Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 50

Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 ✝ Jónas Ás-mundsson fæddist á Bíldudal 24. september 1930. Hann lést á dvalarheimilinu Grund 19. október 2019. Foreldrar Jónasar voru Martha Ólafía Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 4. apríl 1892, d. 18. febrúar 1960, og Ásmundur Jónasson, sjómaður og verka- maður á Bíldudal, f. 24. apríl 1899, d. 5. mars 1995. Systur Jónasar voru Ásta Ásmundsdóttir, f. 25. júlí 1923, d. 29. ágúst 2000, og Svandís Ásmundsdóttir, f. 28. júní 1925, d. 5. júlí 2010. Jónas útskrifaðist frá Versl- unarskóla Íslands árið 1950. Að skólagöngu lokinni starfaði hann sem fulltrúi sýslumanns á Patreksfirði. Árið 1954 gerðist Jónas oddviti Suðurfjarðar- hrepps og framkvæmdastjóri Svandís Árnadóttir húsmóðir, f. 9. september 1893, d. 29. febrúar 1968. Dóttir Jónasar og Jónu Magnúsdóttur, f. 8. maí 1929, d. 31. desember 1952, er Guð- rún Jóna fulltrúi, f. 31. desem- ber 1952. Sambýlismaður henn- ar er Ingi Halldór Árnason tækjamaður og á hún þrjú börn, Jónu Dís, Þóreyju og Ottó Inga Þórisbörn. Börn Jón- asar og Guðríðar eru: A) Ás- mundur yfirlæknir, f. 20. júlí 1957, kvæntur Guðrúnu Vign- isdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo syni, Jónas og Tómas Vigni. Áður eignaðist Ásmundur soninn Jón Kristin og Guðrún soninn Heimi Snorrason. B) Gylfi fram- kvæmdastjóri, f. 24. júní 1960, kvæntur Ásdísi Kristmunds- dóttur verkefnastjóra og eiga þau tvær dætur, Gígju og Hrefnu Björgu. C) Helgi Þór hagfræðingur, f. 20. júlí 1964, kvæntur Kristínu Pétursdóttur löggiltum fasteignasala og eiga þau tvö börn, Hinrik og Mörthu Sunnevu. Barna- barnabörn Jónasar eru fjórtán. Jónas var jarðsunginn 31. október 2019. fiskvinnslu og út- gerðar hreppsins á Bíldudal. Árið 1971 tók hann við starfi aðalbókara Háskóla Íslands og gegndi því starfi til ársins 1999. Meðfram öðrum störfum var Jónas jafnframt organisti í Bíldudalskirkju um nokkurra ára skeið. Hann starf- aði innan Lions hreyf- ingarinnar um árabil og kom m.a. að stofnun Lionsklúbbsins Týs í Reykjavík. Jónas var jafnframt virkur í starfi SFR og BSRB og sat í stjórn SFR 1975-1985. Jónas kvæntist 17. júní 1955 Guðríði Soffíu Sigurðardóttur, húsmóður og kaupmanni, f. 23. febrúar 1928, d. 7. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Sigurð- ur Andrés Guðmundsson, skip- stjóri og bóndi á Geirseyri við Patreksfjörð, f. 29. nóvember 1886, d. 23. desember 1948, og Jónasi tengdaföður mínum kynntist ég árið 1978 þegar hann var fjörutíu og átta ára. Hann tók mér sem vinkonu sonar síns Ás- mundar með hógværð og alúð. Jónas var maður orða sem höfðu merkingu, þunga og þau skiptu máli. Ég man eftir umræðum á Sunnubrautinni þegar fjölskyldan kom saman. Umræður gátu orðið líflegar og talaði fólk gjarnan hvað ofan í annað. En þegar Jónas tengdapabbi tjáði sig gerði hann það hægt og rólega og með yfir- vegun þannig að eyru allra urðu hans. Jónas var hógvær í yfirlýs- ingum en ef hann hafði tekið ákvörðun stóð hann við hana. Ég man ekki eftir að hann hallmælti nokkurri manneskju og ef honum mislíkaði eitthvað var það sagt á yfirvegaðan og kurteisan hátt. Jónas og Gýja fóru með okkur Ásmundi í sumarfrí til Englands og sigldum við á báti um síki í grennd við Norwich og ferðalagið var stórkostlegt. Hæg sigling, gott veður og hver dagur með nýj- um ævintýrum. Það var ánægju- leg reynsla að ferðast og skemmta sér með fólki sem var þá rúmlega helmingi eldra en við. Það var ákveðið í upphafi ferðar að skrifa dagbók um hvern dag og að skiptast á að sigla bátnum. Þessi áskorun var oft erfið, við vorum misgóð að stýra bátnum og svo var mikið hlegið á kvöldin er dag- urinn var rifjaður upp og bók- færður í dagbókina sem enn er til. Jónas var góð fyrirmynd og ekki er hægt að nefna hann hvað það varðar án þess að nefna Gýju konu hans. Þau kunnu að láta manni líða vel á heimili sínu og fannst mér yndislegt þegar við Ásmundur bjuggum á Selfossi og þurftum gæslu fyrir syni okkar og var alltaf pláss fyrir okkur yfir nótt og velkomið að gæta þeirra. Jónas var frábær tengdapabbi og afi og ásamt Gýju voru þau góðar fyrirmyndir. Jónas með sína rólegu og yfirveguðu framkomu og beittu kímni á meðan Gýja var glaðleg og spjallaði um menn og málefni. Djúp og innileg nálægð og kærleikur einkenndi hjónin og nú lifir minningin um hann og þau hjón í hjörtum afkomenda sem eft- ir lifa. Guðrún. Elsku afi Jónas. Nú hefur þú kvatt okkur og ert tilbúinn að halda ferðalagi þínu áfram yfir á annan stað. Þú ert ef- laust kominn til ömmu og ég er viss um að endurfundirnir eru ljúf- ir. Ef ég þekki ykkur rétt eruð þið á leiðinni þangað sem sólin skín. Ég bið þig að skila kærri kveðju frá okkur öllum til ömmu Gýju og að kyssa hana þrisvar á kinnina. Þú og amma sáuð til þess að safna öllum saman á Sunnubraut- inni og lífið þar var draumi líkast. Minningin ber með sér vissa lykt af þurrkuðum blómum og ilmvatni og í minningunni var alltaf sól- strandarveður í garðinum. Þú gekkst um með pípuna þína, settir Stand By Me eða Rambo 2 í tækið, settist í lazyboy-stólinn og bauðst upp á bananaís með súkkulaðibit- um. Á Sunnubrautinni hvarf allt daglegt amstur og það var eins og tíminn hægði á sér. Þú sagðir einu sinni við mig að það væri ekki hægt að vera í kringum okkur barnabörnin án þess að brosa. Mér þótti skemmti- legast að segja þér frá skólaein- kunnum því sama hver einkunnin var, vorum við alltaf hæst fyrir þér. Þú varst menntamaður og studdir mig þegar ég ákvað að fara út í nám. Nú sendi ég þér þessa kveðju héðan úr skólanum í Danmörku. Mig langar að þakka þér fyrir fordæmið sem þú sýndir í því hvernig ætti að elska. Þú og amma héldust alltaf í hendur og þú kysst- ir hana alltaf blíðlega fyrir svefn- inn. Þú hjálpaðir henni að muna þegar hún var farin að gleyma, jafnvel þó þú værir sjálfur farinn að gleyma svolítið líka. Þú varst rólegur maður en elskaðir útivist og göngutúra og varst duglegur að viðra Skolla þinn. Þú kvaddir okk- ur líka rólega og yfirvegað, sárs- aukalaust og umvafinn fólkinu sem elskar þig. Áramótin verða einmanalegri í Geitastekk án ykkar ömmu því þið verðið ekki þar að syngja Ólaf Liljurós með glas af kampavíni í hönd. Þú sást alltaf til þess að sprengja inn nýárið með stærsta flugeldinum, ömmu til lítillar gleði. Við treystum því að þið fagnið há- tíðunum annars staðar þetta árið og á meðan þú passar upp á ömmu Gýju getur þú treyst því að pabbi sendir upp stóra rakettu þér til heiðurs. Þín verður saknað, afi Jónas, en þú skilur eftir þig minningar sem við höldum fast í. Ég elska þig, þangað til næst, Hrefna Björg Gylfadóttir. Sú mynd sem hugarfylgsni mitt málar af afa mínum þegar ég minnist hans færir mig aftur til ní- unda áratugar síðustu aldar þegar hann og Gýgja amma mín bjuggu á Sunnubrautinni í vesturhluta Kópavogs. Þar byggði hann fjöl- skyldu sinni reisulegt hús við sjáv- arsíðuna. Það er ákveðin erkiminning sem ég hef af honum og ömmu minni frá því ég var ungur strák- ur. Hún hefst einhvern veginn þannig að amma mín biður mig á laugardagsmorgni í eitt þeirra skipta sem ég hafði verið í pössun hjá þeim að fara og vekja afa sem enn lá og svaf í rúmi sínu. Oft var ég sendur nokkrum sinnum yfir í svefnherbergið til að vekja hann þar sem hann svaf oft langt fram yfir hádegi um helgar. Líklegast hafði hann verið að skála með góð- um vinum kvöldið áður en ekki hvarflaði það að mér á þessum tíma. Ég hlýddi bara ömmu þegar hún bað mig um að vekja þennan mögulega timbraða eldri mann sem aldrei varð pirraður þrátt fyrir að ungur sonarsonur kæmi og raskaði ró hans. Þegar hann hafði svo komið á fætur hafði amma lagað handa honum kaffi og tekið til morgun- matinn sem ekki breyttist sama hvaða dagur vikunnar var. Seríós með berjasafa, súrmjólk og létt- mjólk. Ég man alltaf hvað mér fannst þetta einkennileg leið til að hefja daginn. Þessu fylgdu svo ís- lenskar pönnukökur og kaffi ásamt helgardagblöðunum og Gufunni sem ómaði á bak við. Oft á tíðum hafði amma rekist á eitt- hvað merkilegt í Lesbók Morgun- blaðsins sem henni fannst nauð- synlegt að afi læsi. Ég man lauslega eftir grein sem hafði ver- ið tileinkuð Steini Steinarr og höfðu nokkur ljóða hans fengið að fylgja með. Amma hóf lestur á einu ljóðanna sem var í nokkrum erindum. Eftir að hafa klárað fyrstu setningu fyrsta erindis var eins og hún vissi hvað tæki við. Afi kláraði ljóðið eftir minni eins og hann hefði samið það sjálfur. Allt frá fyrstu tíð minni hef ég verið minntur á mannkosti hans og kannski sérstaklega vegna þess að ég erfði nafn hans. Allir sem hann þekktu báru honum vel söguna og hafði fólk á orði að hann væri leikinn með orð, færi létt með að halda ræður við hátíðartil- efni og hefði kveðist á eins og gert var í gamla daga. Hann var líka vinur vina sinna og naut virðingar samferðamanna sinna enda mættu rúmlega tvö hundruð manns í áttræðisafmæli hans. Það er einnig mikilvægt fyrir mig að fylla út í eyður þeirrar mósaíkur sem myndaði persónu- leika hans og fá að kynnast honum í gegnum sögur sem ekki endilega mála rósrauða mynd af lífshlaupi hans. Það gerir hann mennskari og færir hann nær mér en áður. Nú dagana og vikurnar eftir and- lát hans hafa margir deilt endur- minningum sínum af honum. Það er á margan hátt hughreystandi að vita að lífshlaup hans hafi verið barátta eins og hjá okkur flestum. Hann lifði tímana tvenna og brim- rót lífsins gat stundum skollið fast að ströndum hans. Snemma á lífs- leiðinni þurfti hann að takast á við erfiða atburði sem líklegast hafa haft mikilvæg og djúpstæð áhrif á hann. Engu að síður hef ég ekkert nema hlýjar minningar um afa minn og nafna og ímynd hans tók þátt í að móta mig og gera mig að þeim manni sem ég er í dag. Betri fyrirmynd af forvera mínum hefði ég ekki getað fengið og þakka ég honum minningarnar og árin. Guð blessi minningu afa míns. Þinn vinur og nafni, Jónas Ásmundsson. Meira: mbl.is/andlat Jónas Ásmundsson Nú höfum við kvatt Elías Her- geirsson, kæran vin og samstarfsmann til margra ára á vett- vangi knattspyrnunnar. Hann var kjörinn í stjórn Knattspyrnusam- bands Íslands í desember 1986 og sat þar til í febrúar 1999, er hann gaf ekki lengur kost á sér til stjórnarsetu. Lengst af var hann gjaldkeri í stjórninni eða í átta ár. Elías hafði áður gegnt stjórnar- störfum í Knattspyrnuráði Reykjavíkur og hjá Knattspyrnu- félaginu Val, þar sem hann hafði leikið fótbolta á sínum yngri árum við góðan orðstír. Elías sat í stjórn KSÍ þegar þröngt var í búi en upplifði síðan breytingar þegar miklir fjármunir fengust í fyrsta sinn fyrir útsend- ingarrétt frá heimaleikjum lands- liðsins. Starf gjaldkera var tíma- frekt og krefjandi á þessum árum þar sem fáliðað var á skrifstofu KSÍ. Öll framganga Elíasar í þessum störfum einkenndist af kunnáttu hans á viðfangsefninu, hógværð og prúðmennsku. Elías féll vel í hóp, gat verið leiðtogi og jafnframt félagi, en alltaf ábyrgur enda var honum iðulega treyst fyrir fjármálum í þeim stjórnum sem hann sat í. Elí- as var hrókur alls fagnaðar í keppnisferðum og þá komu hans Elías Hergeirsson ✝ Elías Hergeirs-son fæddist 19. janúar 1938. Hann lést 7. október 2019. Elías var jarð- sunginn 16. október 2019. góðu kostir sér vel, hann var manna skemmtilegastur en jafnframt alltaf tilbúinn að bera klæði á vopnin þegar á þurfti að halda. Síðustu tólf árum ævi sinnar varði Elí- as í baráttu við ill- vígan sjúkdóm, parkinsonsveiki. All- an þann tíma kom hann fram af því æðruleysi sem einkennt hafði allt hans líf og breytti engu þótt hann vissi vel að sjúkdómurinn myndi að lokum fella hann. Að leiðarlokum viljum við þakka fyrir það að hafa fengið að verða samferða slíkum heiðurs- manni sem Elías Hergeirsson var. Þökkum honum samstarfið og vin- áttuna, sem aldrei bar skugga á. Framlag Elíasar til íslenskrar knattspyrnu var mikið og óeigin- gjarnt, alltaf unnið af heilindum með sannri gleði fyrir leiknum. Þá hefur það verið lán KSÍ að báðar dætur Elíasar og Valgerðar Önnu starfa og hafa starfað á skrifstofu KSÍ árum saman og borið sannan vitnisburð um einstaka mannkosti foreldra sinna. Við vottum eiginkonu hans, Valgerði Önnu, og börnum þeirra Hergeiri, Margréti, Ragnheiði og Jónasi, tengdabörnum, barna- börnum og barnabarnabörnum okkar dýpstu samúð. Minning um góðan dreng mun seint gleymast og orðstír deyr aldregi. Eggert Magnússon, Geir Þorsteinsson, Eggert Steingrímsson. Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. Sérstakar þakkir til félagsmiðstöðvar Bólstaðarhlíðar, heimaþjónustunnar og starfsfólks Vífilsstaða auk annarra sem sinntu henni af alúð. Ágúst Sigurjónsson Sesselja Hrönn Jensdóttir Helga Jónína Sigurjónsdóttir Hafsteinn Már Ársælsson Guðný Sigurjónsdóttir Svavar M. Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn GUÐBRANDUR KJARTAN ÞÓRÐARSON vélvirki lést á Hrafnistu í Reykjavík. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum góðar minningar. Fyrir hönd vandamanna, Guðmundur Þórðarson Ástkær eiginmaður minn, faðir minn, afi og langafi, FINNBOGI ÁRNASON rafvirkjameistari, lést föstudaginn 1. nóvember á Landspítalanum. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 12. nóvember klukkan 13. Guðbjörg Þóra Steinsdóttir Árni Finnbogason Finnbogi Þór Árnason Brynja María Rúnarsdóttir Daníel Örn Árnason Brynja Birgisdóttir Þóra Árnadóttir Emil Örn Sigurðarson og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LILJA GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR, veitingakona í Hótel Fornahvammi, lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 13. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hafdís Pálrún Gunnarsdóttir María Björg Gunnarsdóttir Árni Gunnarsson Kristín Sigríður Ástþórsdóttir Gunnar A. Kristinsson Alda Lovísa Tryggvadóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT SIGRÚN RAGNARSDÓTTIR, Laugarásvegi 43, Reykjavík, lést sunnudaginn 3. nóvember. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 12. nóvember klukkan 13. Ásta R. Jóhannesdóttir Einar Örn Stefánsson Guðrún Jóhannesdóttir Ragnar Jóhannesson Bjarni Jóhannesson Auður Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ALFREÐ EYJÓLFSSON, kennari og skólastjóri, Marteinslaug 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 31. október. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 19. nóvember klukkan 15. Guðjónía Bjarnadóttir Kristín Alfreðsdóttir Eyjólfur Bjarni Alfreðsson Þóra B. Valdimarsdóttir Alfreð Jóhannes Alfreðsson barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.