Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
✝ HjörtfríðurJónsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 11. ágúst 1961.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Víðihlíð í Grinda-
vík 27. október
2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Erna Ósk Guð-
mundsdóttir, f. 22.
apríl 1933, d. 9. desember
2018, og Jón Ólafsson, f. 1. des-
ember 1926, d. 28. apríl 2006.
Systkini Hjörtfríðar eru Andr-
ea Dögg, f. 1956, Guðmundur
Þór, f. 1958, Brynja, f. 1963, og
Ólafur Örn, f. 1970.
Hjörtfríður giftist 1. desem-
Þráinn Kolbeinsson, f. 14. októ-
ber 1988, þeirra sonur er
Þröstur, f. 2018. 3) Hjalti f. 16.
janúar 1992.
Hjörtfríður stundaði nám í
fatahönnun og tískuteikningu
við Iðnskólann í Reykjavík,
þaðan sem hún útskrifaðist
1982 og fékk meistararéttindi
sem kjólameistari árið 1985.
Hjörtfríður rak saumastofu um
árabil þar sem hún saumaði
margar meistaraflíkurnar, t.d.
marga kjóla fyrir fegurð-
arsamkeppnir. Það eru senni-
lega ekki margar konur í
Grindavík sem eiga ekki saum-
aða flík eftir hana. Árið 2002
útskrifaðist hún með kenn-
araréttindi frá Kennaraháskóla
Íslands og vann við kennslu í
Grindavík alveg þar til heilsan
gaf sig en Hjörtfríður greindist
með alzheimers-sjúkdóminn ár-
ið 2012.
Útför Hjörtfríðar verður
gerð frá Grindavíkurkirkju í
dag, 7. nóvember 2019, kl. 14.
ber 1990 Magnúsi
Andra Hjaltasyni,
f. 23. júlí 1958, d.
23. október 2017.
Foreldrar Magn-
úsar Andra voru
hjónin Petra Guð-
rún Stefánsdóttir,
f. 27. janúar 1922,
d. 28. janúar 2017,
og Hjalti Magn-
ússon, f. 6. apríl
1923, d. 15. júlí
2001. Börn Hjörtfríðar og
Magnúsar Andra eru: 1) Erna
Rún, f. 26. september 1985,
maki Óðinn Árnason, f. 15.
mars 1979, þeirra börn eru
Hjörtfríður, f. 2007, og Árni
Jakob, f. 2012. 2) Berglind
Anna, f. 6. ágúst 1989, maki
Elsku mamma. Lífið getur
svo sannarlega verið ósann-
gjarnt. Eftir langa og erfiða
göngu með þennan ömurlega
sjúkdóm færðu loks hvíldina.
Þrátt fyrir að upplifa nú
mikla sorg, söknuð og jafnvel
reiði erum við á sama tíma
óendanlega þakklát fyrir að
hafa átt þig sem mömmu, þótt
tíminn hafi verið styttri en við
hefðum viljað. Enn og aftur er-
um við minnt á það hvað lífið
getur verið stutt.
Þú hafðir svo marga frábæra
eiginleika sem við fengum að
njóta á meðan þú varst hér.
Smátt og smátt náði sjúkdóm-
urinn þó tökum á þér, en það
sem hann náði aldrei að sigra
var gleðin og kímnigáfan sem
höfðu alltaf einkennt þig. Þú
varst ennþá jafn stríðin og
fyndin og yfirleitt var stutt í
hláturinn. Það skipti heldur
ekki máli hversu erfitt ástandið
varð, þú varst alltaf jafn falleg
og vel tilhöfð. Enda fengum við
ósjaldan að heyra hvað við ætt-
um glæsilega mömmu.
Að uppskera eins og maður
sáir er orðatiltæki sem á vel við
ykkur pabba. Þegar á reyndi
voruð þið alltaf til staðar fyrir
ykkar fólk og kom það bersýni-
lega í ljós eftir að þú veiktist. Í
gegnum allt ferlið var traustur
hópur fjölskyldu og vina sem
hafði það að markmiði að fara í
gegnum þetta saman. Þið sáðuð
ykkar fræjum vel og uppskáruð
sanna vini sem hafa verið okkur
systkinum ómetanleg á þessum
erfiðu tímum.
Þú varst ekki bara frábær
mamma heldur voru Hjörtfríð-
ur og Árni Jakob heppin að
eiga þig sem ömmu. Þú varst
svo stolt af litlu nöfnunni þinni
og þið voruð miklar vinkonur.
Árni Jakob fékk að kynnast
þér um það leyti sem þú veikt-
ist og áttuð þið saman góðar og
skemmtilegar stundir. Þröstur
litli fékk ekki jafn mikinn tíma
með þér en þið áttuð samt ynd-
islegar stundir saman. Það var
alltaf jafn gaman að sjá hvað
þið ljómuðuð bæði við það eitt
að sjá hvort annað. Hann fær
svo að heyra óteljandi fallegar
og góðar sögur af ömmu
Hjöddu frá okkur öllum, við
pössum upp á það.
Við vitum að nú hefur pabbi
tekið fagnandi á móti þér og
yljum okkur við þær hugsanir
að nú séuð þið saman. Þú eins
falleg og þú varst, laus við
sjúkdóminn, og pabbi að stjana
við drottninguna sína. Alveg
eins og þetta hefði átt að vera.
Takk fyrir allt. Hvíldu í friði,
elsku mamma.
Erna Rún, Berglind
Anna og Hjalti.
Elsku Hjörtfríður mín. Nú
er komið að kveðjustund okkar,
sem kom allt of snemma og þú
einungis 58 ára gömul. Við viss-
um öll að hverju stefndi en
samt sem áður er höggið alltaf
þungt og erfitt þegar kemur að
því að skilja við sína nánustu.
Þú varst yndisleg systir, fimm
árum yngri en ég og varst allt-
af litla systir og ég stóra systir.
Þegar ég rifja upp í hug-
anum allar minningarnar um
þig er af mörgu að taka. Fyrsta
minningin um þig er þegar
mamma kom með þig til Þórs-
hafnar með flugvél frá Reykja-
vík, þá tveggja vikna gamla. Ég
beið í forstofunni í Herðubreið
og gat ekki beðið eftir að fá að
sjá þig. Þú varst fallegasta
barn sem ég hafði séð og feg-
urðin hélst allt fram í andlátið.
Þú varst ekki bara fögur útlits,
heldur var allt þitt innræti og
ræktarsemi jafn falleg.
Þú áttir marga góða vini sem
sýndu þér mikla ræktarsemi
síðustu árin sem þú lifðir, þar
sem þú glímdir við hinn illvíga
sjúkdóm alzheimer. Þú varst
einungis 51 árs þegar þú
greindist með sjúkdóminn, en
leiðin lá því miður allan tímann
niður á við og nú er þeirri
þrautagöngu þinni lokið, en eft-
ir sitjum við ættingjar og vinir
og söknum þín sárt. Harmur
barna þinna er mikill, þar sem
þau hafa nú misst báða foreldra
sína langt um aldur fram.
En aftur að minningunum.
Þú fluttir frá Þórshöfn 9 ára
gömul til Hafnarfjarðar og 11
ára gömul til Keflavíkur, þar
sem þú eignaðist þínar bestu
vinkonur, sem hafa haldið
tryggð við þig alla tíð. Ég held
að á engan sé hallað þó ég nefni
sérstaklega Ingu Hildi Gústafs-
dóttur. Hún var eins og klettur
í öllum þínum veikindum og vil
ég færa henni sérstakar þakkir
fyrir það.
En árin liðu, þú fórst að
vinna í fiski á sumrin 13 ára
gömul og vílaðir það ekki fyrir
þér að taka rútuna til Sand-
gerðis til að vinna þar allan
daginn. Þú varst ákaflega list-
ræn og því lá leið þín í Iðnskól-
ann í Reykjavík, þar sem þú
lærðir hönnun og fatasaum og
laukst námi sem kjólameistari
og klæðskeri. Þeir eru ófáir
brúðarkjólarnir og samkvæm-
iskjólarnir ásamt ýmsu fleiru
sem þú hannaðir og saumaðir í
gegnum tíðina. Það var því frá-
bært framtak að setja upp sýn-
ingu á verkum þínum í Grinda-
vík haustið 2018.
Ég vil þakka fyrir allan þann
tíma sem við áttum saman í
gegnum árin, góðar stundir
sem nú eru orðnar að minn-
ingum sem ég mun geyma í
hjarta mínu. Með sorg og trega
kveð ég þig, elsku Hjörtfríður
mín. Börnum Hjörtfríðar, þeim
Ernu Rún, Berglindi Önnu og
Hjalta og fjölskyldum þeirra
votta ég mína dýpstu samúð.
Harmur þeirra er mikill, en
þau standa þétt saman og
styðja hvert annað. Hvíl í friði,
elsku Hjörtfríður mín.
Þín systir,
Andrea Dögg.
Ég vil með nokkrum orðum
minnast systur minnar Hjört-
fríðar Jónsdóttur, eða Hjöddu
eins og hún var oftast kölluð.
Hjödda var níu árum eldri en
ég, Brynja systir sjö árum
eldri. Í mínu tilviki tóku þær
systur að sér ákveðið uppeldis-
hlutverk og leiddist það ekki.
Mamma hefur líklega verið feg-
in að fá smá aðstoð við uppeldið
en mér skilst að ég eigi þeim
systrum ýmislegt að þakka,
eins og t.d. að vera farinn að
labba 11 mánaða gamall og
hefja skólagöngu sæmilega læs
og skrifandi svo eitthvað sé
nefnt.
Ég man eftir Hjöddu þegar
fjölskyldan bjó á Mávabraut-
inni í Keflavík. Glaðvær og fé-
lagslynd, vinkonur í heimsókn,
mikið hlegið, líf og fjör. Eftir
grunnskólann í Keflavík tók við
bóknám sem Hjödda hafði frek-
ar takmarkaðan áhuga á. Held-
ur var slakað á varðandi námið
en ekki gefið eftir þegar kom
að skemmtunum. Móðir okkar
hafði það ráð handa ungum
stúlkum sem ekki vissu hvað
þær vildu, að senda þær í hús-
mæðraskóla. Svo fór að Hjödda
fór að Varmalandi í Borgarfirði
en síðan af eigin áhuga í Iðn-
skólann í Reykjavík þar sem
hún lærði fatahönnun og til
meistara í kjólasaum.
Almættið sparaði ekki feg-
urðina sem Hjödda systir fékk í
vöggugjöf, hún var ljós yfirlit-
um, andlitsfríð með ákaflega
fallegt bros. Hún hafði listrænt
auga og var flink í höndunum
eins og faðir minn hefði orðað
það. Þó svo bóknámið hafi ekki
heillað hana þá átti hún ákaf-
lega auðvelt með að læra. Til
marks um það er að síðar á lífs-
leiðinni kláraði Hjödda
kennsluréttindanám sem veitti
henni réttindi til að kenna sitt
fag í grunn- og framhaldsskól-
um.
Eftir námið í Iðnskólanum
kynntist Hjödda lífsförunaut
sínum, Magnúsi Andra Hjalta-
syni. Fjölskylda Magga tók
henni opnum örmum og alltaf
skynjaði maður hvað Maggi var
stoltur af henni. Falleg kona, 3
heilbrigð börn og síðar barna-
börn.
Þegar Hjödda var 51 árs
greinist hún með alzheimers-
sjúkdóminn. Eins og árás úr
launsátri sem enginn sér fyrir.
Við taka erfiðir tímar, tímar
þar sem systir mín hverfur
smám saman fyrir augum okk-
ar. Á slíkum tímum sér maður
úr hverju fólk er gert, hvernig
Maggi stóð eins og klettur við
hlið systur minnar í veikindum
hennar er til vitnis um einstaka
mannkosti hans. Það var því
ólýsanlegt áfall þegar Maggi
lést 2017 án nokkurs fyrirboða.
Í veikindum sínum naut
Hjödda þess einnig að eiga
góða fjölskyldu og góðar vin-
konur.
Það er fátt fallegra en sann-
ur vinskapur, vinabönd og
tryggð sem myndast á unga
aldri og eru svo sterk að þau
fær ekkert rofið.
Nú er komið að kveðjustund,
stund sem ég vissi að væri í
vændum en er samt ákaflega
sár. Þetta er erfið stund fyrir
börn Hjörtfríðar, Ernu Rún,
Berglindi Önnu og Hjalta en
þeim og fjölskyldum þeirra
votta ég mína dýpstu samúð.
Ólafur Örn.
Það var fallegur morgunn
þegar systir mín hún Hjört-
fríður (Hjödda) kvaddi okkur.
Sólin var að koma upp og það
sló fallegri birtu á umhverfið
sem minnir um margt á hana.
Hjödda var falleg kona og það
geislaði af henni hvert sem hún
fór. Létta lundin einkenndi
hana og það var ávallt stutt í
bros og hlátur. Hún gat verið
stríðin og þegar henni fannst
eitthvað ótrúlega fyndið gat
hún ekki hamið hláturinn og
það endaði með því að allir
voru farnir að hlæja með þótt
enginn vissi hvert tilefnið var.
Hjödda var tveimur árum
eldri en ég og því þótti það eðli-
legt á æskuheimilinu á Þórs-
höfn að hún passaði upp á litlu
systur sína sem hún gerði sam-
viskusamlega þó að það hafi nú
ekki alltaf verið gaman að vera
með litlu systur í eftirdragi.
Hjödda var einstaklega
handlagin og byrjaði snemma
að sauma föt á dúkkurnar sínar
og síðar á sig sjálfa. Það kom
því ekki á óvart að hún skyldi
læra fatahönnun í Iðnskólanum
og útskrifast þaðan sem kjóla-
meistari. Hún saumaði fallega
kjóla á stúlkur sem tóku þátt í
fegurðarsamkeppnum og vöktu
kjólarnir hennar athygli ann-
arra. Hún kenndi textíl við
Grunnskóla Grindavíkur og síð-
ar meir nældi hún sér í
kennsluréttindi og gerðist
kennari.
Hjödda var lánsöm í einkalíf-
inu og ung að árum kynntist
hún honum Magga sínum,
Grindvíkingi með meiru. Saman
eignuðust þau þrjú börn, Ernu
Rún, Berglindi Önnu og Hjalta.
Þau hjónin voru mjög samhent
og fannst mér alltaf gleði og
kátína ríkja í þeirra sambandi
og það var alltaf gaman að
koma í heimsókn í Grindavíkina
og áttum við margar gæða-
stundir með þeim hjónum og
börnum.
Árið 2012 knúði sorgin dyra.
Hjödda var greind með alz-
heimer og var það mikið áfall
fyrir þau öll. Maggi bar Hjöddu
sína á höndum sér áfram eins
og hann hafði alltaf gert og
naut aðstoðar barna, ættingja
og vina sem reyndu að létta
álagið sem þessu fylgdi. Annað
áfall dundi yfir og Maggi varð
bráðkvaddur hinn 23. október
2017. Enn á ný þurftu fjöl-
skylda, ættingjar og vinir að
hlúa hvert að öðru svo lífið gæti
haldið áfram. Hjödda mín, nú
þarftu ekki lengur að þjást og
ert laus undan þeim grimma
sjúkdómi sem alzheimer er.
Hann tók allt frá þér nema fal-
lega brosið þitt.
Nú ertu komin til Magga
þíns þar sem hann heldur
áfram að umvefja þig. Hvíl í
friði elsku systir og takk fyrir
allt sem þú gafst mér og mínu
fólki. Minningin lifir í hjörtum
okkar sem eftir stöndum.
Þín systir,
Brynja.
„Einstakur“ er orð sem notað er
þegar lýsa á því sem engu öðru er
líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða
manni sem veitir ástúð með brosi
eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast
af rödd síns hjarta og hefur í huga
hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá sem eru dáðir
og dýrmætir og hverra skarð verður
aldrei fyllt .
„Einstakur“ er orð sem best lýsir
þér.
(Terri Fernandez)
Hjörtfríður var svo sannar-
lega einstök, ljúf, brosmild,
hugmyndarík og með skemmti-
legt skopskyn. Við systur vor-
um svo heppnar að kynnast
Hjöddu í gegnum starf okkar í
skólanum. Þótt ekki hafi hún
verið fyrirferðarmikil var hún
svo smekkleg og glæsileg að
eftir henni var tekið. Gaman
var að fá hana sem leynivin á
slíkum dögum í starfsmanna-
hópnum eða vera með henni í
undirbúningshópi fyrir starfs-
mannaferð, þar kom sköpunar-
gáfa hennar og einstakur húm-
or svo skýrt fram. Við hittumst
oft fyrir utan vinnuna og fórum
í langa göngutúra saman, hlóg-
um svo að því að við værum
búnar að vera svo duglegar að
við ættum skilið kaffibolla og
súkkulaði á eftir. Hún átti það
sameiginlegt með okkur að
vera mikill sælkeri. Um leið og
við vottum Ernu Rún, Berg-
lindi Önnu, Hjalta og fjölskyld-
um þeirra okkar dýpstu samúð
vonum við að það góða vega-
nesti sem þau fengu frá for-
eldrunum verði þeim styrkur í
sorginni.
Ásrún og Valdís.
Elsku Hjödda mín. Ég minn-
ist þín sem einstaklega góðrar
og traustrar vinkonu og á þess-
ari stundu ylja ég mér við
margar góðar minningar um
samverustundir okkar.
Við kynntumst í Húsmæðra-
skólanum á Varmalandi 1978.
Mikill áhugi á handavinnu
leiddi okkur saman og urðum
við strax bestu vinkonur. Eld-
hússtörfin voru hins vegar ann-
að mál en þegar við áttum eld-
húsið enduðu þær stundir oft
með fíflalátum. Alltaf vorum við
að reyna að passa línurnar en
gekk ekki sem skyldi, kannski
vegna þess að við stálumst oft í
búrið á kvöldin. Ég man sér-
staklega eftir því hvað okkur
brá við þegar Steinunn skóla-
stýra kom að okkur eitt kvöld-
ið, en við enduðum í hláturs-
kasti og gátum hlegið að þessu
lengi á eftir. Sumarið eftir Hús-
mæðraskólann komstu með
mér vestur til Bolungarvíkur að
vinna í frystihúsinu, þar áttum
við mjög skemmtilegan tíma.
Við rúntuðum út í eitt á gamla
rauða Saabinum, sem ýmislegt
þurfti að þola. Um haustið lá
leið okkar suður til Reykjavík-
ur þar sem við hófum nám í
fatasaumi við Iðnskólann í
Reykjavík. Við leigðum saman í
Álftamýrinni ásamt Nonna
bróður en þar var iðulega mikið
fjör. Um helgar var kíkt í Sig-
tún og Klúbbinn og þangað fór-
um við oftast í nýsaumuðum
dressum.
Eftir þrjú skemmtileg ár í
Iðnskólanum lukum við sveins-
prófi í kjólasaumi en þar varst
þú á heimavelli enda með ein-
dæmum smekkleg og með gott
auga fyrir hönnun og tísku.
Eftir þig liggja fjölmörg falleg
verk eins og sjá mátti á „Hugur
og hönd Hjörtfríðar“-sýning-
unni sem börnin þín héldu í
fyrrahaust.
Eftir að þú kynntist Magga
þínum áttum við Gummi marg-
ar góðar stundir með ykkur og
héldum við alla tíð góðu sam-
bandi. Símtölin gátu oft verið
löng hjá okkur vinkonunum
enda um margt að spjalla. Það
var alltaf notalegt að koma í
heimsókn í Staðarhraunið til
ykkar og teygðist þá oft á tím-
anum.
Nú er þrautagöngu þinni lok-
ið elsku vinkona og komið að
kveðjustund.
Ég er þakklát fyrir allar
stundirnar okkar saman og
geymi þær í hjarta mínu. Elsku
Ernu Rún, Berglindi Önnu,
Hjalta og fjölskyldum votta ég
mína dýpstu samúð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Þín vinkona,
Soffía Þóra.
Í dag fylgi ég minni bestu
vinkonu.
Elsku Hjödda mín, eins og
það er sárt að missa þig þá er
ég fegin að þú fékkst hvíldina.
Það var svo sárt að sjá þig
missa allt sem þú áttir í hendur
hræðilega sjúkdómsins alz-
heimer.
Þú varst svo falleg með
geislandi bros og alltaf vel til-
höfð.
Við Hjödda kynntumst um
11 ára aldur þegar hún flutti til
Keflavíkur, við náðum strax vel
saman og urðum mjög góðar
vinkonur. Á unglingsárunum
var Hafnargatan gengin fram
og til baka og oftar en ekki
stoppuðum við á Nautinu og
fengum okkur franskar, sem
okkur þótti guðdómlegar. Í þá
daga var farið í bíó á fimmtu-
dags- og sunnudagskvöldum, ég
elskaði að fara á hryllings-
myndir en Hjöddu líkaði það
ekki en samt fór þessi elska
alltaf með mér. Svo þurfti ég að
fylgja henni heim því hún þorði
ekki ein heim.
Hjödda var einstaklega fær
saumakona, margir glæsilegir
kjólar sem hún hannaði og svo
gerði hún veski, nælur, arm-
bönd og fleira úr leðri og roði.
Einnig var hún byrjuð að fikta
við að mála myndir. Mamma
kenndi mér að sauma en
Hjödda lét mig oft sauma með
sér, það var oft að við saum-
uðum á okkur balldressið sam-
dægurs.
Hjödda var lánsöm að hitta
hann Magga sinn og voru þau
samstiga í lífinu, við fórum í
skemmtilegar ferðir erlendis og
þótti ykkur fátt skemmtilegra
en að ferðast og búa til minn-
ingar með fjölskyldu og vinum.
Ég var heppin að kynnast
þér, þú varst stríðin, skemmti-
leg og góð vinkona.
Það er samt þannig að þótt
maður hlýi sér við minningarn-
ar er eiginlega ekki hægt að
ímynda sér annað en að við
hittumst aftur.
Hvernig sem á það er litið,
sama út frá hvaða hlið,
lífið hefði verið litlaust
ef þín hefði ekki notið við.
(SH)
Elsku Erna Rún, Óðinn,
Hjörtfríður, Árni Jakob, Berg-
lind Anna, Þráinn, Þröstur,
Hjalti og aðrir ástvinir, megi
Guð styrkja ykkur í sorginni.
Inga vinkona.
Þá er hún elsku Hjörtfríður
okkar, eða Hjödda eins og hún
var alltaf kölluð, búin að fá
hvíldina. Eflaust kærkomin
hvíld fyrir hana en eftir sitjum
við með sorg og söknuð í
hjarta. Sorg yfir örlögum
þeirra hjóna en Hjödda var að-
eins 58 ára þegar kallið kom en
Magnús Andri, maðurinn henn-
Hjörtfríður
Jónsdóttir
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”