Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 71
Eitt ogannað Bayern München tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu í knattspyrnu í gær. Þýskalandsmeistararnir unnu 2:0-heimasigur gegn Olympiacos en Bayern er með fullt hús stiga eða 12 stig í efsta sæti B-riðils þegar tvær umferðir eru eftir af riðla- keppninni. Þá er Juventus í vænlegri stöðu með 10 stig í D-riðli eftir 2:1- útisigur gegn Lokomotiv Moskvu. Douglas Costa skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma og fór lang- leiðina með að tryggja Juventus sæti í sextán liða úrslitum. bjarnih@mbl.is Öruggt hjá Þjóðverjunum AFP Mark Robert Lewandowski kom Bæjurum á bragðið í gær. ÍÞRÓTTIR 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019 Ólafur Jóhannesson var í gær ráð- inn þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu þar sem hann mun starfa við hlið Rúnars Páls Sig- mundssonar, sem stýrt hefur Garðabæjarliðinu undanfarin sex ár. Samningur Ólafs við Stjörnuna er til tveggja ára, en hann lét af störfum hjá Val í haust. Ólafur þjálfaði Valsliðið í fimm ár og undir stjórn hans varð liðið tvívegis Ís- landsmeistari og bikarmeistari í tvígang. Ólafur gerði FH að Ís- landsmeisturum þrisvar sinnum og bikarmeisturum einu sinni. Þá var Ólafur þjálfari íslenska landsliðsins á árunum 2007 til 2011. Smiðurinn úr Hafnarfirði sagði í samtali við mbl.is á dögunum að hann ætlaði að taka sér frí frá þjálf- un en fríið var ekki langt og hann er nú mættur til starfa í Garða- bænum. Ólafur, sem er 62 ára gam- all, hefur verið í þjálfun meira og minna í tæp 40 ár, en auk þess að þjálfa FH og Val hefur hann þjálfað Einherja Skallagrím, Þrótt Reykja- vík, Selfoss og ÍR. Sjá viðtal við Ólaf á mbl.is/sport. gummih@mbl.is Ólafur tók sér stutt frí og er orðinn þjálfari Stjörnunnar með Rúnari Morgunblaðið/Jóhann Ingi Hafþórsson Þjálfarar Ólafur Jóhannesson og Rúnar Páll Sigmundsson á fréttamanna- fundi hjá Stjörnunni í gær þar sem Ólafur var kynntur til leiks  Það leikur enginn vafi á að Norð- maðurinn Erling Braut Håland er einn heitasti framherjinn í Evrópufótbolt- anum um þessar mundir. Þessi 19 ára gamli leikmaður Salzburg er búinn að skora 23 mörk í 17 leikjum á tíma- bilinu. Hann er markahæstur í Meist- aradeildinni með 7 mörk. Håland hefur skorað í öllum fjórum leikjum Salzburg í riðlakeppninni og enginn leikmaður hefur skorað jafn mörg mörk í sögu Meistaradeildarinnar í fyrstu fjórum leikjum sínum.  LeBron James er heldur betur að gera það gott með liði Los Angeles Lakers sem hefur unnið sex af sjö fyrstu leikjum sínum í NBA-deildinni í körfuknattleik. LeBron náði þrefaldri tvennu í fyrrinótt í sigri sinna manna gegn Chicago. Þetta var þriðji leik- urinn í röð sem hann nær þrefaldri tvennu og hann varð þar með fyrsti leikmaður LA Lakers í 32 ár sem tekst að ná því í þremur leikjum í röð.  Þýska blaðið Bild greinir frá því að Arsene Wenger, fyrrverandi knatt- spyrnustjóri Arsenal, sé nú efstur á óskalistanum hjá Bayern München um að taka við þjálfun liðs- ins. Það er í þjálfara- leit eftir að Króat- anum Niko Kovac var vikið frá störf- um á sunnudaginn í kjölfarið á 5:1 tapi gegn Frank- furt. Wenger, sem er 70 ára gamall, er sagður hafa áhuga á starfinu, en hann lét af störfum hjá Arsen- al síðastliðið sumar eftir að hafa stýrt Lundúnaliðinu sam- fleytt í 22 ár. Sími 534 1500 | kiddi@kambstal.is | Íshellu 1, 221 Hafnarfirði Klippt & beygt kambstál fyrir minni og stærri verk Reynsla | gæði | þjónusta KEILA Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Þetta er 130% það stærsta sem ég hef gert á ferlinum hingað til,“ sagði hinn 25 ára gamli Arnar Davíð Jóns- son í samtali við Morgunblaðið eftir að hann hafnaði í öðru sæti á World- Bowling Tour sem fram fór í Kúveit en mótið er hluti af heimsmótaröð- inni í keilu og einnig hluti af atvinnu- mannamótaröðinni í Bandaríkj- unum. Arnar er staddur í Kúveit þar sem honum var boðið að keppa í úr- slitum heimstúrsins, en honum var boðið að taka þátt í mótinu þar sem hann er í efsta sæti stigalista Evr- ópumótaraðarinnar. Arnar er jafnframt fyrsti íslenski keiluspilarinn til þess að leika til úr- slita á svo stóru móti. Arnar tapaði fyrir Englend- ingnum Dominic Barrett í úrslitum í Kúveit, 2:0, en Barrett er einn af betri keiluspilurum heims í dag. „Ég gæti ekki verið sáttari með úrslitaleikinn og mína frammistöðu. Dominic Barrett er einn af þeim bestu í heiminum í dag, ef ekki sá besti, og ég fór þess vegna með það að markmiði inn í viðureignina að reyna að njóta þess að vera þarna og hafa gaman af því sem ég var að gera. Að sjálfsögðu ætlaði ég að reyna að gera mitt allra besta til að vinna leikinn, annað hefði verið gal- ið, en heilt yfir er ég mjög sáttur við þetta.“ Arnari dugði einn sigur í úrslita- leiknum en Barrett þurfti tvo. Barr- ett vann fyrsta leikinn nokkuð sann- færandi, í öðrum leiknum þurfti hann fellu í lokaskotinu til þess að leggja Arnar að velli og það tókst hjá Englendingnum. „Eftir fyrri leikinn var ég rólegur og sagði við sjálfan mig að fyrst þetta gekk ekki í fyrsta leiknum þá bara myndum við reyna aftur í leik númer tvö. Mér tókst að setja pressu á hann undir lokin og hann þurfti fellu til þess að vinna mig að lokum. Að sama skapi var hann ekki að gera þetta í fyrsta skiptið og hann steig upp í restina og gerði það sem hann þurfti til að landa þessum sigri.“ Stefnir hátt í framtíðinni Arnar viðurkennir að hann hafi fundið fyrir pressu í úrslitaleiknum en hann hafi reynt að láta það ekki hafa áhrif á sig. „Að sjálfsögðu fann ég fyrir ákveðinni pressu. Þegar andstæð- ingurinn gerir mistök ertu meðvit- aður um það að fella gæti klárað leikinn fyrir þig. Alveg eins og þegar þú sjálfur klikkar, þá er andstæðing- urinn allt í einu kominn í lykilstöðu. Að sjálfsögðu reynir maður að hafa smá stjórn á taugunum en að sama skapi hef ég líka lært það að ef mað- ur reynir að stjórna tilfinningunum og aðstæðunum um of þá lendir maður í vandræðum. Ég reyndi þess vegna eins og ég gat að leyfa tilfinn- ingunum að fljóta og ég tapaði með einu stigi sem þýðir að ég spilaði ágætis leik.“ Arnar fer ekki tómhentur heim frá Kúveit en hann fékk rúmar þrjár milljónir íslenskra króna fyrir að hafna í öðru sæti. Hann ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. „Ég ætla mér stóra hluti og eitt framtíðarmarkmiðið er að verða fastagestur á PBA-mótunum á næstu árum. Næst á dagskrá er hins vegar mót í Álaborg í Danmörku sem er hluti af Evrópumótaröðinni en þar ætla ég að tryggja mér efsta sæti Evrópumótaraðarinnar á þessu tímabili,“ sagði Arnar í samtali við Morgunblaðið. Tilfinningarnar léku lausum hala í Kúveit  Arnar braut blað í keilusögu Íslands Sáttur Arnar Davíð Jónsson tryggði sér rúmlega þrjár milljónir íslenskra króna í verðlaunafé með frammistöðu sinni í Kúveit í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.