru að sumu leyti frábrugðnar hvað varðar bygg- ingariðnað en ég er þess fullviss að við eigum mikil sóknarfæri hvað þetta snertir. Íslenskur bygging- ariðnaður á að geta orðið leiðandi hvað varðar það að draga úr umhverf- isáhrifum en til þess að svo verði þurfa stjórnvöld að auka samstarf sitt við innlenda framleiðendur og vinna þéttar með byggingariðnaðinum við að þróa lausnir. Í tengslum við fund ráðherra Norðurlandaríkjanna var einmitt lögð áhersla á aukið samstarf stjórnmála og atvinnulífs þegar kem- ur að bygging- armálum. Fram fóru hringborðsumræður með forstjórum úr byggingariðnaðinum hér heima og í hinum norrænu ríkjunum. Þar var meðal annars fjallað um hvað stjórn- völd og byggingargeir- inn geta gert til að auka norræna sam- vinnu í byggingariðn- aðinum. Tilgangurinn var að finna raunhæfar leiðir til að hægt sé að byggja hagkvæmara og vistvænna húsnæði, en það er áskorun sem öll norrænu löndin standa frammi fyrir. Það var samdóma álit þátttakenda að með því að styrkja og efla sam- starf Norðurlandaríkjanna skapaðist tækifæri til að auka framboð hag- kvæms húsnæðis. Það má meðal annars gera með því að samræma byggingarreglugerðir og koma á raf- rænum upplýsingagáttum en ekki síður með því að deila þekkingu og reynslu. Það er til mikils að vinna því ólík regluverk draga úr hagkvæmni á byggingarmarkaði. Lífskjarasamningarnir sem undir- ritaðir voru síðasta vor fólu í sér um- fangsmiklar aðgerðir í húsnæðis- málum sem unnið er að því að koma í framkvæmd í góðu samstarfi við að- ila vinnumarkaðar. Stór hluti af þeirri vinnu snýr einmitt að því að gera húsnæði hagkvæmara. Það er sannfæring mín að aukið samstarf milli Norðurlandaríkjanna ætti að vera til þess fallið að auka hag- kvæmni í byggingariðnaði. Það ætti jafnframt að geta gert hann vist- vænni. Í þessu sambandi er mik- ilvægt að íslenskur iðnaður sé í far- arbroddi og horft sé sérstaklega til þess hvernig við getum eflt innlenda framleiðslu og gert hana umhverf- isvænni. Samvinna Norðurlandaríkja stuðli að hagkvæmara og vistvænna húsnæði Eftir Ásmund Einar Daðason » Í tengslum við fund byggingarmálaráð- herra Norðurlandaríkj- anna var lögð áhersla á aukið samstarf stjórn- mála og atvinnulífs þegar kemur að byggingarmálum. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félags- og barnamálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.