Morgunblaðið - 18.11.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:30-12:30, nóg pláss - Hreyfi-
salurinn er opinn milli 9:30-11:30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur -
Kraftur í KR kl.10:30, rútan fer frá Vesturgötu kl.10:10, Grandavegi 47
kl.10:15 og Aflagranda kl.10:20 - Félagsvist kl.13:00 - Myndlist kl.13:00
- Kaffi kl.14:30-15:00 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 -
Allir velkomnir -
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10.
Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 10:30. Félagsvist með vinningum
kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. s. 535-2700.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13
Dalbraut 27 Píla kl. 14 í Parketsal.
Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-
10:30. Jóga með Carynu kl. 8:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Jóga með
Ragnheiði kl. 11:10. Hádegismatur alla virka daga kl. 11:30-12:20 og
kaffi kl. 14:30-15:30. Jóga með Ragnheiði kl. 12:05. Tálgun – opinn
hópur kl. 13:00-16:00. Frjáls spilamennska 13:00. Liðleiki í stólum
13:30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl.
8:50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Ganga kl. 10. Byrjendanámskeið í
Línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30. Myndlistarnámskeið kl.
12:30-15:30. Foreldrastund kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13. Félagsvist
kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8:30. Núvitund kl. 10:30.
Silkimálun kl. 12:30. Göngutúr um hverfið kl. 13:00. Handaband kl.
13:00. Bridge kl. 13:00. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13:10-13:30. Skák kl.
14:00. Handavinnuhópur hittist kl. 15:30. Á morgun kl. 15:00 verður
Guðrún Eva rithöfundur með bókaspjall á Vitatorgi.
Verið öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi
kl. 13:00. Vatnsleikf. Sjál kl.7:10/7:50/15:15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9:30.
Kvennaleikf Ásg. kl.11:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00.
Zumba salur Ísafold. kl. 16:15
Gerðuberg 3-5 r Opin Handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Qigong 10:00-11:00 Leikfimi Helgu Ben 11:00-
11:30. Kóræfing kl. 13:00-15:00. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.00 Boccia æfing, kl. 9.30
Postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta, kl. 16.30 Kóræfing
hjá Söngvinum, kl. 19.00 Skapandi skrif.
Gullsmára Postulínshópur kl. 9.00. Jóga kl. 9.30 og 17.00.
Handavinna og Bridge kl. 13.00. Félagsvist kl. 20.00.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 14. Jóga kl. 10:00 – 11:00. Hádegismatur kl.
11.30. Sögustund kl. 12:30-14:00. Prjónaklúbbur kl. 14:00-16:00.
Námskeið í olíumálun kl. 14:00-18:00, nokkur sæti laus.
Námskeiðið kostar 5.500 kr, litir og pennslar á staðnum en striga þarf
að koma með.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl 8.00-12.00 Myndmennt kl
9.00 Ganga í Haukahúsi kl.10.00 Gaflarakórinn kl 11.00 Félagsvist kl
13.00
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá
Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Dans í Borgum kl. 11 og
skartgripagerð í Borgum kl. 13:00 í dag. Félagsvist í Borgum kl. 13:00
og tréútskurður kl. 13:00 á Korpúlfsstöðum í umsjón Gylfa. Kóræfing
Korpusystkina kl. 16:00 í dag í Borgum undir stjórn Kristínar
Guðmundsdóttir.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur
kl.11, trésmiðja kl.13-16, gönguhópurinn kl.13.30, bíó í betri stofunni
kl.15.30.Uppl í s.4112760.
Selfoss kl.09:00 Glerlist, Kl.09:30 Fornsögulestur, Kl.10:00
Gönguhópur kl.10:30 Krossgátukaffi, kl.11:10 Qigong,
kl.13: Handavinna, Kl.13:30 Útskurður, kl.16:30 Útskurður.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins við Suðurströnd kl.
9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard SElinu kl. 10. Krossgátur og kaffi
í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Skráning hafin á "Gaman saman" sem verður í salnum á Skólabraut
fimmtudaginn 28. nóvember milli kl. 17.00 og 19.00.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er
félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30
– 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20 -ZUMBA Gold
framhald kl. 10.30 -STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl.
11.30 umsjón Tanya. Enska námskeið kl. 12.30 og 14.30 leiðbeinandi
Margrét Sölvadóttir.
FINNA.is
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Árni IngimarHelgason
fæddist 11. nóv-
ember 1935 á
Kömbum við Reyð-
arfjörð. Hann lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 9. nóv-
ember 2019.
Foreldrar hans
voru Helgi Guðna-
son, f. 24. desem-
ber 1904, d. 7. jan-
úar 1988, og Soffía Arnþrúður
Ingimarsdóttir, f. 26. mars
2012, d. 1. nóvember 1979.
Systkini Árna eru: Bragi, f. 26.
apríl 1931, d. 10. apríl 2019,
Hulda Ingimars, f. 12. júlí 1934,
d. 4. janúar 2006, stúlka, f. 27.
eru Þórunn, f. 1976, börn Unnar
Hafberg, f. 2002, og Heiðrún
Helga, f. 2008, Unnar Að-
alsteinn, f. 1980, dóttir Una
Marine, f. 2006, og Elín Inga, f.
1990, dóttir Hildur, f. 2019 2)
Oddný Friðrikka, f. 27. ágúst
1957, maki Gunnar Páll Jóa-
kimsson, f. 1954, þeirra börn
eru Arnar, sonur Dagur, f. 2019,
og Björg, f. 1994 3) Þuríður, f.
22. maí 1959, maki Sigurður
Skúli Bergsson, f. 1959, þeirra
börn eru Einar Oddur, f. 1983,
börn Ernir Ingimar og Elín Sig-
urbjört, f. 2016, og Árni Bergur,
f. 1989, börn Arnar Breki, f.
2015, og Arndís Björk, f. 2018 4)
Soffía, f. 11. janúar 1962, maki
Hafsteinn B. Sveinbjörnsson, f.
1972, börn Soffíu eru Soffía
Arnþrúður, f. 1987, og Magnús
Þór, f. 1994, 4) Helgi Mar, f. 19.
júní 1972, maki Íris Björns-
dóttir, f. 1973, þeirra börn eru
Marín, f. 2002, Sæunn, f. 2005,
og Hafrún Birna, f. 2009.
Árni ólst upp á Þórshöfn og
lauk skyldunámi þar og gagn-
fræðaprófi frá Laugum í
Reykjadal. Hann stundaði nám
við Stýrimannaskólann og lauk
skipstjórnarréttindum þaðan.
Hann bjó og vann allan sinn
starfsferil sem skipstjóri og út-
gerðarmaður á Þórshöfn þaðan
sem hann og eiginkona hans
gerðu út nokkra báta gegnum
starfsævina.
Útgerðarferill Árna spann-
aði um 57 ár og landaði hann
afla í velflestum höfnum lands-
ins á sínum sjómannsferli. Síð-
ustu árin bjó Árni að mestu í
Hafnarfirði en átti áfram og
dvaldi af og til á heimili þeirra
hjóna á Ingimarsstöðum á Þórs-
höfn.
Útför Árna fer fram frá Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði í dag,
18. nóvember, kl. 15. Jarðsett
verður frá Þórshafnarkirkju
laugardaginn 23. nóvember kl.
15.
október1936, d. 28.
október 1936,
Guðni, f. 27. októ-
ber 1936, d. 21. nóv-
ember 1936, Guðný
Jónína, f. 10. des-
ember 1938, og
Oddný Friðrikka, f.
22. ágúst 1947, d.
23. ágúst 1996.
Árni kvæntist ár-
ið 1957 Þórunni
Marín Þorsteins-
dóttur, póst- og símstöðv-
arstjóra á Þórshöfn, f. 22. nóv-
ember 1937, d. 16. desember
2011. Börn þeirra eru: 1) Unnur,
f. 24. maí 1956, d. 26. ágúst
2019, maki Guðmundur Hólm
Indriðason, f. 1954, börn Unnar
Elsku pabbi hefur kvatt
þennan heim saddur lífdaga og
mikill er söknuðurinn. Ég átti
góða og gleðiríka æsku í litlu
sjávarþorpi með miklu frjáls-
ræði. Pabbi kom að uppeldinu
eins og tíðkaðist hjá sjómönnum
í þá daga. Hann hafði ekki mikil
afskipti af daglegu lífi barna
sinna, heimalærdómi eða tóm-
stundum. Mamma sá um það.
En þegar í land kom fylgdist
hann grannt með og setti reglur
sem mér fundust á þeim tíma
óþolandi. Heim kl. 22:00, bann-
að að fara á ball á Bakkafjörð
eða Raufarhöfn. Og maður
hlýddi (eða ekki). Þegar litið er
til baka þá voru þessar reglur
eingöngu til góðs.
Stutt var í húmorinn hjá
pabba og var hann tryggur vin-
um sínum, traustur og heiðar-
legur maður í viðskiptum. Pabbi
lagði alltaf áherslu á að við
systkinin menntuðum okkur og
fengum við þar mikinn stuðning
og hvatningu hjá báðum for-
eldrum okkar og þökkum við
það.
Á tilfinningasviðinu var pabbi
ekki maður stórra orða en
traust handtak með stórri lúku
var hans leið til að sýna okkur
ástúð. Hann fylgdist náið með
barnabörnunum, enda skrápur-
inn orðinn mýkri með aldrinum,
og var þeim góður og hlýr afi.
Ég var svo heppin að vera
með honum til sjós sem háseti
og kokkur. Þar kynntist ég líka
annarri og skemmtilegri hlið á
honum en hann átti það samt til
um borð að reka mig í koju ef ég
glápti of lengi á videóið með
strákunum.
Lífið var honum erfitt eftir að
mamma dó 2011 og enn erfiðara
var fyrir hann að kveðja Unni,
elstu dóttur sína, fyrir rúmum
tveimur mánuðum. Við áttum
góðan tíma saman síðustu ár,
margar sjóarasögur hef ég
heyrt á þessum tíma sem ég
mun geyma í hjarta mér og ylja
mér við. Ég veit að það er vel
tekið á móti pabba þegar hann
siglir í síðustu höfn.
Hvíl í friði, elsku pabbi, og
takk fyrir einstaka samfylgd.
Þín
Soffía.
Árni Ingimar tengdafaðir
minn lést á bráðadeild Land-
spítalans í Fossvogi aðfaranótt
laugardagsins 9. nóvember sl.
eftir stutta innlögn tveimur
dögum fyrir áttatíu og fjögurra
ára afmæli sitt.
Árni bjó alla tíð á Þórshöfn á
Langanesi nema allra síðustu
árin sem hann bjó í Hafnarfirði.
Hann giftist tengdamóður
minni Þórunni Þorsteinsdóttur
frá Þórshöfn árið 1957. Þórunn
lést árið 2011. Árna og Þórunni
varð fimm barna auðið en Unn-
ur sem var elst barnanna lést
fyrir um tveimur mánuðum.
Árni lagði ungur fyrir sig sjó-
mennsku sem hann gerði að
ævistarfi sínu. Hann var skip-
stjóri á eigin skipum um ára-
tuga skeið og átti alla tíð farsæl-
an útgerðarferil. Síðustu árin
áður en hann lét af störfum
stundaði hann trilluútgerð og
lagði þá upp þar sem best aflað-
ist hverju sinni.
Kynni okkar Árna hófust fyr-
ir um fjórum áratugum þegar
við Þuríður dóttir hans höfðum
kynnst og hafið sambúð. Á þess-
um tíma var Árni um fimmtán
árum yngri en ég er núna. Með
okkur Árna tókst fljótlega mikil
vinátta sem átti eftir að styrkj-
ast eftir því sem árin liðu. Við
Árni áttum sameiginleg áuga-
mál sem voru veiðar bæði á fugli
og fiski. Um árabil stunduðum
við ásamt fleirum úr fjölskyld-
unni laxveiðar í Sandá í Þistil-
firði þar sem við áttum margar
góðar og eftirminnilegar stund-
ir saman. Þá áttum við í gegnum
árin margar ánægjulegar sam-
verustundir sunnar á hnettinum
í heitara loftslagi en hér á landi.
Árni var traustur maður,
maður orða sinna og vinur vina
sinna.
Blessuð sé minning hans.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Eg veit einn
að aldrei deyr:
dómur um dauðan hvern.
(Úr Hávamálum)
Sigurður Skúli Bergsson.
Nú hefur elsku Addi afi kvatt
þennan heim. Afi var einstakur
maður og ég er svo ótrúlega
þakklát fyrir allar góðu minn-
ingarnar sem ég mun geyma.
Síðustu ár hafa samverustund-
irnar okkar einkennst af fót-
boltaáhorfi og veðurfregnum en
ég ylja mér sérstaklega við góðu
minningarnar frá Þórshöfn. Ég
man þær stundir sem við krakk-
arnir fórum á bryggjurúntinn
með afa og ef við földum okkur
vel þá máttum við vera í skott-
inu á bílnum. Hann tók okkur
stundum út á sjó og við vorum
með stjörnurnar í augunum
hvað afi var mikið hörkutól.
Ég mun aldrei gleyma þeim
dýrmætu stundum sem við átt-
um saman á Þórshöfn. Það er
góð og gild ástæða fyrir því að í
mínum huga er Ingó besti stað-
ur í heimi. Eftir að elsku Didda
amma dó breyttist allt og síð-
ustu ár hafa verið erfið. Ég trúi
því að nú sé afi kominn á betri
stað og hafi það notalegt með
ömmu og Unni og að þau fylgist
með okkur.
Takk fyrir allt, afi minn. Þín
verður sárt saknað. Ég mun
ávallt halda heiðri þínum á lofti
og skal jafnvel halda örlítið með
Liverpool, bara fyrir þig.
Björgin þín,
Björg
Gunnarsdóttir.
Afi var yndislegasti karl sem
við höfum kynnst. Hann var
hlýr og góður við alla í kringum
sig. Það verður mjög skrýtið að
geta ekki farið í heimsókn til
hans í Miðvanginn, með bakk-
elsi og horfa á Liverpool-leiki
með honum. Það verður skrýtið
að hafa hann ekki hjá okkur á
jólunum, þar sem við munum
ekki eftir jólum án hans. Afi
passaði vel upp á að það væri
alltaf til ís í frystinum hjá hon-
um þegar við komum í heim-
sókn. Þótt hann spjallaði ekki
alltaf mikið fundum við ætíð fyr-
ir hlýju frá afa og okkur leið
mjög vel með honum. Afi tók
alltaf á móti okkur með brosi
þegar við komum í heimsókn.
Afi elskaði að fara á bryggju-
rúnt og þegar enginn vissi hvar
hann væri þá var fyrst leitað á
bryggjunni eða á Pylsubarnum,
þar fundum við hann alltaf. Afi
var stór hluti af okkar lífi og við
munum sakna hans alla daga.
Takk fyrir allt, afi.
Marín, Sæunn og
Hafrún Birna.
Árni Ingimar
Helgason
Elsku besta
tengdamóðir og
amma drengjanna
minna, nú er komið
að kveðjustund. Fyrst þegar ég
og Ingvar vorum að byrja saman
bjó hann hjá þér og ég varð
strax vör við hversu náin þið
voruð. Þú varst lokuð manneskja
og ég upplifði það dálítið sem þú
hefðir lítinn áhuga á að kynnast
mér fyrr en þú vissir að ég væri
komin til að vera. Fljótlega fór-
um við þó að kynnast betur og
þá komst ég að því hversu góð,
yndisleg og sterk kona þú varst.
Þú varst alltaf hörkudugleg og
Ragnheiður
Jónsdóttir
✝ RagnheiðurJónsdóttir
fæddist 26. apríl
1954. Hún lést 30.
október 2019.
Útför Ragnheið-
ar fór fram 9. nóv-
ember 2019.
ég hef heyrt marg-
ar sögur frá því
þegar þú bjóst í
Bolungarvík, allir
muna eftir Röggu í
sjoppunni.
Fyrsta árið hjá
mér í fjölskyldunni
dáðist ég að því
hvað þú varst dug-
leg að fara um helg-
ar í sumarbústaðinn
þinn í Þykkvabæn-
um. Ég man hvað þér fannst
alltaf mikið drasl inni í herbergi
hjá okkur og því langaði mig oft
að reyna að gera eitthvað fyrir
þig heima við á helgum, eins og
að þrífa eða þvo þvottinn. Það er
mér sérstaklega minnisstætt
hvað þér fannst þægilegt að
svunturnar fyrir vinnuna væru
hreinar þegar þú komst til baka
úr bústaðnum.
Þegar við Ingvar fórum að
búa sjálf hringdir þú oft í hann
bara til að heyra í honum, við
komum líka oft í heimsókn því
það var auðfundið að þið sökn-
uðuð hvort annars.
Þegar ég rakst á auglýsingu
um sveinspróf í vélvirkjun, sem
Ingvar var ekki búinn að taka á
þeim tíma, hringdi ég í þig til að
fá þig til að hjálpa mér að ýta
aðeins við honum að fara að
klára það. Ég bjóst þó ekki við
að þú myndir hringja beint í
yfirmann hans og hella þér yfir
hann, af hverju hann hefði nú
ekki verið hvattur til að klára
námið. Það er skemmst frá því
að segja að Ingvar tók sveins-
prófið í kjölfarið. Svona varst þú
alltaf, ekkert að hugsa hlutina of
mikið heldur bara framkvæma
strax, annars var bara eins gott
að sleppa því!
Synir okkar Ingvars hafa allt-
af verið hændir að þér og við
reyndum að vera dugleg að
heimsækja þig. Einnig fórum við
fjölskyldan oft í sumarbústaðinn
til þín og eigum við margar góð-
ar minningar þaðan.
Eftir að þú veiktist meira
flutti þú til okkar fjölskyldunnar
á efri hæðina hjá okkur. Báðum
strákunum þótti mjög notalegt
að fara upp til ömmu og báðu
oftast um að fara upp þegar þeir
komu heim eftir leikskóla og
skóla. Mér fannst þeir vera að
trufla þig en þú sagðist ekki
vilja að ég bannaði þeim að
koma heldur myndir þú frekar
senda þá niður.
Samband ykkar Guðjóns,
yngri sonar okkar, var einkar
náið. Hann bað oftast um að fara
beint upp til ömmu eftir leik-
skóla og eyddi þar löngum
stundum. Þér þótti svo notalegt
að hafa hann hjá þér, en þá var
alltaf sagt „amma ég er svang-
ur“ eða „amma áttu ís“? Auðvit-
að reddaði amma því alltaf, oft-
ast þegar ég kom upp að láta
vita að það væri matur var verið
að horfa á einhverja vitleysu
sem hann hafði valið og amma
sagði alltaf já.
Það er erfitt að kveðja þig en
við vitum að þú ert komin á
betri stað.
Ég vil þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir okkur
og allar yndislegu stundirnar
sem við höfum átt saman. Við
elskum þig og þín verður sárt
saknað.
Heiða Björk.