Morgunblaðið - 07.11.2019, Side 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Það olli nettri geðs-
hræringu að koma
aftur til Krítar í
haust, sex árum eftir
að ég fékk heldur
óþægilegt símtal
þangað þess efnis að
ég hefði greinst með
krabbamein.
Þá féllumst við
hjónin ástfangin upp
fyrir haus í faðma og
fórum að gráta. Það
sem eftir lifði þeirrar ferðar fannst
mér gott að leggjast á sólbekk á
víðavangi þar sem enginn þekkti
mig og mér var sama um hvað
fólki fannst. Lesa mín eigin ljóð,
hlusta á tónlist og fara bara að
gráta.
Mínar helstu hugsanir á þeim
augnablikum voru til dæmis þær
að ég ætti ef til vill aldrei eftir að
upplifa það að vera afi. „Hvað
verður? Hvað ef? Á ég aldrei eftir
að... Ég sem ætlaði... Skilaðu
kveðju minni til okkar ófæddu
barnabarna... Viltu segja þeim frá
mér ...Að ég hafi ...myndi og
hefði ...“ Eitt símtal sumarið 2013
og veröldin hrundi. Og þegar heim
var komið tóku við frekari rann-
sóknir og mælingar, endalaus bið,
hækkandi gildi, uppskurður, löng
geislameðferð og ævilöng lyfja-
meðferð með tilheyrandi auka-
verkunum.
Tilfinningarnar
báru mig ofurliði
Tilfinningarnar báru mig ofurliði
strax fyrsta kvöldið eftir að við
hjónin komum svo aftur til Krítar í
síðasta mánuði eftir sex tíma flug.
Enda ég orðinn afi fjögurra
dásamlegra gleðigjafa sem hafa
komið sem englar inn í líf okkar
hjóna frá þeim tíma. Tvö þeirra
voru þarna einmitt með í för. Gild-
in komin í sögulegt hámark og ég í
sneiðmyndatöku á sex vikna fresti.
Við hjónin ákváðum því að fara
daginn eftir þangað sem við vorum
stödd þegar símtalið barst fyrir
sex árum til þess að skila því og
þar með krabbameininu og jafn-
framt til að leita að símanum mín-
um sem ég henti í laugina af því
tilefni á sínum tíma, eða svona
næstum því. Og til að þakka fyrir
lífið. Þakka Guði fyrir allt. Þá
meina ég allt.
Tókum við atburðinn upp á
myndband þar sem ég sagði frá og
sýndi sundlaugagarðinn, húsið sem
við dvöldum í á þeim tíma, stand-
andi við sólbekk á nákvæmlega
sama stað og þá.
Að því búnu gengum við berfætt
á ströndinni með notalegar sjógus-
urnar flæðandi yfir fæturna á okk-
ur og héldum út í kapellu eina sem
staðsett er á skaga við strand-
lengjuna; sömu kapellu og við
héldum út í daginn eftir að símtal-
ið barst á sínum tíma.
Gott að geta gert þetta upp.
Gott að sættast þannig við sjálfan
sig og breyttar aðstæður. Geta svo
bara haldið áfram. Án þess að
festast í sársauka fortíðarinnar og
því sem var. Ég er Guði svo enda-
laust þakklátur fyrir
lífið og gjafir þess.
Það er nefnilega svo
gott að þakka og gera
upp. Njóta þess svo
að fá að halda áfram
og gefa af sér, þótt af
veikum mætti kunni
að vera.
Ætla að sýna þér
fjársjóðinn minn
Tveimur eða þrem-
ur dögum síðar segir
fjögurra ára afabarnið
svo við mig: „Afi, komdu aðeins,
ég ætla að sýna þér svolítið.“ Ég
stend upp og fer með henni inn.
Þá segir hún: „Afi, ég ætla að sýna
þér hvar ég geymi fjársjóðinn
minn.“
Hún opnar því næst skúffu í
hillusamstæðu í herberginu þeirra.
Þar hafði hún komið fyrir ýmsu
smádóti og leikföngunum sínum.
Um leið og hún opnaði skúffuna
blasti við mér eintak af Nýja
testamentinu merkt Gídeonfélag-
inu á þremur tungumálum, þýsku,
ensku og frönsku, en ég starfaði
einmitt sem framkvæmdastjóri Gí-
deonfélagsins á Íslandi frá 1986-
1998 og var forseti landsstjórnar
félagsins 2001-2004 og fjármögn-
uðum við einmitt kaup á nákvæm-
lega svona útbúnum Nýjatesta-
mentisbókum til dreifingar á
hótelherbergi á Íslandi og víðar
um heim á þeim tíma. „Afi, þetta
er bókin þín.“
Ég hafði að vísu sent frá mér
allnokkrar bækur og eru myndir
af henni í tveimur þeirra. En þetta
snerti hjarta mitt í þessu sam-
hengi öllu.
Ég sem hafði varið öllum þess-
um árum í að útbreiða og vekja at-
hygli á hinum himnesku og lífgef-
andi kærleiks- og friðarorðum
frelsarans Jesú í Nasaret. Að þá
skuli þetta gerast þarna með þess-
um hætti á þessum merka stað,
sem talaði sannarlega sterkt til
mín í heildarsamhenginu. Á slóð-
um sem Páll postuli fór um fyrir
tæpum tvö þúsundum árum ásamt
Títusi vini sínum.
Þarna var ég svo hressilega
minntur á upprunann og nærveru
og handleiðslu heilags anda Guðs,
höfundar og fullkomnara lífsins,
sem vakir okkur yfir, leiðir, upp-
örvar, styður og blessar.
Já, krakkar mínir. Hann er sko
ekki aldeilis dauður enn. Dýrð sé
Guði fyrir lífið og hans nærandi
nærveru sem aldrei klikkar eða
bregst. Og fyrir dýrmæta þjónustu
og trúfesti allra hans jarðnesku
engla, alla tíð.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Uppgjör – Krít,
sex árum síðar
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
» Það olli nettri geðs-
hræringu að koma
aftur til Krítar í haust,
sex árum eftir að ég
fékk heldur óþægilegt
símatal þangað.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur og aðdáandi lífsins.
Á Íslandi er raf-
magn framleitt með
endurnýjanlegum
hætti. Þetta er stað-
reynd, sem þó skolast
stundum til þegar
uppgjör vegna upp-
runaábyrgða raforku,
stundum kölluð græn
skírteini, er birt einu
sinni á ári. Því er rétt
að skerpa aðeins á
hvað upprunaábyrgð-
ir eru, hver tilgangur þeirra er og
af hverju Ísland tekur þátt í kerf-
inu um þær.
Hvað eru upprunaábyrgðir
og hvernig virka þær?
Upprunaábyrgðir raforku eru
liður í baráttunni gegn loftslags-
breytingum.
Í Evrópu hefur verið gripið til
ýmissa ráða til að minnka losun
gróðurhúsalofttegunda og auka
hlut endurnýjanlegrar orku. Til
dæmis ívilnanir og skattlagning,
langtíma tvíhliða samningar við
raforkuframleiðendur og svo vott-
unarkerfi um uppruna raforku,
eða upprunaábyrgðir. Með upp-
runaábyrgðum er græni þáttur
framleiðslunnar gerður að sjálf-
stæðri söluvöru óháð því hvort
kaupandinn fái þetta tiltekna
græna rafmagn í innstungurnar
sínar. Það er til þess að hægt sé
umbuna þeim sem framleiða
græna orku óháð því hvar þeir eru
staðsettir því það skiptir ekki máli
í samhengi loftslagmála; það er
sama hvaðan gott kemur.
Fjárhagsleg umbun =
arðbærari hrein orka
Með því að beina fjármagni til
þeirra sem framleiða orku með
endurnýjanlegum hætti verður sú
orka arðbærari og getur frekar
keppt við orku sem framleidd er
með jarðefnaeldsneyti, sem hingað
til hefur verið ódýrari í fram-
leiðslu. Raforkunotendur í Evrópu
hafa kannski takmarkaðan aðgang
að endurnýjanlegri
orku í sínu heimalandi
en geta þá stutt við
framleiðslu á hreinni
orku með því að
borga aukalega í
hverjum mánuði og
kaupa uppruna-
ábyrgð. Hér fara því
saman hagsmunir
græna raforkufram-
leiðandans og græna
raforkukaupandans.
Sjái raforkunotandi
ávinning í því að vísa
í að hann noti rafmagn sem fram-
leitt er á umhverfisvænan hátt
getur hann vottað það með op-
inberum hætti með uppruna-
ábyrgð. Rétt eins og með aðrar
umhverfisvottanir þarf að greiða
sérstaklega fyrir vottun á uppruna
raforku. Engin kvöð er að kaupa
slíka vottun; kerfið er valfrjálst
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Verðmæti orkunnar
hámörkuð
Hreinleiki orkunnar okkar er
verðmæti og auðlind út af fyrir
sig. Kerfið um upprunaábyrgðir
setur verðmiða á þau verðmæti.
Ísland hefur augljósa hagsmuni af
því að hámarka verðmæti hreinu
orkunnar sem hér er framleidd og
það markmið næst betur með því
að selja þær upprunaábyrgðir,
sem ekki seljast hér á landi, á al-
þjóðlegum markaði.
Það skiptir máli fyrir heiminn
allan að á Íslandi sé framleidd
græn orka og því eðlilegt að við
njótum ávinnings af því. Fjárhags-
legur ávinningur Íslands er tölu-
verður í þessu kerfi. Út frá mark-
aðsvirði skírteinanna getur
upphæðin sem íslenskir raforku-
framleiðendur fá numið frá 0,5-5,5
milljörðum á ári. Árið 2018 voru
hreinar tekjur af sölu íslenskra
upprunaábyrgða í kringum 800-
850 milljónir króna. Þar sem raf-
orkuframleiðendur hér á landi eru
að langstærstum hluta í eigu ríkis-
ins hefur íslenskt samfélag beinan
ávinning af sölu upprunaábyrgða
og þessar umtalsverðu tekjur geta
hjálpað til við að halda orkuverði
hér lágu.
Ávinningur fyrir
íslensk fyrirtæki
Vegna þátttöku okkar í kerfinu
fá íslensk fyrirtæki aðgang að inn-
lendum upprunavottunum, sem
getur gefið samkeppnisforskot í
heimi þar sem krafan um sjálf-
bæra virðiskeðju verður sífellt há-
værari. Upprunaábyrgðir fylgja
með í raforkuverði til heimila á Ís-
landi og fyrirtækja á almennum
markaði og ættu fleiri fyrirtæki að
skoða hvers konar ávinning það
gæti fært þeim á alþjóðlegum
markaði. Fyrirtæki á Íslandi gætu
ekki nýtt sér hreinleika orkunnar
til að vekja athygli á sinni vöru
nema með þátttöku í kerfinu um
upprunaábyrgðir, því vottunina
þarf til.
Ávinningur fyrir loftslagið
Kerfið um upprunaábyrgðir hef-
ur engin áhrif á loftslagsmarkmið
Íslands eða annarra landa, enda
einungis hugsað til þess að búa til
aukafjármagn til þeirra sem fram-
leiða endurnýjanlega orku. Þetta
fjármagn getur skipt sköpum fyrir
fjárfestingar í nýjum umhverf-
isvænum orkukostum og hjálpar
því til við að koma fleiri slíkum á
koppinn. Og það skilar árangri.
Upprunaábyrgðir eiga þátt í því
að hlutfall endurnýjanlegrar orku
í Evrópu fer hækkandi. Það eru
góðar fréttir fyrir okkur öll.
Upprunaábyrgðir:
Lóð á loftslagsvogarskálar
Eftir Lovísu
Árnadóttur
»Upprunaábyrgðir
fylgja með í
raforkuverði til heimila
á Íslandi og fyrirtækja á
almennum markaði
og geta nýst sem
samkeppnisforskot á
markaði.
Lovísa
Árnadóttir
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Samorku.
lovisa@samorka.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?