Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 60
Ferskleiki í glasi
Það að eiga góðan farða getur aldeilis bætt útlit okkar
svo um munar. Ef þú vilt farða sem gefur ljóma, þétt-
ari og stinnari húð og dregur úr einkennum öldrunar
þá er Prodigy CellGlow frá Helena Rubinstein eitt-
hvað fyrir þig. Farðinn þekur vel en er samt ekki
þannig að hann virki eins og gríma heldur gefur hann
náttúrulegt útlit.
Farðinn inniheldur edelweiss-þykkni, glycolic-sýru,
C-vítamín og peptíð sem saman gefa einstaka alhliða
virkni, næringu og náttúrulegan ljóma. Svo er auðvelt
að bera hann á sig en það þarf ekki sérstök tæki eða
tól til þess heldur er gott að nudda honum inn í húð-
ina með fingrunum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Laser peeling
Húðslípun
Augnlyfting
Meðferðir hjáHúðfegrun
eru framkvæmdarmeð
nýjustu og öflugustu
tækni ámarkaðnum
Bókaðu tíma dag!
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Marta María
mm@mbl.is
Abloh er einn af prímus mótorum
tískuheimsins þessa dagana. Hann
er eftirsóttur og sjarmerandi enda
virðist allt verða að gulli í hönd-
unum á honum. Hann er einnig
stofnandi Off-White tískumerkisins
sem notið hefur mikilla vinsælda.
Abloh er bandarískur og fæddur
1980 en það var í raun ekki fyrr en
2009 sem hjólin fóru að snúast fyrir
alvöru í lífi hans eða þegar hann fór
að vinna með ítalska tískuhúsinu
Fendi ásamt rapparanum West.
Síðan þá hefur leiðin bara legið
upp á við og hefur hann farið í sam-
starf við fjölmörg fyrirtæki eins og
IKEA.
En það þýðir víst lítið að vera vin-
sæll og eftirsóttur ef heilsan er ekki
upp á sitt besta. Goslaust fólk flytur
ekki fjöll eða brýtur niður múra.
Í ágúst sagði Abloh í samtali við
Vogue að hann hefði farið til læknis
því hann var eitthvað svo þreyttur
og búinn á því. Læknirinn sagði að
það gengi ekki upp og skikkaði hann
í veikindaleyfi og að hann yrði að
taka það rólega allavega næstu þrjá
mánuðina.
Það er kannski ekkert skrýtið því
það hefur mætt mikið á Abloh síð-
ustu misseri því hann hefur bók-
staflega verið á kafi í öllu. Það má
heldur ekki gleyma því að mikilli
velgengni fylgir álag og svo er ekki
nóg að gera eitthvað eitt ógurlega
vel, tískuheimur kallar stöðugt á
eitthvað flottara, eftirsóttara og
dýrara.
Á meðan Abloh var að reyna að
ná upp orkunni aftur fór hann heim
til sín til Chicago og reyndi að vinna
eitthvað örlítið heiman frá sér. Þessa
þrjá mánuði afbókaði hann alla við-
burði til þess að auka líkur á því að
orkuflæðið færi upp. Nú er hann
hinsvegar mættur aftur í vinnuna og
er svona líka spriklandi ferskur!
Tískuhönnuðurinn Virgil Abloh er kominn aftur
til vinnu hjá Louis Vuitton í París eftir að hafa
farið í nokkurra mánaða veikindaleyfi. Hann
vann yfir sig og þurfti pásu frá lífinu.
Spriklandi ferskur
eftir veikindaleyfið
Virgil
Abloh