Morgunblaðið - 07.11.2019, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 07.11.2019, Qupperneq 47
UMRÆÐAN 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 Sagan sýnir að þeg- ar við Suðurnesjamenn stöndum saman höfum við náð fram mörgum góðum málum til efl- ingar samfélagi okkar sem aukið hefur at- vinnu, þjónustu við sjúka og menntun unga fólksins. Menntun í heima- byggð var efld með stofnun Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 1974. Sveitarfélögin stóðu að framtakinu í samstarfi við ríkið. Af mikilli framsýni var virkjað í Svartsengi og Hitaveitu Suðurnesja var komið á með forystu og frum- kvæði okkar Suðurnesjamanna í samvinnu við ríkið. Bylting varð þegar heitu vatni var komið inn á öll heimili frá virkjun okkar í Svartsengi. Þessi framfaramál náðust fram með samvinnu og samstöðu sveit- arstjórna á Reykjanesskaganum. Hafin var bygging Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs að frum- kvæði sveitarfélaga á Suðurnesjum á árinu 1954 og heilsugæslu komið á fót árið 1974 til bráðabirgða í leigu- húsnæði. Árið 1973 var gerð áætlun um uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum í samræmi við lög um umdæmissjúkrahús utan Reykja- víkur og Akureyrar. Yfirlæknir sjúkrahússins, Kristján Sigurðsson, Sigurður S. Magnússon prófessor í kvensjúkdómum, fæðingarlæknir, starfsmenn sjúkrahússins og stjórn sjúkrahússins fylgdu málinu eftir en stjórnin var skipuð fulltrúum þá- verandi sveitarfélaga á Suður- nesjum; Voga, Grindavíkur, Hafna, Njarðvíkur, Keflavíkur, Garðs og Sandgerðis. Áætlunin gekk eftir. Árið 1981 var lokið við fæðingardeild í B-álmu sjúkrahússins sem jók öryggi barna og verðandi mæðra. Næst var heilsugæslustöð, C-álma, byggð við sjúkrahúsið árið 1984. Móttaka lækna var skipulögð í Vogum, Garði, Sandgerði og Reykjanesbæ. Heilsugæslustöð var byggð í Grindavík. Lokið var að fullu við byggingu D-álmu sjúkrahússins árið 2004. Gert var ráð fyrir sjúkradeild (skurðstofu) á þriðju hæð og 30 rúma legudeild á annarri hæð en stoðdeildum á fyrstu hæð. Svona eflum við HSS Þegar þetta er skrifað á haust- dögum 2019 vantar mikið á að HSS þjóni tilgangi sínum eins og áætlað var og lög gerðu ráð fyrir. Er nú svo komið að það verður að endurreisa sjúkradeild (skurðdeild) HSS en nú eru sjúklingar fluttir til Reykjavíkur til aðgerða sem áður var hægt að sinna á sjúkrahúsinu í Reykjanesbæ. Þá verður að fjölga hjúkrunarfræðingum og sérfræði- læknum við sjúkrahúsið. Stefna verður að því að nýta bet- ur fæðingardeild HSS en miklar breytingar hafa orðið á rekstri hennar. Fæðingum hefur fækkað frá því sem áður var en þær voru rúmlega 200 ár- lega fyrir 2004 en eru nú á seinni árum um 100 á hverju ári. Til að skapa fæðandi kon- um og börnum aukið öryggi verða fæðing- arlæknir, svæfinga- læknir og skurðlæknir að starfa við sjúkra- húsið. Nauðsynlegt er að bæta bráða- og slysamóttöku við sjúkrahúsið og styrkja sérstaklega vegna mikillar fjölgunar íbúa á Suðurnesjum og aukinnar umferðar á Keflavíkur- flugvelli. Fjölga verður læknum og ráða heimilislækna á heilsugæslustöðina og fjölga hjúkrunarfræðingum. Bæta verður viðveru lækna og mót- töku þeirra á sjúklingum að degi til. Auka verður þjónustuna frá því sem nú er við íbúa í Suðurnesjabæ og Vogum með viðveru heim- ilislækna og hjúkrunarfræðinga í heimabyggð. Íbúum fjölgar mikið á Suðurnesjum og því eðlilegt að auka þjónustuna enda var í upphafi gert ráð fyrir að þjónusta heilsu- gæslu væri skipulögð víðar en í Reykjanesbæ. Heimamenn þurfa beinan aðgang að HSS Nýframlögð fjárlög fyrir árið 2020 gera ekki ráð fyrir auknu fjár- magni til Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja nema síður sé. Enn eitt ár- ið jafnast fjárframlög ríkisins til heilbrigðismála á Suðurnesjum ekki á við framlög ríkisins til annarra heilbrigðisumdæma. Enn og aftur erum við sniðgengin hér á Suður- nesjum. Enn er vitlaust gefið. Nú þurfum við Suðurnesjamenn að spyrja okkur hvort við ætlum að sætta okkur við að stjórnvöld leggi niður heilbrigðisþjónustuna á Suð- urnesjum eins og hún var skipulögð í samræmi við lög og byggð upp af elju okkar og samtakamætti. Er ekki komið að því að sveitar- félögin, kjörnir fulltrúar okkar í heimabyggð sem vita hvar skórinn kreppir og hvar þarf helst að bregðast við, fái aftur beinan að- gang að málefnum sjúkrahússins okkar? Sagan sýnir að með framsýni og samtakamætti hefur okkur Suður- nesjamönnum tekist að skapa okk- ur umhverfi sem gerði líf okkar betra. Virkjum þann samtakamátt til þess að bjarga Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Virkjum samtaka- máttinn til að bjarga Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja Eftir Eyjólf Eysteinsson Eyjólfur Eysteinsson »Er ekki komið að því að sveitarfélögin fái aftur beinan aðgang að málefnum sjúkrahúss- ins okkar? Höfundur er formaður Öldungaráðs Suðurnesja. Við hjón í Fossatúni njótum þess vafasama heiðurs að löggjafinn setti sérstök lög til að leyfa veiðifélagi að halda áfram að skaða uppbyggingu og starf- semi okkar. Til þess að losna undan ákvæðum laganna sögðum við okkur úr veiðifélaginu. Úrsögninni var hafnað á forsendum skylduaðildar og því þurfum við nú að höfða mál til að öðlast frelsi frá félaginu. Þegar við eignuðumst Fossatún urðum við skylduaðildarfélagar að Veiðifélagi Grímsár og Tunguár. Ábúðarfullur formaður ítrekaði rétt veiðifélagsins til athafna í landi okkar og friðhelgi veiðimanna. Þeg- ar svo veiðifélagið fór að standa í samkeppni við okkur á þeim for- sendum að það væri til hagsbóta fyrir aðra félagsmenn fannst okkur það skrýtið. Kynntum okkur lax- og silungsveiðilögin og þar blasti við að veiðifélaginu og veiðimönnum ber að taka tillit til hagsmuna allra aðildarfélaga og að almennur samkeppnisrekstur rúmast ekki innan hlutverks veiðifélaga. Blásið var á athugasemdir okkar og við tóku málaferli þar sem Hæstiréttur staðfesti sjónarmið okkar. Við héld- um að þar með væri málinu lokið, en svo var aldeilis ekki! Engin umræða átti sér stað um málalok Hæstaréttar innan veiði- félagsins, almennt eða við okkur. Hið eina sem við skynjuðum sterk- lega var félagsleg útilokun. Tveim- ur árum síðar fundum við út að fé- lagið hafði beitt pólitískum klíkuskap til að breyta lögunum með það að markmiði að ógilda hæstaréttardóminn. Útilokun og óheiðarleiki staðfesti að við áttum ekki heima í veiðifélaginu. Laxveiði á bökkum Grímsár í landi Fossatúns þjónar ekki fram- tíðaráformum okkar. Bakkasvæði Fossatúns er afar fallegt og náttúrufegurð þess nýtist best með frekari tengingu við vaxandi ferða- þjónustustarfsemi, t.d. góðu að- gengi og aðstöðu við árbakkann. Þessi framtíðaráform fara einfald- lega ekki saman við þær kröfur sem gerðar eru af veiðifélaginu fyrir veiðimenn um ótruflað aðgengi og viðveru. Auk þess staf- ar gestum slysahætta af flugukastinu. Þá teljum við að veiði- menn togandi og drep- andi fisk með tilheyr- andi fyrirferð og bílaumferð sé ekki sú upplifun sem gestir okkar eigi að „njóta“. Miklu frekar nánd og ótrufluð vera í náttúrunni og möguleiki á að sjá laxa stökkva. Vernda laxastofninn til yndisauka en ekki sportveiða. Í nýlegri umsögn gesta fékk Fossa- tún 10 í einkunn á Booking.com. Gestirnir gerðu samt athugasemd við óæskilega upplifun sína. Veiði- menn veittust að þeim og ráku ruddalega burtu frá árbakkanum. Við viljum að gestir okkar njóti náttúrufegurðar. Þess vegna viljum við ekki vera í veiðifélaginu. Skylduaðild að veiðifélögum byggist á undantekningu frá félaga- frelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Þess vegna er starfsemi veiðifélaga markaður þröngur og skýr starfs- og lagarammi. Í breytingarlögunum sem Alþingi samþykkti eftir niður- stöðu Hæstaréttar í máli okkar er ramminn útvíkkaður og veiðifélög gerð að atvinnurekstrarfélögum sem mega taka þátt í almennum samkeppnisrekstri veitinga- og gistihúsa og ber að hámarka arð- semi aðildarfélaga. Við teljum að skylduþátttaka í atvinnurekstr- arfélagi sem stundar ósanngjarnan samkeppnis- og áhætturekstur standist hvorki stjórnarskrána né fyrirliggjandi niðurstöðu Mannrétt- indadómstóls Evrópu. Slík þátttaka hljóti að vera valkvæð. Við veljum að vera ekki í veiðifélaginu. Nú erum við sem sagt að hefja aðra yfirreið um íslenska réttar- kerfið vegna máls sem Hæstiréttur dæmdi okkur í hag – tilneydd vegna ólaga Alþingis. Þegar við fluttum í Fossatún óskuðum við þess að eiga góða sambúð við granna okkar og samfélaga. Það fór á annan veg. Það átti að valta yfir okkur. Maður verður að standa með sjálfum sér. Áður en til málarekstursins kom leituðum við ítrekað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al- þingis að fá fund með nefndinni til þess að fara yfir forsendur og ferlið en … Tveir kunningjar mínir sitja nú í stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd, þeir Þorsteinn Sæmundsson og Guðmundur Andri Thorsson. Músíkalskir menn sem ég þekki að góðu. Ég bar mig upp við þá fyrir nokkru. Guðmundur Andri, nýkom- inn á þing, sagðist koma af fjöllum en ætla að skoða málið og vera í sambandi en … Minn gamli skóla- bróðir Þorsteinn Sæmundsson bauð mér að hitta sig í híbýlum Alþingis fyrir tveimur árum. Hann hét mér stuðningi við að finna út hvort hægt væri að endurupptaka sett lög ef t.d. ekki hefði verið kannað nægi- lega hvort þau stæðust stjórnar- skrá. Ég reyndi síðan að ná tali og senda honum skilaboð í nokkra mánuði en … Við hjón, sem erum ástæða og fórnarlömb laganna, teljum að Al- þingi sé ekki stætt á því að snið- ganga málefnalegar athugasemdir okkar. Við fyrstu sýn kann fólk að halda að málið sé flókið og það þurfi að setja sig inn í nágrannaerjur. Svo er ekki. Hæstiréttur skilaði niður- stöðu í ágreiningi ábúenda Fossa- túns og veiðifélagsins. Á www.sveitasaga.com eru raktar staðreyndir um ólíðandi vinnubrögð Alþingis og ráðuneytis við und- irbúning og afgreiðslu laga. Ósann- sögli, óupplýst ákvarðanataka, spill- ing og þjónkun við sérhagsmuni ráða ferðinni. Afleiðingin er ófagleg og illa ígrunduð lagasetning með slatta af sniðgöngu og ógegnsæi í eftirleik. Að segja sig úr félagi Eftir Steinar Berg Ísleifsson » Laxveiði á bökkum Grímsár í landi Fossatúns þjónar ekki framtíðaráformum okk- ar. Við viljum vernda laxastofninn til yndis- auka en ekki sportveiða. Steinar Berg Ísleifsson Höfundur er ferðaþjónustubóndi. steinar@fossatun.is Metabolic Reykjavík | Stórhöfða 17 | metabolicreykjavik.is Metabolic Reykjavík Ný þjálfunarstöð við Gullinbrú Faglegt Fjölbreytt Skemmtilegt Æfðu á þínum hraða, á þínu erfiðleikastigi Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.