Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 64

Morgunblaðið - 07.11.2019, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 „Mér finnst frábært að vinna með Sigga. Samstarfið gengur vel og við erum léttir á því saman síðdegis,“ segir Logi Bergmann spurður um hvernig nýi þátturinn leggst í hann. Logi er einn reyndasti fjölmiðlamað- ur landsins og þekkja flestir til ferils hans. Siggi er sömuleiðis reyndur útvarpsmaður og hefur gríðarlega þekkingu á miðlinum, en hann er með meistaragráðu í fjölmiðlafræð- um með áherslu á útvarp frá Háskól- anum í Sunderland í Bretlandi. Það er því óhætt að segja að það sé mikil reynsla á bak við nýja þáttinn. „Það er áskorun að takast á við að gera nýjan síðdegisþátt því það er mikil samkeppni í útvarpinu á þess- um tíma dags en ég hlakka til að tak- ast á við hana með Loga,“ segir Siggi um samstarf þeirra félaga. „Áherslan er á að velja skemmti- legri leiðina í lífinu, vera léttir og lif- andi,“ segir Logi um efnistökin. Það er óhætt að segja að gleðin ráði ríkj- um hjá þeim félögum, en ófá hlátra- sköllin hafa heyrst í fyrstu þátt- unum. „Við spjöllum við áhugavert fólk um skemmtilega hluti og erum ekk- ert að taka okkur of alvarlega. Lífið er miklu skemmtilegra þannig. Við viljum bjóða upp á valkost við hin síðdegisútvörpin sem eru eilítið þyngri,“ bætir Logi við. „En við munum auðvitað fylgjast vel með málefnum líðandi stundar og gera því sem er að gerast góð skil auk þess sem við erum með fréttir á heila tímanum,“ segir Siggi. Það er því um að gera að stilla inn á þá félaga síðdegis og taka skemmtilegri leiðina heim. Hægt er að hlusta á öll hljóðbrot úr þáttunum á heimasíðu K100 á k100.is og einnig þættina í heild sinni án tónlistar og auglýsinga á síðunni og í helstu pod- cast-veitunum. Leitaðu bara að „Loga Bergmann og Sigga Gunn- ars“. Í myndatöku Þeir félagar Siggi og Logi bregða á leik í myndatöku fyrir væntanlega fyrir væntanlegt kynningarefni þáttarins Nýi síðdegisþátt- urinn fer vel af stað Nýr síðdegisþáttur K100 með þeim Loga Bergmann og Sigga Gunnars fór í loftið upp úr miðjum október og fer vel af stað. „Jólin eru alltaf að færast framar og framar. Jólavörur og skraut er kom- ið upp í sumum verslunum. Sömu- leiðis er krafan um að jólalögin heyr- ist fyrr í útvarpinu alltaf meiri og meiri svo við erum bara að svara því kalli,“ segir Sigurður Þorri Gunn- arsson, Siggi Gunnars, dagskrár- og tónlistarstjóri K100 og Retró 89.5. Eins og einkunnarorðin segja til um verður boðið upp á „bara bestu jólalögin“ alla daga fram að jólum, allan sólarhringinn. „Dagskrárgerð- armenn verða einnig með léttar inn- komur með fróðleik og upplýsingum um það sem er að gerast í aðdrag- anda jóla. En aðalfókusinn verður á jólalögin sem allir þekkja,“ segir Siggi. Retró hefur aukið vinsældir sínar töluvert síðastliðið ár samkvæmt mælingum Gallup og er ljóst að vin- sældirnar munu bara aukast í að- draganda jóla. „Það eru að jafnaði 35.000 manns sem hlusta á Retró í hverri viku og fer hlustendahóp- urinn ört vaxandi, það er greinilegt að það er hljómgrunnur fyrir þess- um gömlu góðu. Reynslan hefur líka kennt okkur að það er mikil eft- irspurn eftir jólaútvarpsstöð svo við erum viss um að hlustendum muni fjölga töluvert í aðdraganda jóla,“ segir Siggi. Hægt er að hlusta á JólaRetró á FM 89,5 á höfuðborgarsvæðinu, FM 101,9 á Akureyri, á netinu á retro895.is og í útvarpsspilara sjón- varpsþjónustanna. Einnig er hægt að hlusta á Retró í gegnum öppin „Spilarinn“ eða „TuneIn“ í öllum Apple- og Android-símum. „Við vonum að hlustendur kunni að meta jólastemninguna á Jóla- Retró alla daga fram að jólum,“ seg- ir Siggi, sem kominn er í jólaskapið umtalaða eftir undirbúning stöðv- arinnar síðastliðnar vikur. Jólin byrja í dag Jólin allstaðar Jólalögin eru komin í loftið á JólaRetró Systurstöð K100, Retró 89,5, sem alla jafna spilar það besta frá ’70, ’80 og ’90, breytist í JólaRetró frá og með deginum í dag. „Bara bestu jólalögin“ verður einkennisorð stöðv- arinnar. Morgunblaðið/Hari Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Stólar Erum á facebook Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Ami Grace Manning Elton Cato Highrock Sierra Kelsey www.danco.is Heildsöludreifing Fullt af fallegri vöru Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is Fyrirtæki og verslanir ne u r ur 3 teg. 89 cm á vegg, hvítur 18x38 cm De 60x60x35 cm o ur s an Gold 28x51 cm Dýrin í skóginum Hvít 27 cm Decor s rn u mond 34x43 cm ecor s epp eopar 130x170 cm Decoris stóll Flower Velvet 54x50x80 cm K. smokey 16 cm K. smokey 10 cm . smokey 12x10 cm . glær 12x10 cm Spegill 3 teg. 35 cm Jólaálfur grár 72 cm m/ljósi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.