Morgunblaðið - 07.11.2019, Qupperneq 62
Ljósmyndir/Berglind Hreiðarsdóttir
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Fáir eru flinkari í veisluhaldi en
Berglind og því verður bókin að telj-
ast mikill hvalreki fyrir alla þá sem
þurfa að ferma, útskrifa eða bjóða
fólki í afmæli á komandi misserum.
Hér gefur að líta eitt af meist-
arastykkjum Berglindar, en þetta er
gulrótarkaka með guðdómlegu
rjómaostakremi.
Gulrótarkaka með rjómaostskremi
160 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
1 tsk. salt
2 tsk. kanill
½ tsk. múskat
¼ tsk. negull
300 ml matarolía
220 g púðursykur
220 g sykur
4 egg
2 tsk. vanilludropar
260 g rifnar gulrætur
Hitið ofninn 175°C og gerið 3x15
cm kökuform tilbúin.
Setjið hveiti, lyftiduft, matarsóda,
salt, kanil, múskat og negul í skál og
leggið til hliðar.
Hrærið saman matarolíu og
púðursykri í hrærivélarskálinni og
bætið síðan eggjunum saman við,
einu í einu og skafið vel niður á milli.
Hellið þá vanilludropunum út í
skálina og síðan þurrefnunum í
nokkrum skömmtum.
Að lokum fara rifnar gulrætur út
í, ég notaði fínt rifjárn en ef þið viljið
grófari áferð má rífa þær gróft.
Klippið bökunarpappír í botninn á
formunum og spreyið þau vel með
matarolíuspreyi.
Skiptið deiginu jafnt niður á milli
Veislu-
drottningin
gefur út bók
fyrir jólin
Þau stórkostlegu tíðindi berast að hin eina sanna
Berglind Hreiðarsdóttir, sem ætti að vera les-
endum Matarvefsins á mbl.is að góðu kunn, er að
gefa út sína fyrstu bók fyrir jólin. Bókin er væntan-
leg í nóvember og verður farið rækilega yfir það í
henni hvernig halda á veislur af ýmsum toga á
sem snjallastan og hagkvæmastan hátt.
Morgunblaðið/Hari
Bók á leiðinni Það eru skemmtilegir tímar fram undan hjá Berglindi, sem er að gefa út fyrstu bók sína.
formanna (ég vigtaði um 515-520 g í
hvert).
Bakið í um 50 mínútur, eða þar til
prjónn kemur út með smá köku-
mylsnu á en ekki blautu deigi.
Rjómaostskrem
135 g smjör við stofuhita
200 g rjómaostur við stofuhita
750 g flórsykur
4 tsk. vanilludropar
Þeytið saman smjör og rjómaost
þar til það er létt og ljóst.
Bætið flórsykri saman við í nokkr-
um skömmtum, skafið niður á milli
og hrærið vel.
Að lokum fara vanilludroparnir
saman við.
Kreminu er smurt á milli botna og
kakan hjúpuð að utan. Hafið krem-
hjúpinn þykkan á toppnum en skafið
hann vel af á hliðunum svo það sjáist
í botnana.
Skreytið með ferskum blómum/
haustblómum að vild.
Geggjuð gulrótarkaka Það er magnað
hvað skreytingar gera. Hér eru forkunn-
arfögur haustblóm notuð til skreytinga.
Góð er hún Fátt jafnast
á við góðan kökubita.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Vegan Vítamínúði
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem
eiga erfitt með að taka upp B12 og járn úr fæðunni
og þá sem neyta ekki dýraafurða.
ð
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð ogmikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
• Vegan D3• B12• Járn & Jo