Morgunblaðið - 07.11.2019, Page 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2019
Norræna húsið tekur þátt í Air-
waves off-venue í kvöld og næstu
tvö kvöld. „Við hefjum hátíðina
með hæfileikaríkum hópi tónskálda
sem flytja verk sín á Steinway-
flygil hússins,“ segir í tilkynningu
um tónleika sem hefjast í dag kl. 16.
Þar koma fram Sævar Helgi
Jóhannsson, betur þekktur sem
S.hel; raftónlistarmaðurinn Mikael
Lind; Gabríel Ólafsson sem vakið
hefur athygli með plötu sinni
Absent Minded og Dísa Hreiðars-
dóttir, betur þekkt sem Bláskjár.
Á morgun milli kl. 15 og 18.45
kemur fram ungt og efnilegt tón-
listarfólk frá Íslandi, Svíþjóð og
Noregi. Fram koma Nising; Jökull
Logi; David Rist; Sveimhugar; Vio;
Mill og Omotrack.
Á laugardag verður yngstu kyn-
slóðinni boðið á tónleika, diskó,
trommunámskeið, söngstund, í and-
litsmálningu og upp á góða stemn-
ingu fyrir alla fjölskylduna milli kl.
11.30 og 15. Þar koma fram Hafdís
Huld, Alisdair Wright, Cheick Ban-
goura, Snorri Helgason og Sigrún
Skafta.
Norræna húsið tekur þátt í Airwaves
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vinsæll Gabríel Ólafsson kemur fram í
Norræna húsinu í dag og leikur á flygilinn.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Fyrir stuttu kom út barnabókin
Eyðieyjan, urr, öskur, fótur og fit
eftir Hildi Loftsdóttur. Þetta er
fyrsta bók Hildar, sem hefur meðal
annars starfað sem blaðamaður í
fjölda ára og er sem stendur verk-
efnastjóri hjá Geðhjálp.
– Hvers vegna varð barnabók
fyrir valinu?
„Einu sinni dreymdi mig svo að
Guðrún Helgadóttir gengi í áttina
til mín, tæki í höndina á mér, horfði
fast í augun á mér og kinkaði kolli.
Ég túlkaði það sem svo að ég ætti
að verða barnabókarithöfundur.
Þetta var reyndar fyrir svona 25
árum, en jæja, nú er fyrsta bókin
komin. Það eru líka nógu margir að
skrifa fyrir fullorðna. Á Íslandi
vantar auðvitað fleiri barnabækur
og íslenska barnabókarithöfunda og
ég er mjög glöð að vera orðin einn
af þeim.“
– Aðalpersónur bókarinnar eru
systurnar Ásta og Kata. Hvaðan
koma þær?
„Femínískir barnabókmennta-
fræðingar hafa lengi kallað eftir því
að stúlkur séu aðalpersónur í
barnabókum; gerendur sem treysta
á eigin útsjónarsemi, og mér fannst
sjálfsagt að verða við því. Ég skrif-
aði ritgerð um hlutverk stúlkna í
Artúrssögninni og fór að máta það
við hlutverk stúlkna í íslenskum
þjóðsögum og sagnaheimum, sem
ég hef mikinn áhuga á. Mér finnst
hlutverk stelpna í öllum frásögnum
bæði fyrr og nú mjög skemmtilegar
pælingar. En mér finnst samt líka
mjög mikilvægt að hafa stráka og
að kynin hjálpist að.
Sumir segja að maður eigi að
skrifa um það sem maður þekkir.
Ég hef sjálf verið stelpa og þekki
systradínamík vel. Ég á systur,
aðalsögupersónurnar Ásta og Kata
heita eftir tvíburadætrum bróður
míns sem ég var mikið með, og síð-
ast en ekki síst á ég tvær dætur
sem eru í raun karakterslega, og
ekki síst sambandslega séð, fyrir-
myndir stúlknanna í bókinni. Mjög
hressar týpur.“
– Hvenær hófstu handa og hvað
tók verkið langan tíma?
„Ég byrjaði að skrifa árið 2014,
var þá í Háskólanum á Akureyri og
tók þá kúrs í læsi og barnabók-
menntum. Þá ákvað ég að leggja
mitt af mörkum og fór loksins að
skrifa. Þetta hefur svo komið í gus-
um, en fyrir tveimur árum ákvað ég
að taka mér þann tíma sem þurfti.
– Í bókinni blandar þú snyrtilega
saman íslenska álfatrú, þjóðsagna-
óvættir og tímaflakk, segðu mér að-
eins frá því.
„Það varð eiginlega þannig óvart.
Ég hef lengi ætlað að skrifa um
pabba minn, en hann er fyrir-
myndin að afa Jökli. Hann bjó um
tíma sem barn í Hrappsey á
Breiðafirði, þ.e.a.s. á „Eyðieyjunni“
og margt af því sem gerist í bókinni
er sannsögulegt. Við hlið hússins er
stór hóll sem pabbi ímyndaði sér að
væri álfhóll og að hann ætti vin-
konu þar. Þaðan kom hugmyndin
að tengja álfheima inn í þessa bók.
Hjá þeim í Hrappsey bjó til dæmis
vinnukona sem ég læt vera Hildi
álfadrottningu. Þannig að þegar ég
fór að skrifa um pabba, komu ekki
bara álfar heldur ýmsar furðuverur
úr gömlum bókum og tróðu sér inn
í bókina mína.“
– Það er léttur andi yfir bókinni
en líka í henni dramatísk augnablik,
eins og til að mynda óbermið
Þrándur og örlög Bjarts. Finnst
þér mikilvægt að tvinna þetta sam-
an?
„Ekki spurning. Börn vilja víst
helst lesa sögur sem eru húmor-
ískar, spennandi og með persónum
sem þau tengja auðveldlega við. Ég
reyndi að hafa það í huga við skrif-
in, enda er leikurinn til þess gerður
að þau vilji lesa bókina. Þótt stemn-
ingin sé frekar létt yfir höfuð, verða
auðvitað að vera átök í bókinni, og
sum þeirra eru átakanlegri en önn-
ur. Jafnvel svo að sumum þykir nóg
um, sem skýrir kannski undirtitil
bókarinnar. Þannig að það er oft
stutt á milli hláturs og gráts á
Eyðieyjunni.“
– Síðustu setningar bókarinnar
benda eindregið til framhalds, ertu
byrjuð á næstu bók?
„Já og nei. Þegar ég kom með
þessa bók til Önnu og Tómasar hjá
bókaútgáfunni Sögum var ég strax
beðin um að skrifa tvær bækur í
viðbót, sem ég var meira en til í.
Ég á í fórum mínum hálfkláraða
bók sem einnig gerist mestmegnis í
íslenskum sagnaheimi og ætla að
bjóða Ástu mína og Kötu velkomn-
ar inn í þá bók þar sem ný ævintýri
bíða þeirra. Ég hlakka mikið til að
takast á við að skrifa þá bók, og
helst hið allra fyrsta. Þetta er svo
geggjað gaman allt saman!“
Þetta er svo geggjað gaman
Morgunblaðið/Hari
Gaman Hildi Loftsdóttur dreymdi að Guðrún Helgadóttir kinkaði kolli til hennar og túlkaði það svo að hún ætti að verða barnabókarithöfundur.
Í fyrstu barna-
bók sinni fléttar
Hildur Loftsdóttir
saman álfatrú,
þjóðsagnaóvættir
og tímaflakk
„Krosssaumur eða rauðir sokkar? Hugmyndasaga öldr-
unar á Íslandi“ nefnist fyrirlestur sem Líney Úlfarsdóttir
sálfræðingur flytur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands
í dag kl. 12. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð RIKK
á haustmisseri 2019. Þar leitast Líney við að varpa ljósi á
þjónustu við aldraða eins og hún hefur verið og hvert við
sem samfélag þurfum að stefna.
Líney hefur allan starfsaldur sinn á Íslandi unnið hjá
Reykjavíkurborg og lengst af í öldrunarmálum. Hún hef-
ur einnig sinnt stundakennslu á sviði öldrunarsálfræði við
Háskóla Íslands. Aðgangur er ókeypis.
Hugmyndasaga öldrunar á Íslandi
Líney Úlfarsdóttir
Nautakjöt, lambakjöt, svínakjöt, grillkjöt,
lúxus hamborgarar, bacon og pylsur í brönsinn
Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími 7.30-16.30
Sími 557 8866
pantanir@kjotsmidjan.is
Komdu við
eða sérpantaðu